Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 11.JÚNI2003 FRÉTTIR 11
HAFA BJARGAÐ MEIRA EN 300 MANNS: Frá því að björgunarsveit varnarliðsins tók
formlega til starfa hér á landi fyrir um 30 árum hefur hún bjargað meira en 310
mannslífum.
EINBEITTUR Á SVIP: Þyrluflugmaður Bandaríkjahers horfir einbeittur út um
gluggann fyrir flugtak.
HJÁLP í MEIRA EN 60 ÁR: I rúma hálfa öld hafa björgunarsveitir varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli aðstoðað við margs konar vandamál sem upp hafa komið, s.s.
sjúkraflutninga.
HH-56G sem f daglegu tali eru kall-
aðar „Pave Hawk“. Hlutverk björg-
unarsveitar vamarliðsins er fyrst og
fremst að bjarga herflugmönnum á
vígvöllum og eru liðsmenn sveitar-
innar í stöðugum æfingum. Ekki
hefur vamarliðið sjálft þurft að
nota þjónustu björgunarsveitar
sinnar mikið en aðrir hafa í gegn-
um tíðina notið góðs af hæfileikum
þeirra, þar á meðal íslenskir sjó-
menn. A þeim rúmu 30 ámm sem
björgunarsveitin hefur formlega
starfað hér á landi hefur hún hlotið
viðurkenningar fyrir björgun rétt
rúmlega 310 mannslffa auk þess
sem hún hefur aðstoðað hundmð
annarra. Flestir þeirra sem sveitin
hefur bjargað em frá íslandi eða
176 einstaklingar en hinir koma frá
hinum ýmsu þjóðum, s.s. Dan-
mörku, Svíþjóð, Noregi, Þýska-
landi, Rússlandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum. Ekki liggja fyrir
tölur um þann fjölda mannslífa
sem Bandaríkjaher bjargaði fyrir
árið 1971 en ef þær væm teknar
með í reikninginn er ljóst að talan
myndi snarhækka. Björgunarstörf
sveitarinnar verða því sejnt metin
til fulls.
agust@dv.is
AFREKIN SKOÐUÐ: Áhöfnin skoðar dagblöðin og virðir fyrir sér fréttir af björguninni sem hún stóð að í Vöðlavík þar sem sex
manns var bjargað.
MARGVERÐLAUNAÐIR: Áhafnir björgunarsveitar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hafa margsinnis verið verðlaunaðar fyrir
björgunarafrek s(n.
Sex skipverjum afGoðanum bjargað eftirníu tíma baráttu:
Sex bjargað í
miklum veðurofsa
Þyrlubjörgunarsveit varnarliðs-
ins á Keflavíkurflugvelli vann mik-
ið afrek þegar sex mönnum var
bjargað af skipinu Goðanum þann
10. janúar árið 1994. Goðinn var
staddur á milli Norðfjarðar og
Reyðarfjarðar til þess að draga
skipið Bergvík á flot en það hafði
strandað í Vöðlavík skömmu áður.
Mikið fárviðri skall hins vegar á og
mikill brotsjór fór yfir Goðann
þannig að einn skipverja féll fyrir
borð og hvarf hann í sælöðrið.
Við brotsjóinn eyðilögðust öll
stjórntæki í brú Goðans, vélin
stöðvaðist og skipið rak stjórn-
laust að landi þar sem það síðan
strandaði um 150 metra frá Berg-
víkinni. Þegar var kallað eftir að-
stoð og sáu menn fram á mjög erf-
iða björgun þar sem veðrið færðist
stöðugt í aukana. Eina leiðin til að
komast að skipinu var úr lofti en
þyrlur áttu erfitt með að komast í
loftið vegna veðurofsans. Það
hafðist fyrir rest og lögðu tvær
þyrlur varnarliðsins af stað ásamt
þyrlu landhelgisgæslunnar sem
þurfti að snúa við vegna veðurs.
Þyrlur landhelgisgæslunnar
þurftu svo að stoppa á Hornafirði
til að taka eldsneyti þar sem
Herculesflugvélin, sem bar auka
eldsneyti fyrir þyrlurnar, þurfti
einnig að snúa við vegna veðurs.
Þegar þyrlurnar komu loks á
vettvang höfðu skipverjar barist
fyrir lífi sínu á skipinu í níu
klukkustundir. Tveir menn úr
annarri þyrlunni voru svo látnir
síga um borð þar sem þeir fluttu
fjóra af skipverjunum í land.
Seinni þyrlan kom svo hinum
tveimur í land og tók björgunin í
allt 40 mínútur. Áhöfn þyrlunnar
sagði að aðstæður á slysstað hefðu
bókstaflega verið ógnvekjandi og
hrósuðu þeir skipverjum mikið
fyrir þrautseigjuna. Þegar björgun
var lokið var ætlunin að fljúga
með skipverjana á sjúkrahús á
Höfh eða Egilsstöðum en þyrlurn-
ar gáfúst upp á miðri leið og
þurftu því að lenda í Neskaupstað.
Óhætt er að fullyrða að mikið
afrek hafi verið unnið með þessari
björgun og líklegt þykir að áhöfn
Goðans hefði öll farist ef að björg-
unarsveitar varnarliðsins hefði
ekki notið við.
er sérhæföur
bóknámsskóli með bekkjakerfi. Þrjár námsbrautir,
mála-, félagsfræða- og náttúrufræðibraut eru í
boði og er sérstök áhersla lögð á náttúru-
fræðigreinar.
Skólinn leggur áherslu á að veita góðan undirbúning
fyrir frekara nám á háskólastigi. Lögð er mikil
áhersla á góða kennslu og góðan vinnuanda.
Einkunnarorð skólans eru: „Aðeins það besta"
Kíktu á