Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST2003
Nýtt hættumat á Patreksfirði
Kröfur afskrifaðar
OFANFLÓÐ: Um sextíu hús á Pat-
reksfirði eru á hættusvæði vegna
ofanflóða samkvæmt tillögu að
nýju hættumati. Hefur húsum á
hættusvæði fjölgað frá eldra
hættumati en í nýja matinu eru
strangari kröfur gerðar um ör-
yggi íbúanna. Hættan vegna
snjóflóða er mest við Urðir og á
hluta hafnarsvæðisins annars
vegar og neðan Geirseyrargils
hins vegar. Hætta á aurskriðum
og grjóthruni er og töluverð við
efstu hús með allri byggðinni
utan Litladalsár. Gunnar Guðni
Tómasson, formaður hættumats-
nefndar Vesturbyggðar, og Krist-
ján Ágústsson, jarðeðlisfræðing-
ur á Veðurstofu Islands, kynna
tillögu að hættumati fyrir íbúum
Patreksljarðar í kvöld og svara
fyrirspurnum.
VIÐSKIPTI: Eignarhaldsfélagið
Brú ehf., sem á fasteignina
Hótel Selfoss, hefur kynnt al-
mennum kröfuhöfum tillögu
þess efnis að 225 milljóna
króna eldra hlutafé félagsins
verði fært niður í núll og 90
prósent krafna á hendur fé-
laginu verði afskrifuð. Afgang-
inum verði hins vegar breytt í
hlutafé í Brú ehf. Við þá að-
gerð stæði eftir um hálfur
milljarður í veðskuldum í Hót-
el Selfossi. Kaupfélag Árnes-
inga á stærstan hlut í Brú, 63
prósent, en kaup og endur-
bygging á Hótel Selfoss er
meginástæða fyrir greiðslu-
stöðvun sem KÁ hefur verið í
frá 14. júlí. Kröfuhafar í Brú
eru um 50.
Mótmæli
VIRKJUN: Mótmælafundurgegn
náttúruspjöllum á hálendinu
verður haldinn á Austurvelli í
dag kl. 18. Fundarmenn munu
beina spjótum sínum að fram-
kvæmdum við Kárahnjúka og
meðal ræðumanna verða Ásta
Arnardóttir og Ósk Vilhjálms-
dóttir en þær hafa lóðsað ferða-
menn um svæðið sem stendur
til að sökkva í sumar.
Skýrslur Samkeppnisstofnunar
af starfsmönnum olíufélaganna:
Standast ekki
við sakfellingu
Mikill vafi leikur á um hvort
nota megi skýrslur sem teknar
hafa verið af starfsmönnum ol-
íufélaganna hjá Samkeppnis-
stofnun við hugsanlega sakfell-
ingu forsvarsmanna olíufyrir-
tækjanna.
Gestur Jónsson, lögmaður Skelj-
ungs hf., segir að forsvarsmenn
þessara fyrirtækja hafi gefið skýrsl-
ur um málið hjá Samkeppnisstofn-
un án þess að hafa réttarstöðu sak-
borninga. „Það er svolítið ein-
kennilegt ef slíkar skýrslur verða
síðan grundvöllur rannsóknar sem
hefur það að markmiði að sakfella
þessa einstaklinga."
Saksóknari Ríkislögreglustjóra,
Jón H. Snorrason, hefur krafið
Samkeppnisstofnun um öll gögn er
varða rannsókn á meintum brotum
olfufélaganna á samkeppnislögum.
Þar á meðal eru skýrslur sem tekn-
ar hafa verið af starfsmönnum
Skeljungs hf., Olíuverzlunar íslands
hf og Olíufélagsins hf. Slíkar skýrsl-
ur, sem teknar eru af fulltrúum
Samkeppnis-
stofnunar, hafa
ekki sama gildi
og skýrslur sem
teknar eru af
lögreglu. Starfs-
mennirnir
höfðu ekki
möguleika á því,
við skýrslutöku
Gestur Jónsson. Samkeppnis-
stofnunar, að
njóta stöðu grunaðs manns eins og
við rannsókn sakamáls hjá lög-
reglu.
Gestur segir að við blasi að erfitt
geti verið við þetta mál að eiga, ekki
síst þar sem ætlunin virðist vera að
hafa rannsóknina á tveimur stöð-
um. Því hljóti að koma upp alls
konar afmörkunarvandamál í því
sambandi.
- Er hugsanlegt að menn verði að
henda þessum skýrslum til hliðar?
„Ég get ekki ímyndað mér að það
standist nokkra skoðun að skýrslur
eins og þessar, sem gerðar eru hjá
Samkeppnisstofnun, geti orðið
grundvöllur refsimeðferðar gegn
einstaklingunum sem þær skýrslur
gáfu.“
Segir Gestur að þær skýrslur hafi
verið teknar á allt öðrum forsend-
um en ef um sakamál hefði verið að
ræða. Menn hafi verið í góðri trú
um að þeir væru að vinna með
Samkeppnisstofnun við að upplýsa
mál. hkr@dv.is
OLÍUFÉLÖGIN: Starfsmenn félaganna gáfu Samkeppnisstofnun skýrslur í góðri trú en
voru ekki í stöðu grunaðra.
