Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.2003, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 18.JÚLÍ2003 FRÉTTIR 13
Tíu látnir
BÍLSLYS: Tala látinna í bílslys-
inu í Santa Monica í Kaliforníu
í fyrradag, þegar aldraður
maður keyrði í gegnum
mannþröng á markaðssvæði,
er komin í 10. Síðasta fórnar-
lambið var rúmlega 7 mánaða
sveinbarn. Lögregla hefur enn
ekki tekið ákvörðun um hvort
ökumaðurinn verði ákærður
fyrir slysið.
Hryðjuverkamenn í íran
AL-QAEDA: Ráðamenn í
Kúveit hafa í fyrsta sinn viður-
kennt að Sulaiman Abu
Ghaith, fyrrum ríkisborgari
landsins og talsmaður Al-Qa-
eda, sé í haldi í (ran. Jafnframt
segja þeir að ríkisstjórn
Kúveits hafi hafnað tilboði rík-
isstjórnar (rans um að fá Abu
Ghaith framseldan vegna þess
að ríkisborgararéttur hans hafi
verið afturkallaður eftir árás-
irnar á Bandaríkin 11. septem-
ber 2001. (ranar lýstu því yfir í
júní að þeir hefðu nokkra
meðlimi í hryðjuverkasamtök-
unum í haldi. Sögur hermdu
þá að Abu Ghaith væri einn
þeirra og að jafnframt hefðu
þeir Saad bin Laden, son
Osama, í haldi. Það hefur hins
vegar ekki fengist staðfest.
Bjartsýni
NORÐUR-KÓREA: Líkur á að
viðræður um að fá Norður-
Kóreumenn til að hætta þróun
kjarnorkuvopna fari af stað
innan skamms hafa glæðst.
Bjartsýnin kemur í kjölfar þess
að Bandaríkjamenn hafa lýst
því yfir að kínversk stjórnvöld
hafi orðið vör við ákveðinn
sáttatón þegar þau ræddu við
Norður-Kóreumenn í vikunni.
Studabaker berst
ekki gegn framsali
Bandaríkjamaðurinn Toby
Studabaker, sem stakk af með
bresku 12 ára telpunni Shevaun
Pennington til Frakklands og
síðan Þýskalands, segist ekki
munu berjast gegn því að verða
framseldur til Bretlands þrátt
fyrir að eiga þar yfir höfði sér
ákæru um brottnám telpunnar.
Það gæti þýtt að Studabaker yrði
framseldur til Bretlands innan
tveggja vikna, svo framarlega sem
hann reynist ekki brotíegur við
þýsk lög, en í gær sagði hann
ffammi fyrir þýskum dómara að
hann hefði aldrei haft kynferðislegt
samneyti við Shevaun Pennington
og lengst af staðið í þeirri trú að
hún væri 19 ára.
Hiidegard Becker-Toussant, tals-
maður þýska saksóknaraembættis-
ins, sagði í gær að engar vísbend-
ingar lægju fyrir um það að Studa-
baker hefði framið kynferðisgiæp
eða nokkum annan glæp meðan
parið var í Þýskalandi.
„Samkvæmt þvf sem fram hefur
komið dvaldi hann hér aðeins í fá-
einar klukkustundir og þá aðeins í
lest og á leið til flugvallarins. Það er
TOBY STUDABAKER: Hann berst ekki gegn
framsali til Bretlands.
því ólíklegt að hann hafi gerst brot-
legur við þýsk lög,“ sagði talsmað-
urinn.
Studabaker sagði þýska dómar-
anum að hann hefði fyrst gert sér
grein fyrir því að þeirra væri leitað
eftir að hann las um það í dagblaði
í Strassborg og fyrr hefði hann ekki
vitað að hún væri aðeins tólf ára.
Eftir það hefði hann skilið Shevaun
eftir á flugvellinum í Stuttgart en
haldið sjálfur áfram til Frankfurt
eftir að hafa hringt tíl FBI.
Allir íþróttaviðburáir í beinni á risaskjám. Pnal. Eóður matseðill.
Tökum að okkur hópa, starfsmannafélög. Stórt og gntt dansgólf.
EEæjarlind 4 • 201 Kópavngur • 5ími 544 5514
Smáauglýsingar
leigumarkaðurinn
550 5000
Ö*§ MILLJÓNDOLLARAMÓTIÐ
^ 26 júlí hjá
þar sem 2 spila saman og betri boltinn telur
Leikið er
7JjJjJJjj£UlrJJ
gefur ferðavinninga fyrir lengsta upphafshöggið
og fyrir holu í höggi er glæsilegur frá að
andvirði
Tvö gjafabréf frá samtals að verðmæti
Tveir farseðlar með
lok móts verður dregið úr skorkortum og
fá þeir heppnu að spreyta sig á
Tveir GSM símar frá
Tveir farseðlar með
Tvær gjafakörfur frá
samtals
Tveir farseðlar með
Almennt þátttökugjald er
sem innihalda DVD myndir að verðmæti
Þú gætir unnið um
Glæsileg ‘*MSyS í lok móts fyrir
þátttakendur
S frá veitt
á öllum par 3 brautum
Skráðu þig núna á
í símí
www.milliondollartoui
lceland Express
Öruggur staður til að vera i