Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST2003 FRÉTTIR 11
íyrir að Office 1 hafi lækkað verð
köríunnar um 18,9% dugði það
ekki til að bjóða ódýrari körfu en
Griffill.
Hagkaup lækkuðu verð körfunn-
ar um 13,8 prósent milli kannana,
Fjarðarkaup um 0,9 prósent, Penn-
inn/Eymundsson um 15,8 prósent
og Skólavörubúðin um 5,3 prósent.
Verð í Máli og menningu er hins
vegar 7,5 prósentum hærra en í síð-
ustu könnun DV. Verð í Odda og
Krónunni var ekki kannað í síðustu
viku og því ekki um samanburð
milli kannana að ræða. Ekki verður
annað ráðið af þessari verðkönnun
DV en að könnun blaðsins í síðustu
viku hafi haft áhrif á verð skólavara
til hagsbóta fyrir neytendur.
Af þeim 16 vörum sem voru með í
samantekt blaðsins voru 9 ódýrastar
í Griffli, fjórar í Office 1 og þrjár í
báðum þessara verslana. Vörur voru
oftast dýrastar í Máli og menningu.
Verð körfunnar í Skólavörubúð-
inni var ekki rétt í síðustu verðkönn-
un og var leiðrétting birt í blaðinu á
föstudag. Skólavörubúðin hefúr þó
lækkað verð körfunnar um 5,3 pró-
sent milli kannana.
Gott samstarf
Verðkönnun DV á skólavörum f
gær fór fram á sama hátt og könnun
blaðsins í liðinni viku. Starfsmaður
blaðsins bað um verslunarstjóra eða
fulltrúa hans þegar hann kom í við-
komandi verslun, gerði grein fyrir
erindi sínu og fékk aðstoð við að
finna ódýrustu vörurnar sem versl-
unin bauð upp á í 16 vöruflokkum.
Að því loknu voru vörurnar teknar
rakleiðis að kassa, skannaðar og
starfsmanni blaðsins afhentur
strimill. DV mætti alls staðar góðum
samstarfsvilja og kann starfsfólki
verslananna bestu þakkir fyrir.
Ekki var gerður samanburður á
gæðum þeirra vara sem keyptar
voru né þjónustu sem hver verslun
býður en þjónu’stustig verslananna
er mjög mismunandi. I aðeins einu
tilviki var beðið um sérstakt vöru-
Ódýrasta skólavöru-
karfan fékkst í Griffli
þar sem hún kostaði
667 krónur. Næst-
ódýrasta karfan fékkst
í Office 7 þarsem hún
kostaði 698 krónur.
merki, Boxy-strokleður.
Áralöng hefð
Að gefnu tilefni skal þess getið að
DV hefur um árabil kannað verð á
skólavörum áður en skólastarf hefst
á haustin. í könnun DV í síðustu
viku og í gær var í engu brugðið út af
þeirri venju. Könnun DV átti því
ekki að koma neinum á óvart.
Innkaupalistinn gefur ágæta
mynd af dæmigerðum innkaupa-
lista tugþúsunda skólabarna á ís-
landi. Leitað er eftir ódýrustu vör-
unum á þeim lista en ekki tekið tillit
til gæða vöru eða þjónustu.
DV birtir niðurstöður verðkann-
ana sinna með skýrum og einföld-
um hætti þar sem greint er frá verði
vara á tilteknum tímapunkti. Blaðið
getur staðið við allar fyrirsagnir og
fréttir um þessar verðkannanir.
Blaðið getur hins vegar ekki borið
ábyrgð á því hvemig verslanir haga
sínu markaðsstarfi eftir að niður-
stöður verðkannana hafa verið birt-
ar. hth@dv.is
MEÐINNKAUPAUSTA Á LOFTI: Handagangur var í öskjunni í skólavöruverslunum
landsins í gær þar sem fyrsti skóladagur þúsunda skólabarna var runninn upp.
Litlar sálir í stórum heimi
Takmarkaður skilningur á tákn-
um og merkjum í umferðinni,
litlar og ómótaðar sálir sem
hvorki sjá fyrir hættur né geta
tekið snöggar, skynsamlegar
ákvarðanir. Það eru m.a. þessi
atriði sem Umferðarstofa legg-
ur áherslu á að vegfarendur all-
ir hafi í huga þegar skólarnir
eru að byrja og þeir yngstu að
venjast hinum stóra heimi.
Mikilvægt er að ökumenn hafi
hugfast að börn hafa ekki sama
þroska og fullorðnir og reynsla
þeirra af umferðinni getur verið
mjög takmörkuð. Hlutverk þeirra
þroskuðu er að koma börnunum í
skilning um í hverju hætturnar eru
fólgnar og hvernig sé öruggast að
komast hjá því að skaðast vegna
þeirra.
Foreldrar eru hvattir til að kynna
sér auðveldustu og öruggustu leið-
ina fyrir barnið í skólann, hvort
sem það er fótgangandi eða ferðast
með öðrum hætti. Gott er að fylgja
barninu fyrst f stað og gefa þannig
innsýn í umferðina. Einnig er
minnt á að tími endurskinsmerkja
gengur brátt í garð.