Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2003, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 11.JÚNÍ2003 KRÝSUVÍKURSAMTÖKIN 21 Þakkir VILDARVINIR: Margireru þeir sem hugsa með hlýhug til Krýsuvíkur og gefa heimilinu ýmislegt, s.s.bækur, húsgögn og ýmislegt annað nýtilegt. Við ætlum ekki að reyna að telja þá alla upp, það yrði of langt mál og auk þess gæti farið svo að einhver gleymdist. En engu að síður erum við mjög þakklát öllu þessu fólki, án þess væri fátæklegt í Krýsu- vík. Lalla fær sérstakar kveðjur. Kærar þakkir til ykkar allra. EJS Vegna breytinga hjá tölvufyrir- tækinu EJS féllu til skrifborð, sem starfsmenn þar höfðu ekki lengur not fýrir. Þeir höfðu samband við Krýsuvík og þar brugðust menn glaðir við og þáðu með þökkum full- an bíl affínum hlutum. Þetta rennir enn styrkari stoðum undir námið, nú geta allir lært við skrifborð og búið sig undir lífið af fullum krafti.Við kunn- um starfsmönnum EJS hinar bestu þakkirfyrir rausnarlegar gjafir. Lions VILDARVINIR: Lionsklúbbur- inn Fjölnirog Lionsklúbbur- inn Þór, báðir úr Reykjavík, hafa verið ötulir stuðnings- menn Krýsuvíkurskóla sl.fimm ár. Fyrir utan ýmislegt sem þeir hafa gefið til heimilisins, s.s.raflýsingu fyrir utan skól- ann o.fl., hafa þeir nú á annað ár unnið að því að undirbúa uppbyggingu gróðurhúss fyr- ir lífræna ræktun þar á staðnum. Það er unn- ið í samráði við Garð- yrkjuskóla ríkisins og Hitaveitu Suðurnesja sem hef- ur í bígerð að rafvæða borhol- una í Krýsuvík, en þeir eru eig- endur hennar. Hitaveitan hef- ur einnig lengi verið einn af öflugustu stuðningsaðilum meðferðarheimilisins og er ómetanlegt að hafa slíka vel- viljaða „nágranna". Um þessar mundir er verið að leita að yl- ræktarmanni eða konu til að hafa umsjón með uppbygg- ingu þessa verkefnis. EFTIRLÆTIALLRA: Vistmenn í Krýsuvík fundu yfirgefið álftaregg og unguðu því út. Úr egginu kom fugl, Ragnheiður, sem er eft- irlæti allra á staðnum. Svanurinn Ragnheiður GERIR MANNAMUN: Hún gerir sér mannamun,er hændari að sumum en öðrum. Hún á það til að blta (rassinn á þeim sem henni llkar ekki við. Vistmenn í Krýsuvíkfundu yf- irgefið álftaregg, tóku það með sér heim og unguðu því út. í fyliingu tímans kom úr egginu fugl sem síðan ólst upp í Krýsuvík og varð brátt eftirlæti allra á staðnum. Svanur þessi hlaut nafnið Ragn-' heiður í höfuðið á vistmanni sem Ragnar hét. Ragnheiður hélt til við Krýsuvíkurskóla á sumrin en þegar haustaði flaug hún með öðrum svönum suður á bóginn. Ragnheiður hegðar sér eins og varðhundur þegar hún er „heima“. Hún fer aldrei inn í húsið en heldur sig í nágrenni þess og gætir þess. Ef menn eru að vinna úti við á hún það til að stilla sér upp hjá þeim og gefa frá sér ýmiss konar hljóð eins og hún sé að spjalla við þá. Þegar staðarhaldari fer í bæinn á staðarbílnum fylgir hún honum gjarnan. Hún gerir sér mannamun, er hændari að sumum en öðrum og á sérstaka vini meðal vistmanna. Hún hlýðir Lovísu framkvæmda- stjóra eins og vel vaninn hundur en á það til að bíta í rassinn á þeim sem henni líkar ekki við. Og þeir sem sýna hræðslumerki í návist hennar geta átt von á því að hún hvæsi á þá. Ragnheiður hvarf