Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Page 9
---------- —j-------------------------------- -----■— -----—
ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST2003 FRÉTTIR 9
Jón Asgeir Jóhannesson:
Eðlilegt að efla neytendavernd
Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, segir eðlilegt að
fyrirtækið freisti þess að efla
neytendavernd í landinu.
„Ég tel að það sé bæði gott fyrir
kaupmenn og neytendur. Við vinn-
um ekki á móti neytendum heldur
með þeim þannig að það var ekkert
óeðlilegt við þetta. Neytendur
leggja fé í Pokasjóð, ekki kaup-
menn, og eðlilegt að eitthvað af því
fé renni til neytendaverndar," segir
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Aðspurður hvort hann hafi ekki
talið orka tvímælis að bjóðast til
þess í bréfi, sem hann undirritaði
sem forstjóri Baugs, að styrkja
samtök sem höfðu ítrekað gagn-
rýnt Baug harðlega svarar Jón Ás-
geir: „Þú getur skoðað hvað Jó-
hannes [Gunnarsson] hefur látið
hafa eftir sér fyrir og eftir greiðsl-
urnar. Það hefur síst minnkað í
honum baráttuþrekið - sem er
bara gott.“
Ekkert varð af styrkveitingum
Pokasjóðs til Neytendasamtak-
anna fyrr en löngu eftir að Jón Ás-
geir setti hugmyndina fram. „Ég
sat bara einn eða tvo fundi í stjóm
sjóðsins og síðan tók Jóhannes
[Jónsson] við. Þannig að ég fylgdi
málinu ekki eftir. En mér fannst
þetta þrælgóð hugmynd og ég
bendi á að við höfum um margra
ára skeið keypt styrktarlínur í
Neytendablaðinu.“
Jón Ásgeir segir að ekkert hafi
vakað fyrir sér í þessu máli annað
en velvilji gagnvart samtökum
neytenda. „Það er nú einu sinni
þannig að það er mjög gott að
hafa gott aðhald frá þessum aðil-
um - og neytendum - á hverjum
degi.“
„Þeir verða bara að álcveða það,
ég sit ekki í stjórn," segir Jón Ás-
geir, spurður um það hvort hann
telji að Pokasjóður eigi að bjóða
föst framlög á borð við þau sem
hann nefndi í bréfi sínu árið 2000.
Sjóðurinn setur nú það skilyrði að
Neytendasamtökin sæki um styrk
til tiltekinna verkefna en að því
vilja samtökin ekki ganga.
ÞREKfÐ SfST MINNKAÐ: Jón Ásgeir segist
fagna því að Neytendasamtökin berjist af
sama þunga og fyrr fyrir hagsmunum
neytenda, óháð öllum greiðslum úr Poka-
sjóði.
Nýjar tölvur
Jóhannes segir að ein milljón af
styrknum hafi farið í að kaupa nýjar
tölvur - og sjálfúr formaðurinn vinn-
ur á tölvu sem keypt var fyrir fé úr
Pokasjóði verslunarinnar. Áfgangur-
inn - 3 milljónir - fór í að ráða utan-
aðkomandi aðila til að vinna tvær
slcýrslur um stöðu neytenda, annars
vegar á fjármálamarkaði og hins
vegar á tryggingamarkaði. Jóhannes
segir að skýrslnanna sé að vænta
fljótlega og fullyrðir að þær muni
vekja mikla athygli.
Hætt við verkefni um
matvörumarkaðinn
Jóhannes upplýsir að þar sem
Samtökin notuðu eina
milljón af styrknum til
að kaupa nýjar tölvur -
og sjálfur formaðurinn
vinnur á tölvu sem
keypt var fyrir fé úr
Pokasjóði.
upphæðin var lældcuð úr fimm millj-
ónum í fjórar hafi Neytendasamtöíc-
in hætt við verkefni um „aðhald á
matvörumarkaðnum". Hannútskýr-
ir þá áicvörðun: „Það var mat okkar
að þó svo að það sé samþjöppun á
matvörumarkaði sé miklu meiri
samkeppni fyrir að fara þar en á
trygginga- og peningamarkaði. Við
töldum því trygginga- og peninga-
markaðinn miídlvægari."
Hann segir hins vegar af og ffá að
stjórn Pokasjóðs hafi haft nokkuð
með þessa ákvörðun að gera.
