Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Side 2
2 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 2003
ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagiö DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRITSTJÓRl: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRriSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, simi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Rltstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar
auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureytl: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Arvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I
stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir
viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaösins
Banaslys á
Borgarfjarðarbrúnni
- frétt bls. 4
Rannsókn á láti ungrar
stúlku
- frétt bls. 6
Skólavörustríð
-frétt bls. 10-11
Neytendasamtökunum
boðnar milljónir króna
- frétt bls. 8-9
Nægjanlegt herlið í írak
— fréttir bls. 12
Viljaverk
- DV Sport bls. 28
Tjaldaði úti á götu
Lögregla var kvödd að götu í
Grafarholti á sunnudagsmorg-
un en árrisulir íbúar höfðu til-
kynnt um að fólk væri búið að
hreiðra um sig í tjaldi úti á götu.
Þegar að var gáð kom í ljós að
maður nokkur hafði slegið upp
tjaldi rétt utan byggðarinnar.
Hafði honum sinnast við eigin-
konu sína og hitnaði svo í kolum
að hann sá sitt óvænna, rauk á
dyr og tók tjaldið með sér.
Hugðist hann sofa í tjaldinu þar
til hægðist um heima hjá hon-
um. Ekki fer sögum af áhrifum
tjaldvistarinnar á heimilisfrið-
inn í Grafarholtinu en frá þessu
er greínt í dagbók lögreglunnar í
Reykjavík.
Húsnæðismál rannsökuð
Kæru IM vísað frá
RANNSÓKNIR: Undirritað
hefur verið samkomulag um
stofnun Rannsóknarseturs í
húsnæðismálum við Viðskipta-
háskólann á Bifröst. Gert er ráð
fyrir rannsóknarsetrið einbeiti
sér í fyrstu að hagrænum og
efnahagslegum rannsóknum á
sviði húsnæðismála, jafnhliða
því að vinna að víðtækri gagna-
öflun og úrvinnslu á sviði hús-
næðismála. Félagsmálaráð-
herra hefur þegar tryggt eina
milljón króna til verkefnisins en
fulltrúi, tilnefndur af honum,
ásamt fulltrúa (búðalánasjóið
og fulltrúa Viðskiptaháskólans
mynda stjórn rannsóknarset-
ursins. Sérsök rannsóknarstaða
verður fjármögnuð og verður
ráðið í hana í haust.
SAMNINGUR: Árni Magnússon fé-
lagsmálaráðherra, Guðmundur
Bjarnason, framkvæmdastjóri
íbúðalánasjóðs og Runólfur
Ágústsson rektor undirrita sam-
komulagið.
SKÓLAMÁL Félagsmálaráðu-
neytið hefur vísað kæru (s-
lensku menntasamtakanna á
hendur Flafnarfjarðarbæ frá en
kært var vegna riftunar á
samningi um rekstur leikskól-
ansTjarnaráss. Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar sagði upp samn-
ingi við (slensku menntasam-
tökin um rekstur leikskólans
Tjarnaráss í byrjun maímánað-
ar sl. Höfðu þá borist uppsagn-
arbréf frá 20 af 26 starfsmönn-
um skólans. Fjöldi foreldra
hafði jafnframt sent frá sér
sameiginlega yfirlýsingu um
að það væri vilji þeirra að sam-
tökin hættu rekstri skólans.Við
atkvæðagreiðslu í bæjarstjórn
greiddu fulltrúar Samfylkingar-
innar atkvæði með upp-
sögninni.
EfnahagsbrotadeildkrefurSamkeppnisstofnun um gögn vegna olíufélaganna:
Metið hvort hafin
verður opinber rannsókn
Efnahagsbrotadeild Ríkislög-
reglustjóra hefur krafið Sam-
keppnisstofnun um gögn
vegna rannsóknar hennar á
meintu samráði olíufélaganna.
Mun embættið í framhaldinu
taka afstöðu til þess hvort hefja
beri opinbera rannsókn á ætl-
uðum refsiverðum brotum olíu-
félaganna á samkeppnislögum.
Bogi Nilsson ríkissaksóknar rit-
aði Ríkislögreglustjóra, efnahags-
brotadeild bréf þann 21. ágúst. Þar
sagðist hann hafa talið sig knúinn, í
ljósi fjölmiðlaumræðu, til að leita
skriflega svara þann 15. ágúst hjá
Georg Ólafssyni, forstjóra Sam-
keppnisstofnunar, um hvort hann
teldi að fram væru komnar vís-
bendingar um svo alvarleg brot ol-
íufélaganna að viðurlagameðferð
væri komin út fyrir ramma sam-
keppnislaga. Segir Bogi að ekki
verði annað ráðið af svarbréfi Sam-
keppnisstofnunar frá 18. ágúst en
að stofnunin skorist undan því að
svara framangreindri spurningu.