af staðnum sl. haust og var talið að hún hefði orð- ið fyrir „voðaskoti" lögreglumanna norður í landi. Sú saga komst á Ture Hann kom til að kveðja í síð- ustu viku. Hann var á leið heim til Svíþjóðar, eftir að hafa dvalið tæp 5 ár á íslandi. Þegar Ture kom til Krýsuvíkur, haustið 1998, tók hann í höndina á Svíunum er þar voru fyrir og til- kynnti að hann væri kominn til ís- kreik að hún hefði flogið norður í fylgd með stegg einum sem fór að stíga í vænginn við hana og sinnast þar við verði laganna með fyrr- greindum afleiðingum. Ragnheiður var eftir þetta talin af og hennar var sárt saknað. En þegar voraði birtist Ragnheiður hin vígreifasta á hlað- inu í Krýsuvík. Ekki er hún til frá- sagnar um hvar hún hafði verið en augljóslega var það einhver önnur álft sem féll fyrir byssuskotum lög- reglumanna fyrir norðan. Ragn- heiður lifir. lands til að breyta lffi sínu og verða edrú og hann ætlaði að gefa sér 4-5 ár í það mál. Þeir ráku upp hrossa- hlátur, það væri nú ekki hætta á því að hann héldi það út. Ture hafði verið í mikilli am- fetamínneyslu í 25 ár, búið á göt- unni og var það sem kallað er von- laust dæmi. En þar sannaðist að enginn er vonlaus. f fjóra og hálfan mánuð svaf Ture í Krýsuvík, vakn- aði til að borða og sofnaði svo aftur, - en þá tók að rofa til. Hann dvaldi tæpt ár í Krýsuvík, fór þaðan á áfangaheimili og síðan í herbergi út Bréfdúfa í meðferð Á sama tíma og álftin Ragnheiður stóð vörð um húsið að norðan- verðu bjó bréfdúfa á svölunum á efri hæðinni sem snýr til suðurs. Að sögn fróðra manna sem önnuðust hana mun hún hafa lent í klónum á fálka, hafði við það misst hluta af flugfjöðrunum. Dúfan hélt til á svölunum í tvo mánuði við gott at- læti vistmanna sem sáu um að hana skorti ekkert. Þegar hún var komin í flughæft ástand flaug hún á brott eins og aðrir þeir sem hér hafa náð bata. í bæ og stundaði vinnu allan tfm- ann á sama staðnum þar til nú, að hann heldur heim. í farteskinu er hann með Volvobíl, margt góðra muna er hann hefur keypt sér, mik- ið af bókum og það besta af öllu er, að hann hefur eignast nýtt lff og bjarta framtíð. Hann hefur ætíð verið í sam- bandi við lífgjafa sína í Krýsuvfk og honum fannst hann vera að kveðja fjölskyldu sfna. „Ég kem í heimsókn," sagði hann. - „Takk fyrir allt-allt-allt!“ (Birt með leyfi hans.) Sóttum um styrk og fengum hann Hannes Hilmarsson, kennari við Menntaskólann í Kópa- vogi, hefur lengi sinnt kennslu í Krýsuvík. Hann seg- ir samtökin nýlega hafa sótt um styrk til að gera námskrá fyrir Krýsuvíkurskóla og gera námið þar sýnilegt „Ég hef kennt hér undanfarin 5 ár og hér var ekki til stafúr á bók um það hvað hér fer fram. Bæði ráð- gjafar, stjórnendur stofnunarinnar, aðstandendur nemendanna og aðrir sem að þessu koma að ógleymdum nemendum sjálfum verða að hafa það á hreinu hvað verið er að gera. Námskráin verður ekki löng, væntanlega ein blaðsíða á íslensku og önnur á sænsku," sagði Hannes. „Menntamálaráðuneytið veitti okkur styrk að upphæð 300 þúsund krónur til að móta hér fullorðins- fræðslu. Við sóttum um 500 þús- und og miðað við það að ekki fengu nærri allir úthlutun af þeim sem sótm þá getum við vel við unað. Okkur finnst þetta vera mikil viður- kenning á því sem við höfum verið að gera.