Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 11.JÚNÍ2003 MERUWWG 17
Samkvæmt íslamskri arfleifð skipaði
eftirmaður spámannsins svo fyrir eft-
ir dauða hans að opinberununum
skyldi safnað á bók og skyldu safnað-
armeðlimir miðla því sem þeir höfðu
skráð eða lagt á minnið.Kóraninn er
elsta og langmerkasta verk klassískra
bókmennta araba.Múslímartelja
hann vera hið óskeikula orð Allah og
í honum eru þær reglur um rétta
breytni sem lífsmáti þeirra byggist á.
Með þjóðskáldum við þjóðveginn
FERÐAHANDBÓK: Út er komin
bókin Með þjóðskáldum við þjóð-
veginn eftir Jón R. Hjálmarsson. í
þessari nýstárlegu ferðahandbók
er farið eftir hringveginum og
heimsóttir fæðingarstaðir 42 stór-
skálda.Ævi þeirra er rifjuð upp og
fléttað inn í frásögnina Ijóðum sem
sum hver eru orðin órjúfanlegur
hluti af þjóðarvitundinni. Samhliða
þessu fjallar höfundur bókarinnar
um ýmislegt merkilegt sem mætir
ferðamanninum. Frásagnir Jóns eru
í senn lifandi og fróðlegar enda
hafa bækur hans í þessum bóka-
flokki, sem hófst með Þjóðsögum
við þjóðveginn, hlotið sérlega góð-
ar viðtökur.
Nýtt netgallerí
MYNDLIST: Gallerí Bláskjár er ný-
stofnað netgallerí þar sem gefur að
líta málverkfrá hendi Svandísar Eg-
ilsdóttur. Hugmyndin er að halda
opnun tvisvar á ári og þá koma nýjar
myndir á netföng þeirra sem eru á
póstlista hjá galleríinu. Aðrir gestir
geta skoðað þær ef opnunargestir
áframsenda sýninguna.
Netfangið er svandise@ismennt.is
Jojka, litli fuglinn Ijúfi
0 BÓKMENNTAGAGNRÝNI Sigríður Albertsdóttir
Nils-Aslak Valkeapáá Víðemin í brjósti mér Einar Bragi þýddi Ljóðbylgja 2003
Einn þekktasti rithöfundur Sama er Nils-
Aslak Valkeapaa (1943-2001). Móðir hans var
frá norska hluta Samalands og faðir hans frá
hinum sænska en sjálfur var hann fmnskur
ríkisborgari. Valkeapaa var þrisvar tilnefndur
til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og
hlaut þau árið 1991 fyrir bókina Faðir minn
sólin.
En Valkeapáa var fleira tO lista lagt en
ljóðagaldurinn. Hann var tónlistarmaður,
myndlistarmaður, ljósmyndari og leikari, lék
m.a. stórt hlutverk í kvikmyndinni Leiðsögu-
manninum eftir NUs Gaup, auk þess sem
hann samdi tónlist við kvikmyndina. En
þekktastur var hann sem skáld og jojkari. Jojk
er sungið tjáningarform sem hefur lifað lengi
með Sömum og hefur meðal annars því hlut-
verki að gegna að vígja nýja einstaklinga inn í
hópinn, bjóða þá velkomna og efla samstöð-
una. Hver einstaklingur hefur sitt persónu-
lega jojk sem lýsir skapgerð hans, og jojkið
getur tekið breytingum í samræmi við ein-
staklinginn.
I ljóðum sínum verður Valkeapáá tíðrætt
um jojkið sem virðist eiga uppruna sinn í
náttúrunni sjálfri, sbr. eftirfarandi ljóðabrot:
„jojka, lidi fuglinn ljúfi / lyftu gróðri þínum
lát sólina frjóvga / lát ár þínar og fossa jojka
/lát skógartóna þína óma / heiðlóujojkið
hljóma / bjöllur gresjunnar syngja / hafgný-
inn gjalla / þrumuna dynja“ (23).
Þetta brot er úr Víðernin í brjósd mér sem
nýlega kom út í íslenskri þýðingu Einars
Braga með ljóðum úr sex bókum eftir Val-
keapáá, meðal annars úr Faðir minn sólin.
Ljóðin eru margbreytileg að efni en eiga sam-
merkt að vera einföld að gerð og raddir nátt-
úrunnar óma alls staðar undir.
