Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST2003
Ferðamenn sátu fastir
UMFERÐIN: Þrír erlendir ferða-
menn sátu fastir í sandinum við
Hjörleifshöfða á dögunum. Þeir
gátu sig hvergi hreyft fyrr en
björgunarsveitin Víkverji frá Vík
mætti á staðinn með tæki og
tól. Víkverjar hafa þurft að fara
ófáar ferðirnar austur að Hjör-
leifshöfða í sumar enda algengt
að ökumenn festi sig á þessum
slóðum. Áður en komið er að
Hjörleifshöfða er skilti sem allir
ökumenn ættu að skilja jafnvel
þótt það sé á íslensku. Erlendu
ferðamennirnir sem hér um
ræðir voru á fjórhjóladrifnum
bílaleigujeppa og hefðu því átt
að komast leiðar sinnar.
Gleymst hafði hins vegar að
segja þeim að setja þarf fram-
drifslokurnar á þegar nota á
fjórhjóladrifið. Því fór sem fór.
BJÖRGUN: Vikverjar aðstoða erlenda ferðamenn í vanda.
DV-mynd Sigurður Hjálmarsson
Níu veiddar
HVALVEIÐAR: Níu hrefnur hafa
verið veiddar af þeim 38 sem
fyrirhugað er að veiða sam-
kvæmt rannsóknaráætlun
Hafrannsóknastofnunar. Veiðin
skiptist þannig að Halldór Sig-
urðsson (S hefur veitt fjórar, Sig-
urbjörg BA þrjár og Njörður KÓ
tvær. Mælingar og sýnataka til
margvíslegra rannsókna hafa
farið fram um borð í bátunum.
Banaslys á Borgarfjarðarbrú:
Talið að framdekk flutninga-
bílsins hafi hvellsprungið
Þrítugur karlmaður beið bana
þegar vöruflutningabifreið
með dráttarvagni, sem hann
ók, fór út af Borgarfjarðarbrú í
gærmorgun.
Lögregla í Borgarnesi fékk til-
kynningu um slysið klukkan 10.15.
Flutningabíllinn var á suðurleið og
var kominn langleiðina yfir brúna
þegar slysið varð. Talið er að fram-
dekk hafi hvellsprungið og öku-
maðurinn misst stjórn á bílnum í
kjölfarið. Bíllinn rásaði yfir á rang-
an vegarhelming, steyptist í gegn-
um vegrið brúarinnar og hvarf
sjónum en einungis glitti í hluta
dráttarvagnsins. Tætlur af dekkinu
fundust á brúnni í gær.
Flutningabíllinn vará
suðurleið og var kom-
inn langleiðina yfir
brúna þegar slysið
varð.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
þegar í stað kvödd á staðinn og
flutti hún með sér kafara úr slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins. Auk
þess voru björgunarsveitir af Akra-
nesi, úr Borgarnesi, Borgarfirði og
Reykjavík kallaðar út. Kafarar
fúndu stýrishúsið með ökumann-
inum látnum skömmu fyrir hádegi.
Tildrög slyssins eru í rannsókn
hjá lögreglunni í Borgarnesi en
jafnframt var rannsóknarnefnd
umferðarslysa gert viðvart um slys-
ið. Rannsóloiarnefndin mun meðal
annars skoða styrktarþol vegriðs-
ins.
Alls tóku á þriðja tug björgunar-
sveitamanna þátt í aðgerðum og
' V
1 . .1 I ’j 1
1 j. i i 1 - ... |g| í T i <i 1 •• | ;
Á SLYSSTAÐ: Tugir manna unnu að björgunarstörfum á Borgarfjarðarbrú í gær. Kafarar
leituðu flaksins og var stýrishúsið hift upp á brúna skömmu fyrir hádegi. Ökumaðurinn
fannst látinn (stýrishúsinu. Talið er að framdekk hafi sprungið og á myndinni til hægri
sjást tætlur af dekki sem fundust á brúnni. DV-myndir Eggert
meðan menn voru að fullvissa sig
um að ekki hefðu verið farþegar í
bílnum.
voru notaðir þrír slöngubátar við
leitina. Slöngubátarnir voru m.a.
notaðir við brúna, þegar stýrishús-
ið var híft upp, og við leit í lóninu á
Forstjóri BYKO meðal kaupenda
Fjárfestingarfélagið Straumur
hefur verið umsvifamikið í við-
skiptum á sfðustu vikum en
Kaupþing-Búnaðarbanki seldi
8% hlut sinn í félagini^ á föstu-
dag.