TVÍEYKIÐ: Ingibjörg Sólrún hefur íhugað (sumar hvort hún eigi að bjóða sig fram
gegn Össurl.
Össur um hugsanlegt framboð Ingibjargar Sólrúnar:
Formaður ekki
valinn í skoðana-
könnunum
Tilkynnti um lát konu
Óvissa er um dánarorsök rúm-
lega tvítugrar konu sem fannst iátin
í íbúð í svokölluðu Skuggahverfi í
miðborginni í gærkvöld. Lögreglan
segir að hér sé langt því frá um að
ræða dæmigert mál sem hægt sé að
líkja við þau manndrápsmál sem
átt hafa sér stað á síðustu árum. Á
hinn bóginn er rúmlega þrítugur
maður í haldi - að minnsta kosti á
meðan frumrannsókn fer fram - og
þess er beðið að læknisfræðilegar
upplýsingar fáist um dánarorsök-
ina. Þótt ýmislegt komi til greina og
hvað sem síðar kann að verða leitt í
ljós leikur engu að síður grunur á
um að látið hafi borið að með
óeðlilegum hætti.
Það verður ekki fyrr en á morgun
sem krufning mun geta leitt í ljós
hvernig lát konunnar bar að. Mað-
urinn sem er í haldi tilkynnti að
hann teldi að konan væri látin.
Kom þá lögreglan á staðinn en í
kjölfarið var konan úrskurðuð látin
og maðurinn handtekinn. Sam-
kvæmt upplýsingum DV fannst
mar á líkinu. Hvað sem því líður er
það engin staðfesting á átökum eða
því að látið hafi borið að með vo-
veiflegum hætti.
Lögreglan telur engu að síður
ástæðu til að rannsaka þetta mál
rækilega. Þannig verður væntan-
lega kannað hvort framburður til-
kynnandans kunni að breytast með
hliðsjón af nýjum atriðum sem
kunna að verða leidd í ljós, ekki síst
þegar einhverjar krufningsniður-
stöður liggja fyrir.
Lögreglan getur haldið mannin-
um í sólarhring án þess að fá úr-
skurð um gæsluvarðhafd. Síðdegis
eða í kvöld mun ákvörðun liggja
fyrir um það hvort maðurinn verð-
ur leiddur fyrir dómara og þess
krafist að hann verði úrskurðaður í
frelsissviptingu meðan á rannsókn
stendur næstu dagana.
Handskorin og handmáluö kristalljós.
Hágæða Ijósakrónur.
Frí ráðgjöf, heimsending
og samsetning.
vy ivj.
Wtw /frá Téki
Skúlagata 10 • 101 Reykjavík • Sími 562 0900 & 894 0655 • www.bestfratekk.ls
Von er á yfirlýsingu frá Ingi-
björgu Sóirúnu Gísladóttur í
dag um það hvort hún býður
sig fram til formanns Sam-
fylkingarinnar á landsfundi
flokksins í haust.
f skoðanakönnun sem Gallup
gerði fyrir stuðningsmenn Ingi-
bjargar Sólrúnar dagana 19.
júní til 15. júlí og birt var í gær
kemur fram að 87% stuðnings-
manna Samfylkingarinnar, sem
taka afstöðu, segjast vilja fá
Ingibjörgu sem formann en
13% Össur Skarphéðinsson.
„Auðvitað hefði ég viljað sjá í
þessari niðurstöðu meira fylgi, “
sagði össur Skarphéðinsson í
gær. „En könnunin var tekin í
júní og júlí í kjölfar kosninga-
baráttu sem byggðist á forsætis-
ráðherraefni okkar. Eðlilega
voru menn að tjá hollustu sfna
við forsætisráðlierraaefnið."
Össur segir að í niðurstöð-
unni birtist mikill vilji til að
tryggja Ingibjörgu sterkan sess í
flokknum, sem sé eðlilegt eftir
að þau tóku að sér að vera for-
ystutvíeyki í Samfylkingunni.
Fyrsta skrefið í þeim efnum liafi
verið tekið í sumar þegar Ingi-
björgu var falið að móta fram-
tíðarstefnu Samfylkingarinnar.
„Ffokkurinn fól mér á sínum
tíma að veita honum forystu
þegar hann var í öldudal og
mældist í 11-14% í könnunum,
og um áramót var hann kominn
í 32%. Ég sagði skömmu síðar
að ég myndi leggja mín verk í
dóm floldcsmanna, því það eru
þeir, en ekki kannanir, sem
velja formann. Það er virkt lýð-
ræði í Samfylkingunni og hún
hefur aldrei hlaupið á eftir
könnunum," segir Össur.
í viðtali við fréttastofu Sjón-
varps 12. janúar síðastliðinn
sagðist Ingibjörg Sólrún, sem þá
hafði nýverið ákveðið að fara í
framboð tU Alþingis, ekki stefna
á formennsku í flokknum. „öss-
ur er formaður, ég styð Össur í
því, í þeirri formennsku. Tel
hann hafi unnið þarna mjög
gott starf og það stendur ekki til
að breyta því á landsfundinum í
haust.“
Ekki náðist í Ingibjörgu Sól-
rúnu í morgun.
ottar@dv.is