Bókinni má skipta í þrjá hluta. I þeim fyrsta
rekur skáldið uppruna sinn og lýsir því
hvernig hann er rifinn upp með rótum og
sendur í skóla, en þar er talað erlent mál og
þar er ekkert silungsvatn (14). Drengurinn
aðlagast illa enda barn náttúrunnar og hug-
urinn reikar þangað. Bernskuminningarnar
renna saman við undurfagrar náttúrumyndir
og frá þeim færir skáldið sig yfir í ástina sem
hann lofsyngur í ljóðum sem eru hvert öðru
fegurra.
Ljóðin eru margbreytileg að
efni en eiga sammerkt að vera
einföld að gerð og raddir
náttúrunnar óma alls staðar
undir.
I miðhlutanum fjallar skáldið um sögu
þjóðar sinnar og menningar og baráttu
hennar fýrir að varðveita rétt sinn til lands og
tungumáls. í gegnum tíðina hafa Samar aðal-
lega lifað af hreindýrarækt en þeir fá stöðugt
minna beitarland þar sem seilst hefur verið í
land þeirra til að nýta í þágu raforkuvera og
námuvinnslu svo dæmi séu tekin. Valkeapáá
mótmælir þessari þróun kröftuglega í ljóðum
sínum, og í þriðja hluta birtist skáldið sem
persónulegur málsvari kúgaðra minnihluta-
hópa, sem hafa barist með kjafti og klóm til
að viðhalda sérstöðu sinni en eiga á hættu að
líða undir lok. í einu ljóðinu segir m.a. þetta:
„Og eðli þeirra var að heimta allt. Alltaf
meira. / Og meira enn. / Og þeir tóku. /Þeir
Nils-Aslak Valkeapáá.
tóku svo mikið að nú er nær ekkert eftir / til
að taka.“ (62) í lokaljóðum bókarinnar hleyp-
ir ljóðmælandi draumunum að og rennur
saman við náttúruna í fullkomnu algleymi,
kveður hylkið, líkama sinn, og „fer / til að
geta komið / burt / til að geta verið nær“
landinu sem á hann (80).
Ljóð Valkeapáá eru fyrst og síðast óður til
náttúrunnar og landsins, til þeirra náttúru-
auðlinda sem maðurinn verður að gæta vel ef
mannkynið á ekki að líða undir lok. Ljóðin
eru kraftmikil, töfrandi og tælandi og njóta
sín vel í vandaðri þýðingu Einars Braga.
(tilefni af frídegi verkafólks:
TILBOÐ 30. APRÍL
,.„V OG l.MAl
- \ JdM-r Pantadustrax
w ísfma 568 8000
atvinna
_ ■
einkamál
550 5000
Smáauglýsingar
DV
bílar og farartæki
húsnæði
markaðstorgið
r‘
Þau leika við hvum sinn fingur:
Eggert Þorleifsson
Bjöm Ingi Hilmarsson
EllertA. Ingimundarson
Jóhanna Vigdís Amardóttir
Signin Edda Bjömsdóttir
Leikstjóri: Maria Sigurðardóttir
BORGARLEIKHUSIÐ
.Uppl
meqin
I eftir Derek Benfietd
liL*ei£í:£LidiiUuÍc.i'i:m(álui-l
S68 8000
f . ð
BORGARLEIK H U SID
Lelkfdag Reykjavfktir
STÓRA SVIÐ
ÖFUGU MEGIN UPPÍ
e. Derek Benfield
Fö. 13/6 kl. 20
SÍÐASTA SÝNING í VOR
DON GIOVANNI
Operustúdíó Austurlands
Su. 15/6 kl. 17.
Má. 16/6 kl. 20.
GREASE
Islenska leikhúsgrúppan
Fi. 26/6, FRUMSÝNING ____
NÝJA SVIÐ
NAPÓLÍ 23 -
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Hilmar Jensson, Skúli Sverrisson,
Matthias Hemstock, Eyvind Kang
Fi. 12/6 kl. 20
15:15 TÓNLEIKAR -
FERÐALÖG
Bergmál Finnlands:
Poulenc-hópurinn
Lau. 14/6 kl. 15:15
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA
e. Shakespeare
f samstarfi við VESTURPORT
Lau. 21/6 kl. 20 - UPPSELT
Su. 22/6 kl. 20 - AUKASÝNING
ATH.: SÍÐUSTU SÝNINGAR
ALIIR í LEIKHÚSIÐ ENGINN HEIMAI
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús:
Börn, 12 ára og yngri, fa frítt í leikhúsið i
fylgd nieð forráðamönnum.
(Gildir á ÖFUGU MEGIN UPPÍ).
l ................... ........... j