Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Blaðsíða 19
 4 LAUGARDAQUR 14.JÚNÍ2003 DVHELCARBLAÐ 19 fætinum. Auk þeirra hefur dyggasti aðdáandi sveitarinnar til sex ára einnig vígst inn í sam- félagið með tattúveringu. Annar eins metn- aður aðdáanda íslenskrar sveitar hlýtur að vera fáheyrður." Pressan er því mikil á eftirlegukindunum óflúruðu í hljómsveitinni, Eggert og Palla, sem segjast staðráðnir í að láta ekki undan hópþrýstingnum. Það er greinilegt að mikið hefur neistað milli flúraðra og óflúraðra og sitt sýnist hverjum. „Mig hefur aldrei langað í húðflúr. Við Egg- ert sýnum með þessu mikla samstöðu. Húð- flúr er bara fyrir wanna-be gaura," segir Palli við góðar undirtektir Eggerts og blæs út brjóstkassann móti Bigga sem kallar þá Egg- ert kettlinga og segir mikinn klofning kominn í sveitina með þessu. Húðflúr er bara fyrir wanna- be gaura, segir Palli við góðar undirtektir Eggerts og blæs út brjóstkassann móti Bigga sem kallar þá Eggert kettlinga og segir mikinn klofning kominn í sveitina með þessu. „Það að hafa lifað af tíunda áratuginn án þess að fá sér tattoo er reyndar merkilegt út af fyrir sig,“ segir Biggi. „Nú er 2003 og þetta er allt í lagi. Til minningar um vinina, þennan skemmtilega tíma með strákunum ..." Eggert og Palli kúgast í sameiningu og þyk- ir Biggi fulltilfinningasamur, þó feyndar hafi ekki verið full alvara á ferðinni: „Yeah, whatever," segja þeir ákveðið. „Næsta spuming.“ Ekkert á móti peningum Það er stórt skref fyrir hljómsveit að byrja annan áratuginn. Maus er tíu ára og nokkrum vikum betur og elsta eftirlifandi hljómsveit sinnar kynslóðar. Er þar átt við sveitir sem vom stofnaðar og áberandi í kringum ‘95. „Sigurrós og Botnleðja em stofnaðar rétt á eftir okkur en ég held að við séum nokkurn veginn einir eftir frá þessum tíma sem hafa starfað samfellt,“ segir Biggi. Palli tekur þó fram að á heildina litið séu þeir ekki gömul sveit. „Sálin er miklu eldri en við, SSSól, Stuð- menn em svo náttúrlega ömgglega 150 ára eða að sigla í það. Það er til fullt af eldri sveit- um en við.“ Mausarar segjast ekkert finna fyrir aldrin- um. „Við pælum ekkert í því. Við veltum því fyr- ir okkur að gera eitthvað á 10 ára afmælinu en fannst það frekar óspennandi við nánari tilhugsun. Það eru bara sveitir sem hafa áhyggjur af þessu sem halda upp á afmælið," segir Biggi og Palli bætir við. „Ef maður lítur á sfnar uppáhaldshljóm- sveitir, Cure er 25 ára, Radiohead 17-18 ára o.s.frv. þá er þetta ekki mikið.“ „Það spilar líka inn í að við emm ekki í þessu út af peningunum. Við emm allir í fastri vinnu. Sumir hafa fótboltaklúbb eða eitthvað en við hittumst og búum til tónlist.“ „Við höfum samt ekkert á móti peningum og emm alltaf til í að taka við peningum. Ég vil að það komi skýrt fram,“ segir Palli sölu- mannslega. „Auðvitað höfum við samt mikinn metnað fyrir því sem við emm að gera. Við tökum tónlistina alvarlega. Hljómsveitin er hluti af okkar lífi og við lítum innst inni frekar á okk- ur sem tónlistarmenn og hitt sem leið til afla peninga," segir Eggert. Bókhaldsmál em í umræðunni þessa dag- ana og orð Bigga um að peningarnir séu aukaatriði hjá maus kveikja hjá mér forvitni um hvort sveitin sé í plús eða mínus eftir tíu ára starf. Strákarnir em á öndverðum meiði með það í fyrstu, Eggert telur að plúsinn sé einhver en Biggi og Palli hrista höfuðið hlæj- andi og segja að þeir séu í stómm mínus þeg- ar allt tekið saman. „Ef við væmm fyrirtæki væmm við búnir að skipta tvisvar um