Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Page 12
72 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST2003
Útlönd
Heimurinn í hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Rúandaforseti
FORSETAKOSNINGAR: Paul
Kagame, forseti Afríkuríkisins
Rúanda, tilkynnti þúsundum
fagnandi stuðningsmanna
sinna í nótt að hann hefði bor-
ið sigur úr býtum (forseta-
kosningunum í gær, hinum
fyrstu frá þjóðarmorðinu árið
1994, þegar um átta hundruð
þúsund létust, flestir tútsar.
Þegar helmingur atkvæða
sigraði
hafði verið talinn í gærkvöld
hafði Kagame, sem er fyrr-
verandi leiðtogi skæruliða, yfir-
burðaforystu.
„Það er enginn vafi á því að úr-
slit kosninganna eru okkur [
vil,* sagði Kagame á sigurhátíð
í höfuðborginni Kigali.
Kagame, sem er 45 ára, er af
ættbálki tútsa sem eru í minni-
hluta í landinu.
Hvergi nærri
FJÖLDAMORÐ: Slobodan
Milosevic, fyrrverandi
Júgóslavíuforseti, sagði við
réttarhöldin yfir honum í Haag
í gær að hann hefði ekki átt
neinn þátt í fjöldamorðunum í
Srebrenica í Bosníu 1995. Átta
þúsund karlar og piltar voru
drepnir í Srebrenica, í þessu
mesta voðaverki í Evrópu frá
lokum síðari heimsstyrjaldar.
Nægilegt
herlið í írak
segir Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra BNA
Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gær að engin þörf væri fyrir
fleiri bandaríska hermenn í Irak
þrátt fyrir að háværar raddir í
Washington kölluðu eftir aukn-
um herafla til þess að tryggja
öryggi í landinu meira en fimm
mánuðum eftir innrásina.
Þetta kom fram þegar Rumsfeld
ávarpaði samkomu fyrrverandi
hermanna, sem tekið hafa þátt í
stríðsaðgerðum erlendis, á Lack-
land-herstöðinni í San Antonio í
gær og fullyrti hann að bandarískir
hermenn væru nægilega margir í
frak til þess að inna af hendi þau
störf sem ætlast er af þeim.
Rumsfeld sagðist byggja þessa
skoðun sína á upplýsingum frá
herforingjanum JohnAbizaid, sem
færi með yfirstjórn hernaðarað-
gerða f frak, en hann hefði sagt sér
að fjöldi bandarískra hermanna í
frak væri nægilegur miðað við þau
verkefni sem hernum væri ætluð.
„Ég veit að það eru uppi háværar
kröfur í Washington um verulega
fjölgun í herliðinu í frak vegna sí-
felldra skæruárása og mannfalls og
ég get lofað ykkur því að ef Abizaid
herforingi fer fram á fjölgun þá
mun hann fá hana undireins. En
hann hefur ekki enn farið fram á
það,“ sagði Rumsfeld og bætti við
að aðstæður í frak breyttust stöð-
ugt og kannski kallaði morgundag-
urinn á íjölgun í herliðinu.
Skiptar skoðanir
Þessi skoðun Rumsfelds á stöð-
unni f írak kemur fram aðeins degi
eftir að stjórnarþingmaðurinn
John McCain frá Arizona lagði til
að fjölgað yrði um að minnsta kosti
heila herdeild í írak, eða um ailt að
tuttugu þúsund hermenn.
McCain sagði að þörfin væri
mildl og líkti viðvarandi ástandi við
kapphlaup við tímann.
Hann er ekki einn um þessa
skoðun og hafa fleiri þingmenn,
bæði stjórnar og stjórnarandstöðu,
lýst áhyggjum af ástandinu í kjölfar
sprengjuárásanna á jórdanska
sendiráðið og aðalstöðvar Samein-
uðu þjóð'anna í Bagdad.
Líkt og í Þýskalandi
Rumsfeld sagði að yfirmenn
hersins væru ekkert hissa á þessum
kröfum og líkti ástandinu í írak við
ástandið sem skapaðist í Þýska-
landi í lok síðari heimsstyrjaldar-
innar, þegar herir bandamanna
urðu fyrir stöðugum árásum fyrr-
verandi liðsmanna nasista.
„Líkt og dauðasveitum Saddams
mistókst nasistum að koma í veg
fyrir frelsun Þýskalands.