“ - Hvernig líkar þér að kenna hér í Krýsuvík? „Mér finnst það ágætt. Þessi staður er að vaxa, hér er stöðug framþróun. Meðferðin hefur þróast í mjög jákvæða átt og skólinn fylgir þeirri þróun. Þessir tveir þættir fylgjast að og eru samtvinnaðir, þróunin í öðrum hefur áhrif á hinn.“ Nær lýðskólahugmyndinni - Hver er helsti munur á því starfi sem hér er unnið og kennslunni í MK? „Við erum mun nær lýðskóla- hugmyndinni hér í IGýsuvík. Námsloturnar eru stuttar, einn mánuður í einu og við tökum fyrir þessar fjórar greinar, stærðfræði, íslensku, ensku og félagsfræði. Hér er ekki gert ráð fyrir prófum eftir þrjá mánuði eins og í menntaskól- anum og við reiknum heldur ekki endilega með einhverju ákveðnu heimanámi heldur fer námið að mestu fram í tímunum. Nemendur verða að ljúka efninu sem tekið er fyrir í hverri mánaðarlotu til að fá diplómuna. Skólastarfið hér bygg- ist á núinu, því að vera upptekinn við daginn í dag." -Hvemig taka vistmenn í Krýsu- vfk því að vera allt f einu komnir í nám? „Sumir vilja kalla það kraftaverk þegar þeir einstaklingar sem hér eru vistaðir em allt í einu sestir við skólaborð prúðir og stilltir og farnir að læra. Námið er miðað við þarfir þeirra sem hér em en það þýðir þó alls ekki að þeir þurfi ekki að leggja nokkuð að sér. Nemendurnir okkar leggja sig alla í þetta og ná yfirleitt ágætum árangri. Námið er tólf vik- ur fyrir jól og jafnlangt eftir áramót og sumir hafa í gamni kallað þetta tólf vikna námskerfið, svipað tólf Þegar menn fara héðan þá erþeim orðið Ijóst að skóli er ekki eitt- hvað fjandsamlegt heldur þroskatæki sem þeir eiga rétt á. spora kerfinu. Mér finnst að eftir að við tókum upp þessar afmörkuðu stuttu námsbrautir og viðráðan- legu markmið sé námsgleðin og áhuginn miklu meiri en áður var. Hér mæta allt að átta manns á fyrstu mínútunni þegar kennslu- stund hefst og byrja að vinna af fullum krafti. Hér hafa menn náð því að reikna sextíu dæmi á klukku- tíma, það er auðvitað stórsigur fyr- ir þá sem ef til vill hafa aldrei gert neitt slíkt áður. Svíarnir hafa sumir reiknað hjá mér algebm í fyrsta skipti á ævinni, orðnir 50 til 60 ára gamlir - og finnst hún bráð- skemmtileg. Þegar menn fara héðan þá er þeim orðið Ijóst að skóli er ekki eitt- hvað fjandsamlegt heldur þroska- tæki sem þeir eiga rétt á og hafa að- gang að eins og allir aðrir. Ef við getum miðlað því hér í Krýsuvík þá er það stórt og mjög mikilvægt markmið." Það er allt hægt -Hvernig nýtist þetta nám þegar út kemur? „Fyrst og fremst nýtist þetta á þann hátt að hér sitja menn með kennara og em að læra. Með því brjóta þeir ísinn. Hugmyndin um að fara í skóla er nær þeim eftir þessa vinnu hér. Svo er líka hægt að bjóða hér upp á einingabært nám ef einhver óskar eftir því. Þá setjum við upp þriggja mánaða nám og nemendur taka próf í skólanum. Ég hef oft sagt að Krýsuvíkurskóli sé opnasti, sveigjanlegasti, besti og skemmtilegasti skóli í landinu og þar gildi bara ein regla; það er allt hægt." eru allt (einu sestir við skólaborð og farnir aö læra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.