Krafist er afrita aföll-
um gögnum sem Sam-
keppnisstofnun hefur
aflað frá og með hús-
leitum þann 18. desem-
ber 2001 hjá olíufélög-
unum Olíuverzlun ís-
lands hf., Olíufélaginu
hf. og Skeljungi hf.
í ljósi ummæla Samkeppnis-
stofnunar telur Bogi því að brostn-
ar séu forsendur fyrir hefðbundinni
hlutverkaskipun við rannsókn
slíkra mála. - „Þ.e. að Samkeppnis-
stofnun annist frumathugun á ætl-
uðum brotum á samkeppnislögum
í öllum tilvikum án afskipta ákæru-
valds eða lögreglu og meti hvenær
RANNNSOKN A OUUFELOGUNUM: Meint rannsókn á samráði olíufélaganna hefur nú tekið nýja stefnu eftir að Ríkislögreglustjóri krafði
Samkeppnisstofnun um öll gögn í málinu.
Bogi Nilsson rlkissaksókari. Georg Ólafsson.
ætíuð brot séu svo stórfelld að
ástæða sé tii að kæra hina brotíegu
tU refsingar."
Fer Bogi síðan ffam á það við
Ríkislögreglustjóra að hann afli
fullnægjandi gagna frá Samkeppn-
isstofnun svo hægt verði að taka af-
Jón H. Snorrason.
stöðu til hvort hefja beri opinbera
rannsókn á málinu.
Jón H. Snorrason, saksóknari
Ríkislögreglustjóra, sendi Sam-
keppnisstofnun í framhaldinu bréf
þann 25. ágúst þar sem Samkeppn-
isstofnun er krafin um gögn í mál-
inu. Þar er krafist affita af öUum
gögnum sem Samkeppnisstofnun
hefur aflað frá og með húsieitum
þann 18. desember 2001 hjá olíufé-
lögunum Olíuverzlun íslands hf„
Olíufélaginu hf. og Skeljungi hf.
Auk þess gögn sem kunna að hafa
verið hjá stofnuninni fyrir þann
tíma og varðað geta málið. Jafn-
framt er óskað eftir skýrslum og
öðrum gögnum sem stofnuninni
kunna að hafa borist vegna máls-
ins. Einnig er óskað eftir að Sam-
keppnisstofnun láti efnahagsbrota-
deild í té þau gögn sem kunna að
berast síðar og skýrslur sem stofn-
unin hefur boðað að hún ljiiki við á
næstu misserum.
Sjá einnig frétt á bls. 6
hkr@dv.is
Kröfu föðurins um frávísun hafnað
Héraðsdómur Reykjavíkur
ákvað í gær að hafna kröfu föð-
ur frá Egyptalandi um að vísa
máli hans frá þar sem ríkissak-
sóknari ákærir hann fyrir sif-
skaparbrot. Honum var gefið að
sök að hafa svipt barnsmóður
sína umsjá yfir dóttur þeirra er
hann meinaði henni för frá Eg-
yptalandi til íslands árið 2001.
Hann tók þá af stúlkunni vega-
bréf og farseðla en móðirin var
með forsjá yfir stúlkunni sam-
kvæmt íslenskum lögum.
Samkvæmt þessu verður þetta
sérstaka mál tekið til efnislegrar
meðferðar með vitnaleiðslum og
flutningi á næstunni. í úrskurði
Héraðsdómur álítur
hvað sem öðru líður að
refsilögsaga sé efnis-
legt refsiskilyrði - því
verði að taka málið
efnislega fyrir.
héraðsdóms segir að fyrir liggi að
faðirinn hafi íslenskt ríkisfang en
hann hafi einnig egypskt vegabréf.
Þá liggi fyrir dóminum upplýsingar
um að það athæfi ákærða, þótt
sannað reynist, varði ekki við eg-
ypsk lög.
f úrskurði Péturs Guðgeirssonar
héraðsdómara segir að faðirinn
byggi kröfu sína um frávísun á því
að ekki skuli refsa íslenskum þegni
út af verknaði sem ákært er fyrir þar
sem hann hafi ekki verið refsiverð-
ur að egypskum lögum. Faðirinn
hafi alls eldd verið að brjóta af sér í
heimalandi sínu með því að taka
vegabréfið og farseðil stúlkunnar.
Þetta fellst ákæruvaldið ekki á og
krefst þess að dæmt verði í málinu
efnislega.
Héraðsdómur álftur hvað sem
öðru líður að refsilögsaga sé efnis-
legt refsiskilyrði - því verði að taka
málið efnislega fyrir áður en kveðið
er í raun upp úr með það hvort ís-
lensk stjómvöld hafi refsilögsögu í
þvf eða ekld. ottar@dv.is