kennitölu," segir Biggi og svarar þessu endanlega. Maus hefur spilað á nokkmm tónleikum undanfarið eins og eðlilegt er í kringum plötuútgáfu. Þeir halda útgáfutónleika 19. júní í Iðnó og hyggjast spila eitthvað í ágúst. Hljómsveitin hefur frá upphafi miklu frekar verið tónleikasveit en ballhljómsveit og ég minnist þess að hafa einhvern tímann rekið upp stór augu þegar ég sá maus auglýsta í Njálsbúð um helgina, nokkuð sem bara hefur gerst einu sinni. „Við höfum ekkert á móti ballspila- mennsku og höfúm gert það öðm hverju í gegnum tíðina," segir Palli og Biggi heldur áfram: „Við höfum hins vegar ekki staðið sjálfir fyrir okkar eigin böllum. Það hefur verið vinnuregla frá upphafi. Við bókum ekki hús og mætum á rútunni með plakötin. En ef ein- hver hringir og biður okkur emm við alveg til. Sjálfsagt mál. Þá getur maður líka verið viss um að það er að minnsta kosti einhver sem Efvið værum fyrirtæki værum við búnir að skipta tvisvar um kennitölu. vill sjá okkur og heyra á svæðinu. Það heillar okkur hins vegar eldd að mæta óumbeðnir og spila fyrir framan blindfullt fólk sem vill bara slást og heyra House of the rising sun. Það gefur okkur einfaldlega ekki neitt ... nema hugsanlega peninga," bætir hann við eftir stutta umhugsun og þeir skellihlæja: „Við emm svo lélegir bisnessmenn." Rassskellum meik-manninn! Musick er sungin á ensku líkt og Ghost- songs, önnur plata sveitarinnar, en síðustu tvær hafa verið með íslenskum textum. Vakir fyrir sveitinni að brjóta ísinn erlendis, eða hvað? Við hverju er búist af plötunni? „Þetta verður fyrsta maus-platan sem kem- ur út annars staðar en á íslandi," svarar Biggi. „Það var stefnan frá upphafi að stækka hlust- endahóp okkar út fyrir ísland og við skömm- umst okkar ekkert fyrir að viðurkenna það. Platan var beinlínis tekin upp með það að markmiði. Ég sem á íslensku og íslenska er mitt mál. Það var einu sinni dálítil noja hjá okkur gagnvart því að syngja á ensku. En það er fáránlegt að láta það vera einhvern vegg fyrir sér. Staðreyndin er sú að þetta er það sem okkur finnst skemmtilegast að gera. Við viljum ekki vera ballhljómsveit, það er ekki hægt að vera bara tónleikasveit á íslandi, við höfum ekki áhuga á að búa til tónlist fyrir auglýsingar o.s.frv. Þannig að við sjáum ekk- ert að því að prófa. Það eina sem er öruggt í þessu er það að fólk getur keypt plötuna okk- ar í Þýskalandi eða Danmörku eða Bretlandi, vonandi. Við erum hæstánægðir með það. Tilgangurinn er ekki að komast inn á ein- hverja lista eða selja bílfarma eða „meikað’a" eins og sagt er.“ Biggi er orðinn heitur: „Það væri réttast að taka manninn sem fann upp það orð, „að meika’ða", og rassskella hann. Eða þykir eitt- hvað athugavert við það að rithöfúndur selji bókina sína til annarra landa? Það er það sama og við erum að gera, gefa út plötu í Þýskalandi og kannski spila þar á tónleikum. Þetta er ekkert frábrugðið því að halda gigg á Gauknum eða Dalvík. En okkur finnst þetta bara frekar fyndið, hvenær sem íslensk hljómsveit kemur frá útlöndum er spurt um leið: Og liggja svo samningar á borðinu?“ Palli tekur undir: „Það er eins það sé búið að gera það að einhverju neikvæðu, feimnis- máli, að vilja og reyna að ná árangri í tónlist. Hvaða bull er það?“ „Það er alltaf gaman að ná nýjum eyrum," segir Eggert. „Og að komast í frfhöfnina." fin&dv.is MAUS í HAM: Myndirnar á opnunni eru frá upptökum á myndbandi við lag af Musick. Börkur Sigþórsson er leikstjóri þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.