Staðfest hefur verið við DV að
kaupendur séu tveir, þ.e. Straum-
borg ehf. og Eyrir ehf.
Straumborg, sem er í eigu Jóns
Helga Guðmundssonar, forstjóra
BYKO, keypti samkvæmt þessum
heimildum tæplega 5% af hlut
Kaupþings-Búnaðarbanka. Þá
keypti Eyrir ehf., sem er að stærst-
um hluta í eigu Þórðar Magnússon-
ar, ríflega 3% af áðumefndum hlut.
Straumur hefur verið í ömm vexti
og víða komið við í viðskiptalífinu
að undanförnu. í gær var m.a. flagg-
að vegna umtalsverðra viðskipta
Jón Helgi Guðmundsson.
með bréf í Eimskipafélaginu. Þar
jók Fjárfestingarfélagið Straumur
hf. hlut sinn í félaginu úr 13,8% í
15,8%. Gengi bréfa Eimskips hækk-
aði á markaði í gær um 2,4%.
Fyrir kaupin átti Straumur
709.347.008 hluti í félaginu og jók
hlutafjáreign sína um 105.125.000
hluti og á því eftir kaupin
814.472.008 hluti í félaginu. Hefur
hlutabréfaeign Straums í Eimskip
vaxið ört að undanförnu, en í
skráningarlýsingu félagsins í júlí
kemur fram að eignarhluturinn 31.
maí var skráður 10,96%. Þann 10.
júlí var eignarhluturinn svo kom-
inn í 13,29% eða 684.638.904 krón-
ur að nafnvirði.
í síðustu skráningarlýsingu fé-
lagsins kemur fram að 4.500 hlut-
hafar vom f Straumi þann 10. júlí.
Heildarhlutafé f félaginu þá var
3.196.859.400 krónur. Þá vom 10
stærstu hluthafarnir með 74,88%
hlutafjár. Þar var íslandsbanki
stærstur með 22,43% hlutafjár og
Landsbanki íslands með 17,90%.
Kaupþing-Búnaðarbanki hf. var þá
þriðji stærsti eigandinn með 8,04%
hlut. Kaupþing-Búnaðarbanki seldi
síðan þann 22. ágúst, eins og áður
sagði, allt hlutafé sitt í félaginu sem
var þá 8,01%, að nafnverði
255.943.873 krónur.
Hlutafé hækkað
Þá var einnig tilkynnt í Kauphöll
íslands í gærmorgun að föstudaginn
22. ágúst hefði stjórn Fjárfestingar-
félagsins Straums hf. ákveðið að
hækka hlutafé félagsins um
592.336.736 krónur að nafnverði.
Hlutafé félagsins var fyrir hækkun-
ina 3.196.859.400 kr. að nafnverði en
er eftir hækkunina 3.789.196.163
krónur að nafnverði. Hið nýja hluta-
fé hyggst félagið nýta til greiðslu fyr-
ir hluti í Framtaki Fjárfestingabanka
hf., sbr. tilkynningu félagsins sem
dagsett var 19. júní. Þann dag var til-
kynnt að félagið hefði gert samninga
um kaup á meirihluta hlutafjár í
Framtaki Fjárfestingabanka hf.,
samtals að nafnverði 1.450.233.197
krónur, sem svarar til 57,08% hluta-
íjár í Framtaki Fjárfestingarbanka
hf. og hefur í för með sér yfirtöku á
félaginu.
Þann 20. ágúst var tilkynnt í
Kauphöllinni um viðskipti með eig-
in bréf í Straumi sem áttu sér stað
19. ágúst. Þar var um að ræða við-
skipti vegna yfirtöku Straums hf. á
Brú fjárfestingum hf.
hkr@dv.is