Benda má á að samkvæmt bréfi
Jóns Ásgeirs ætlaðist hann beinh'nis
til þess að samtökin sinntu aðhaldi á
matvörumarkaði fyrir styrkféð úr
Pokasjóði, enda segir hann í bréfinu:
ið „hans eigin persónulegu hugleið-
ingar" - þótt hann hafi þá verið í
stjóm Pokasjóðs.
„Þetta kom til umræðu í sjóðnum
en menn vom ekki á eitt sáttir um
það í fyrstu - það vom elcki allir jafn-
hrifnir af málinu. Samkvæmt þá-
gildandi reglum mátti aðeins styrkja
umhverfismál og breyting á því -
sem Bónus-menn lögðu áherslu á -
kom ekki til framkvæmda fýrr en í
fyrra."
Bjami segir að það hafi aldrei
komið til greina af hálfu sjóðsins að
styrkja almennan rekstur Neytenda-
samtakanna heldur aðeins sérstök
tímabundin verkefni á sviði neyt-
endaverndar, enda séu slíkir styrkir
eðlilegir að hans mati. (Engu að síð-
ur fór ein milljón af styrknum í
tölvukaup.) Að öðm leyti
hafi sjóðurinn ekki skipt
sér af ráðstöfun styrks-
ins.
Búið spil
Upphafleg hugmynd
Jóns Ásgeirs um 5 milljóna
króna styrk á ári varð ekki að
veruleika; sjóðurinn hefúr
ákveðið að veita elcki Neyt-
endasamtökunum aftur styrk
nema gegn því að hafa nokkuð
um það að segja í hvað honum
er varið. Nú verða Neytendasam-
tökin því að sækja um, rétt eins og
hver annar.
„Þegar ég ámálgaði við Pokasjóð
það yrði framhald á þessu
kom skýrt fram að við yrðum að
senda inn umsólcn og að verkefnið
yrði að heyra undir þá fjóra mála-
flokka sem sjóðurinn styrkir," segir
Jóhannes Gunnarsson. „Það kemur
aUs ekki tU greina vegna þess að þá
væm þeir farnir að meta verkefnin
og þar með værum við að afsala
okkur filuta af sjálfstæði okkar."
olafur@dv.is
Neytenda-
samtökin gerðu grein
fyrir styrknum f téðri starfs-
skýrslu, sem gefin var út í fyrrahaust
og aftur í ársreikningi fyrir 2002. í
starfsskýrslunni segir reyndar að
„mjög almennur stuðningur" hafi
verið við málið í stjórninni en ekkert
er minnst á efasemdaraddir sem þar
komu ffam um ógnun við sjálfstæði
samtakanna. Þá segir í skýrslunni að
frumkvæðið hafi komið frá „for-
ráðamönnum þessa sjóðs" en ekld
að það hafi komið í bréfi undirrit-
uðu af forstjóra Baugs.
„Ég hefði frekar vUjað fá þetta bréf
ÁTÖK íSTJÓRN: „[Sumir stjórnar-
menn] töldu að hér vaeri hætta á
ferð fýrir samtökin að þiggja fé
frá Baugi og fleiri verslunum,
þetta gæti minnkað tiltrú á
samtökin og skaðað ímynd
þeirra. Aðrir töldu að sú hætta
væri ekki svo mikil að sam-
tökin yrðu háð þes^um styrk
eða að hann gæti haft áhrif
á afstöðu samtakanna í
framtíðinni," segir í fund-
argerð af stjórnarfundi í
Neytendasamtökunum.
„... aðhald neyt-
enda er okJcur
eins milcilvægt og
aðhald hluta-
bréfamarkaðar-
ins..."
Leynd hjá
sjóðnum
Það vekur
athygli að
hvergi er
minnst á
styrkinn
til Neyt-
endasamtak-
anna á vef Pokasjóðs en
þar er þó að finna lista yfir alla aðra
styrkþega árið 2002. Sem fyrr segir
var hér um að ræða þriðja hæsta
framlagið úr sjóðnum árið 2002
(miðað við 4 milljónir). Ekki var
heldur .minnst á styrkinn á blaða-
mannafundi um sumarið þegar
greint var frá útlilutun sjóðsins. Má
þó ætla að hann hefði þótt allrar at-
hygli verður.
