Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Page 22
22 DVHBJGAmiAÐ LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003
Konur
Umsjón:
Arndís Þorgeirsdóttir, arndis@dv.is
Snæfríður Ingadóttir, snaeja@dv.is
Allt er Fjallafreyjum fært
...kíkt í snyrtibudduna
Helga Dögg
Björgvinsdóttir
er blaðamaður
hjá Fróða og
skrifar mestan-
part í tímaritið
Hús og híbýli.
Hún segist alla
jafna mála sig
lítið og förðunin
hafa farið
minnkandi frá
tíu ára aldri. Þá
sló Helga Dögg
nefnilega í gegn
þegar hún mætti
stríðsmáluð á
skólaskemmtun
í Fossvogsskóla.
Hannað fyrir mig
„Augnskuggabox frá Christ-
ian Dior. Ég féll alveg fyrir
litasamsetningunni í þessu
boxi en það keypti ég í frí-
höfninni. Litimir em
bara eins og hannaðir
fyrir mig og síðan ég
eignaðist þessa
augnskugga þá hafa allir aðr-
ir skuggar í snyrtibuddunni fallið í
gleymskunnar dá.“
Snilldaruppfinning
„38° maskari ffá Kanebo. Ég hef átt
nokkra svona en þetta er ein mesta snilld-
amppfmnining sem ég hef komist í tæri
við. Áður fyrr var ég ein af þeim sem var
alltaf með lekandi maskara niður á
kinnar en þessi fer ekki fet fyrr en
maður vill að hann fari."
Gloss frá vinkonu
„Gloss frá Helenu Rubenstein. Sólrún
vinkona mín gaf mér þetta gloss í afmæl-
isgjöf í apríl en þetta er tvenns konar
gloss í einum og sama stauknum, ann-
ars vegar bleikt og hins vegar glært.
Mjög hentugt fyrir hvers konar tæki-
færi.“
Létt og frískleg
„Elle White ilmvatn frá Emporio
Armani. Eina snyrtivaran sem ég nota á
hverjum degi nánast án undantekn-
inga. Lyktin er létt og frískleg og mér
finnst hún agalega góð. Reyndar er
hún mjög dauf og margir sem
umgangast mighalda að ég noti
ekki ilmvatn. Eflaust myndu
margir segja mér að sleppa
þá bara ilmvatninu en mér
líður bara einhvern veginn betur
að skvetta smá á mig á morgnana og svo vil ég
síður anga eins og gangandi snyrtivöruverslun."
Góður púðurfarfi
„UV Total finish púður frá
Kanebo. Rosalega góður
púðurfarði sem dugir al-
veg einn og sér ef maður
þarf bara aðeins að
hressa upp á útlitið. Húð-
liturinn verður jafn og
áferðin falleg. í rauninni
allt sem þarf.“
Fjallafreyjur er hópur hressra kvenna
sem ganga reglulega sér til heilsubót-
ar og skemmtunar.
Sigríður Skúladóttir, íþróttakennari og
nuddfræðingur, segir að félagið hafi verið
stofnað í framhaldi af því að hún hafi verið að
kenna konum leikfimi. „Hópurinn hefur ver-
ið nokkuð samheldinn í gegnum tfðina og við
fórum oft í göngur á vorin. Smám saman
„í lok ágúst er farið í helgar-
ferð og við erum líka farnar
að bjóða mökum með."
urðu göngurnar lengri og við skipulögðum
þær lengra fram í tímann." Sigríður segir að
göngufélagið Fjallafreyjur hafi verið formlega
stofnað 6. maí 1995 en að í raun sé félagið
eldra. „Stofnfélagar voru rétt um fjörutíu en
vel á annað hundrað konur hafa tekið þátt í
starfseminni frá upphafi.“
Alltaf á laugardögum
Að sögn Sigríðar var fljótlega sett á laggirn-
ar nefnd sem sá um skipulagningu ferða.
„Við settumst niður að vori og skiplögðum
prógramm fyrir allt sumarið. Við göngum til
dæmis alltaf á laugardögum, bæði lengri og
styttri göngur, en yfirleitt eru þetta ekki nema
dagsgöngur. Til að byrja með fórum við mest
í stuttar göngur á Reykjavíkursvæðinu og á
fjöllin í kring eins og Keili, Esjuna, Helgafell,
Vífilsfell og Hengil. Við höfum einnig gengið
gamlar þjóðleiðir eins og Síldarmannagötur
úr Hvalfirði, Selvogsgötu og í dag ætlum við
að ganga Svínaskarðsleið milli Móskarðs-
Við göngum til dæmis alltafá
laugardögum, bæði lengri og
styttri göngur, en yfirleitt eru
þetta ekki nema dagsgöngur.
hnjúka og Skálafells og yfir í Hvalfjörð."
Sigríður segir að í seinni tíð séu Fjallafreyj-
ur farnar að víkka sjóndeildarhringinn og
bjóða upp á lengri ferðir. „f lok ágúst er farið
f helgarferð og við erum líka farnar að bjóða
mökum með.“
Þétt dagskrá
Sigríður segir að auk dagsgangnanna
skipuleggi Fjallafreyjur eins til eins og hálfs
tíma gönguferðir á mánudögum og miðviku-
dögum í Heiðmörk eða við Hvaleyrarvatn.
„Þessar göngur koma í staðinn fyrir leikfim-
ina þar sem við tökum okkur frí frá henni á
sumrin, auk þess förum við í menningarferð-
ir með gönguívafi og á söfn.“
Dagskrá Fjallafreyja fyrir sumarið er þétt
því þær æda í ferð inn í Þjórsárdal, ganga upp
að Háafossi, f ferð um Höskuldarvelli og
Djúpavatn á Reykjanesi, upp á Heiðina há, í
Búrfellsgjá og á Hengilinn, svo eitthvað sé
nefnt.
Að sögn Sigríðar er félagið opið öllum kon-
um og þær sem hafa áhuga á að slást í hópinn
geta haft samband við hana í síma 695-3873.
„Mottóið okkar er göngum til gleði og góðrar
heilsu."
-kip@dv.is
GÖNGUGARPUR: Sigríður Skúladóttir, (þróttakennari og nuddari, segir að kjarni Fjallafreyja sé samheldinn hópur kvenna sem ganga reglulega sér til skemmtunar
og heilsubótar.