Andstaðan sem við stöndum
frammi fyrir er af svipuðum toga
en kannski öflugri og sýnilegri en
búist var við í upphafi," sagði
Rumsfeld.
Rice vill þolinmæði
Condoleezza Rice, öryggisráð-
gjafi Bush Bandaríkjaforseta, hvatti
Bandaríkjamenn í gær til þess að
missa ekki þolinmæðina vegna
ástandsins f írak og fullyrti að
ástandið batnaði með hverjum
deginum þó fréttir segðu hið gagn-
stæða.
„Við verðum að vera þolinmóð.
Þegar við hefjum göfugt verk þá
ljúkum við því. Það eru liðnir 117
dagar frá því að meiri háttar átök-
um lauk og það er ekki svo langur
tími," sagði Rice.
Hún viðurkenndi að bandarískir
hermenn í Bagdad og öðrum borg-
um íraks stæðu frammi fyrir erfið-
um aðstæðum og að Bush Banda-
ríkjaforseti væri staðráðinn í að
veita þeim allan þann stuðning
sem þeir þyrftu til þess að geta
sinnt skyldum sínum.
Rumsfeld segir að
aðstæður í írak breytist
stöðugt og kannski
kalli morgundagurinn á
fjölgun í herliðinu.
Að mati stjórnmálaskýrenda má
ætla að þessi skilaboð þeirra
Rumsfelds og Rice muni endur-
spegla efni ræðu Bush Banda-
rfkjaforseta þegar hann ávarpar
fund samtaka fyrrum hermanna í
St. Louis í dag en þar mun hann líta
yfír farinn veg og framhaldið í bar-
áttunni gegn hryðjuverkum í
heiminum.
REIÐIR SfTAMÚSLÍMAR: Að minnsta kosti
tvö þúsund reiðir fylgismenn sítaklerksins
Ayatollah Mohammeds Saeed al-Hakim
fylgdu þremur lífvörðum hans til grafar [
gær f helgu borginni Najaf, en þeir féllu f
sprengjuárás sem gerð var á heimili al-
Hakims á sunnudag. Al-Hakim særðist
lítillega (árásinni sem sumir kenna helsta
keppinaut hans, sítaleiðtoganum
Moqtada al-Sadr.
Öryggi hert eftir bíl-
sprengjur í Bombay
Öryggisgæsla hefur verið hert
til muna um allt Indland eftir
að tvær bílsprengjur urðu að
minnsta kosti fimmtíu manns
að bana í Bombay, höfuðstað
kaupsýslu í landinu.
Sprengjurnar voru í leigubílum
sem hafði verið lagt við fjölsótt
minnismerki í Bombay og á gull-
og skartgripamarkaði. Þjóðaleið-
togar um allan heim fordæmdu til-
ræðin. Stjórnvöld í Pakistan eru
meðal þeirra sem lýstu þeim sem
hryðjuverkum.
Enginn hefur iýst ábyrgð á
sprengingunum á hendur sér en
indverskir embættismenn og
stjórnmálamenn hafa látið að því
liggja að bönnuð samtök fslamskra
námsmanna kunni að hafa komið
þar nærri, svo og hópur harðlínu-
manna frá Kasmfr sem nýtur
stuðnings Paldstana.
Teknir til yfirheyrslu
Fleiri lögregluþjónar en venju-
lega, með hálfsjálfvirkar byssur í
höndum, stóðu vörð við hof og
bænahús og við opinberar bygg-
ingar í morgun. Lögreglan í
Bombay réðst inn í fátækrahverfi
borgarinnar og tók nokkra menn í
yfirheyrslu.
Sprengingarnar í gær voru hinar
verstu í Bombay frá árinu 1993,
þegar að minnsta kosti 260 manns
fórust í fjölda tilræða sem urðu
kjölfar mannskæðra átaka hindúa
og múslíma.
Á undanfömum sex mánuðum
hafa jafnmörg sprengjutilræði ver-
ið f Bombay og að sögn fréttaritara
breska ríkisútvarpsins, BBC, eru
íbúarnir mjög slegnir.
V® FLAK LEIGUBfLSINS: Indverskur lögregluþjónn stendur við flak annars leigubílsins
sem sprakk í Bombay á Indlandi i gær. Að minnsta kosti fimmtíu manns fórust í
sprengjutilræöunum tveimur og er hópum múslíma kennt um.