Bjami Finnsson, stjórnarformað-
ur Pokasjóðs, gat ekld gefið DV skýr-
ingu á þessu en minnti að málið
hefði ekki verið frágengið þegar út-
hlutað var í júní. í starfsskýrslu
Neytendasamtakanna segir hins
vegar að samningar hafi náðst í lok
maí.
kvæði í mál-
inu. „Þau ætluðu að
gera eitthvert átak í trygginga-
málum, nefndu það við okkur og
stjóminni leist ágætlega á að leggja
eitthvað til þeirra rnála," segir
Bjarni.
Þegar hann er minntur á fmm-
kvæði forstjóra Baugs segir Bjami að
bréf Jóns Ásgeirs hafi ekki verið á
vegum sjóðsins heldur hafi hann
sent það í eigin nafni - það hafi ver-
frá Pokasjóði en stjórnanda eins af
fyrirtækjunum innan hans, ég fer
ekkert í felur með það,“ segir Jó-
hannes. „En eftir það átti ég bara
samskipti við starfsmann og for-
mann Pokasjóðs."
Umdeilt í sjóðnum
Bjami Finnsson segir aðspurður
að Neytendasamtökin hafi átt fmm-
TILBOÐIÐ: „Ég hef áhuga á því að við
leggjum 5 milljónir á ári til að efla Neyt-
endasamtökin, því ég held að sterkt að-
hald neytenda geri fyrirtækin meðvitaðri
og hæfari," segir Jón Ásgeir Jóhannesson í
bréfi til formanns samtakanna.
Pokasjóður verslunarinnar:
„Öeðlileg skattlagning á neytendur"
Um það bil 80-90% allra mat-
vöruverslana greiða til Poka-
sjóðs verslunarinnar, alls um
170 verslanir. f sjóðinn rennur
um helmingur af andvirði
hvers plastpoka, eða um 80
milljónir króna. Hinn helming-
urinn er virðisaukaskattur og
kostnaðarverð til verslana.
Neytendasamtökin hafa gagn-
rýnt að lagt sé á verð innkaupapoka
með þessum hættí. Samtökin kalla
þetta „óeðlilega skattlagningu á
neytendur" en þáðu þó 4 milljónir
króna úr sjóðnum með samkomu-
lagi við stjórn hans í fyrra.
í stjóm Pokasjóðs em Bjarni
Finnsson fyrir Kaupmannasamtök
íslands, Sigurður Á. Sigurðsson
fyrir kaupfélögin og Samkaup, Jó-
hannes Jónsson íyrir Baug og
Höskuldur Jónsson fyrir ÁTVR.
60% sameiginlega
Af tekjum sjóðsins er 60% út-
Jilutað sameiginlega en 40% em
séreignarhluti sem er úthlutað af
hverri verslun. Meðalstyrkur úr
sameiginlegri úthlutun i fyrra var
ríflega 800.000 krónur. Alls var
veittur 51 styrkur til margvíslegra
félaga og samtaka. Af þeim fjöl-
mörgu sem fengu styrk má af
handahófi nefna Landssamband
flogaveikra, Harald örn Ólafsson,
Umhyggju, Nonnahús, Félag ís-
lenskra teiknara, Vímulausa æsku
og Hjálpræðisherinn. Tveir hæstu
styrkimir, 6 og 7 milljónir króna,
mnnu til skógræktarverkefna.
Styrkirnir em ekki veittir sem al-
mennt framlag heldur aðeins í
tengslum við tiltekið verkefni. í
styrkumsókn þarf þess vegna að
koma fram ítarleg lýsing á því
verkefni sem sótt er um fé til,
framkvæmdaáætlun, kostnaðar-
áætlun og upplýsingar um hvernig
fjárstyrknum verður varið ef til út-
hlutunar kemur.
EFTIRTALDAR VERSLANIR
STANDA AÐ POKASJÓÐNUM
SAMKVÆMT UPPLÝSINGUM
Á VEF POKASJÓÐS:
10-11
11-11
ÁTVR
Bónus
Eskikjör, Eskifiröi
Hagkaup
Hornið, Selfossi
IKEA
Kaupfélag Héraðsbúa
KH Blönduósi
Kaupfélag SteingrimsQarðar, Hólmavík
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga
KÁ
Krónan
Melabúðin
Nóatún
Nýkaup
Samkaup
Sparkaup
Verslunin Grund, Flúðum
Verslunin Vfsir, Blönduósi
Þín verslun, Seljabraut