Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2003, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 14.JÚNÍ2003 DVHELGARBLAÐ 29
um þetta efni haustið 2002 kom
Ari Fleischer, blaðafulltrúi hans,
fram og áréttaði yfirlýsingarnar
efnislega og sagði:
„Það er staðreynd að Irakar eiga
vopn.“
Donald Rumsfeld tók í sama
streng og áréttaði tilvist gereyðing-
arvopna í írak og bætti um betur
þegar hann sagðist vita nákvæm-
lega hvar þau væru, nefnilega á
svæðinu kringum Bagdad og
Tikrít, fæðingarbæ Saddams.
Þau fundust ekki
Forseti Bandarfkjanna myndi
aldrei gefa yfirlýsingar af þessu
tagi nema að baki honum stæði
leyniþjónustan með óyggjandi
upplýsingar. Ella fælist í slíkum yf-
irlýsingum mikil pólitfsk áhætta.
Áður en stríði var formlega lýst
yfir gegn frak voru sérstakar sveitir
; sendar inn í landið til að leita að
umræddum vopnum. Þau fundust
ekki.
Meðan Operation Freedom stóð
yfir, eins og stríðið í Irak var nefnt,
leituðu sérstakar sveitir stöðugt að
slíkum vopnum sem myndu sanna
staðhæfingar yfirvalda. Þau fund-
ust ekki.
Eftir að stríðinu lauk hefur lát-
laus leit staðið yfir í Irak að um-
ræddum vopnum gereyðingar, eit-
urs eða sýklahernaðar. Þau finnast
ekki. Samtals hefur verið leitað
sérstaklega á um 300 stöðum í írak
þar sem grunur lék á að slík vopn
væru geymd eða framleidd. Leitin
hefur engan árangur borið.
Yfirvöld í Pentagon hafa sagt að
leitin beinist nú einkum að fólki
sem gæti hugsanlega vísað á meint
vopn og minna væri leitað að felu-
stað slíkra vopna. John Bolton,
sem er háttsettur embættismaður í
stjórn Bush, hefur sagt að sannan-
ir um tilvist vopnanna muni finn-
ast og boðað að sérstök sveit skip-
uð 1400 tæknimönnum og sér-
fræðingum hvaðanæva úr heimin-
um verði sett á laggirnar til þess að
aðstoða herinn við leitina.
Time Magazine hafði í síðustu
viku eftir háttsettum herforingja
að búið væri að leita á öllum líkleg-
um stöðum frá Kúveit til Bagdad
og vopnin væru einfaldlega ekki
til. Newsweek hefur bent á að
þessi munur á yfirlýsingum annars
vegar og hins vegar sönnunar-
gögnum sé talsvert alvarlegur.
„Séu Bandaríkin farin að aðhyll-
ast stefnu sem býður upp á að
landið verði fyrra til að ráðast á
lönd sem ógna þvf eru lykilatriði
að upplýsingar leyniþjónustunnar
séu réttar. Hvemig getur landið
ráðist gegn einstökum hryðju-
verkamönnum vopnuðum kjarn-
orkuvopnum ef enginn getur
fundið þá?" sagði nýlega í blaðinu.
Verra en Watergate
Donald Rumsfeld hefur skipað
varnarmálaráðuneytinu að rann-
saka sérstaklega gæði og áreiðan-
leika upplýsinga leyniþjónustunn-
ar áður en ráðist var inn í frak.
Maureen Dowd, dálkahöfundur
New York Times, hefur líkt því við
að O.J. Simpson væri beðinn að
Ifinna morðingja konu sinnar.
Paul Krugman, sem skrifar dálka
um stjórnmál í New York Times,
hefur sagt að löngu sé tímabært að
stjórnvöld leggi fram sannanir sem
styðji fyrri yfirlýsingar þeirra.
„Hafi yfirlýsingar þeirra verið
rangar er stríðsreksturinn í heild
sinni versta hneykslið í saman-
lagðri bandarískri stjórnmálasögu.
Verra er Watergate og verra en
Íran-Kontra hneykslið."
John Dean, sem áður er vitnað
til, segir að verði það niðurstaðan
að yfirlýsingar Bush um vopnaeign
íraka hafi verið rangar, hvort sem
það var af ásetningi eða ekki, sé
leyniþjónustan annaðhvort
einskis virði eða menn fari vísvit-
andi rangt með upplýsingar henn-
ar í pólitískum tilgangi. Hvort sem
er telur hann að Georg Bush verði
að segja af sér hafi hann skrökvað
að þjóð sinni.
Byggtá:
Salon.com
Newsweek
Time Magazine
PACE
ÞAK ER
BETRA
ÞAK !
ÞENSLA 0G SAMDRATTUR VEGNA HITABREYTINGA
HAFA YFIRLEYTT í FÖR MEÐ SÉR FLÖGNUN, TÆRINGU
0G SPRUNGUMYNDUN. SLÍKT GETUR VALDIÐ ÞAKLEKA
0G STYTT VERULEGA ENDINGU ÞAKKLÆÐNINGAR.
HIÐ MIKLA TEYGJUÞOL PACE
ÞAKEFNANNA GERIR AÐ ÞAU
STANDAST ÁLAGIÐ OG ÞAKIÐ
ÞITT HELDUR ÁFRAM AÐ
VERA FALLEGT OG ÞÉTT