Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Síða 13
I-
ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST2003 FRÉTTIR 73
Persson gefst ekki upp
Schwarzenegger slær frá sér
ÞJÓÐARATKVÆÐI: Göran
Persson, forsætisráðherra Sví-
þjóðar, er ekkert á því að gef-
ast uþp þótt tvær skoðana-
kannanir í gær hafi sýnt að
andstæðingar upptöku evr-
unnar njóti stuðnings drjúgs
meirihluta þjóðarinnar. At-
kvæðagreiðsla verður um mál-
ið í næsta mánuði.
„Ég er bjartsýnn og tel að við
eigum góða möguleika," sagði
Persson, helsti stuðningsmað-
ur þess að sænska krónan
verði látin víkja fýrir evrunni.
Forsætisráðherrann sagði að
það yrði ekki fyrr en viku fýrir
atkvæðagreiðsluna þann 14.
september sem skoðanakann-
anir endurspegluðu raunveru-
legt viðhorf sænsku þjóðar-
innartil evrunnar.
KAUFORNÍA: Hollywoodleik-
arinn Arnold Schwarzenegger
skaut föstum skotum að
helsta keppinauti sínum um
stól ríkisstjóra í Kaliforníu í
gær, þegar Ijóst var að sá hefði
rúmlega tíu prósentustiga for-
skot.
Schwarzenegger sagði að ekki
væri hægt að aðgreina Cruz
Bustamante vararíkisstjóra frá
Gray Davis ríkisstjóra. (kosn-
ingunum í október munu kjós-
endur greiða um það atkvæði
hvort þeir vilji að umboð
Grays verði afturkallað og ef
þeir svara játandi hvern þeir
vilji þá fá í staðinn.
Af orðum leikarans má ráða að
hann sé farinn að líta á Busta-
mante sem aðalkeppinaut
sinn en ekki Davis sjálfan.
Sársaukafull og
skjót viðbrögð
segirí hefndaryfirlýsingu Hamas
Al- Qassam-herdeildin, vopnað-
ur armur Hamas-samtakanna,
hótaði í gær grimmilegum
hefndum fyrir dráp ísraels-
manna á fjórum liðsmönnum
samtakanna í Gaza-borg á
sunnudaginn.
f yflrlýsingu, sem al- Qassam-
herdeildin sendi frá sér í gær, segir
að liðsmenn þeirra muni gera
gagnárás gegn síonistum eins fljótt
og mögulegt sé. „Viðbrögð okkar
verða sáraukafull og skjót," segir í
yfirlýsingunni.
Talsmaður fraelshers sagði í gær
að aðaltilgangurinn með þyrlu-
árásinni á sunnudaginn hefði verið
að drepa hinn 24 ára gamla Ahmed
Shtewe, sem sakaður var um að
hafa skipulagt og tekjð þátt í fjölda
árása á ísraelska borgara á
undanförnum mánuðum.
Það er ljóst að síðustu aðgerðir
fsraelsmanna munu hafa alvar-
lagar afleiðingar á framgang al-
þjóðlega friðarferlisins og er þegar
kominn upp alvarlegur ágreiningur
innan palestínsku heimastjórnar-
innar, sem endurspeglast í því að
Yasser Arafat hefur nú skipað vin
JABRIL RAJOUB: Arafat skipaði Rajoub
yfirmann öryggismála þvert ofan í vilja
Bandaríkjamanna.
sinn, Jabril Rajoub, yfirmann
öryggismála þvert ofan í vilja
Bandaríkjamanna, en Colin Powell
hafði í síðustu viku lagt hart að
Arafat að gefa Mahmoud Abbas
forsætisráðherra eftir yfirráð
Sérsveitir leita að
talíbönum á flótta
Bandarískar sérsveitir og af-
ganskir hermenn leituðu í
morgun að flóttamönnum úr
röðum talíbana í þorpum og
hellum í sunnanverðu Afganist-
an, eftir að allt að fimmtíu féllu
í átökum í gær.
Litlir hópar bandarískra sérsveit-
armanna og um 450 afganskir her-
menn réðust til atlögu við talíbana í
gær eftir að embættismenn sögðu
að um sex hundruð þeirra væru
saman komin í Dai Chopan í Za-
bul-héraði. Talíbanar hafa aldrei
verið fleiri á þessum slóðum frá því
stjórn þeirra var steypt 2001.
Juma Khan, lögreglustjóri í Dai
Chopan, sagði í viðtali við frétta-
mann Reuters að talíbanarnir
hefðu flestir flúið í nærliggjandi
sveitir og að leitað væri hús úr húsi.
Hann sagði einnig að bandarískar
herflugvélar tækju þátt í leitinni.
Tugir talíbana voru handteknir í
gær og vopn voru gerð upptæk.
Færri sóttu kjöt-
kveðjuhátíðina
Kjötkveðjuhátíðin í Notting Hill
í London getur ekki gert tilkall
til þess að kalla sig stærsta
götupartí Evrópu þetta árið.
Aðsókn að hátíðinni, sem stóð í
tvo daga, var mun minni en skipu-
leggjendur hennar höfðu gert sér
vonir um. Lögreglan segir að aðeins
sex hundruð þúsund gestir hafi sótt
hátíðina, aðeins tæpur helmingur
þeirra sem mættu í fyrra.
Fjölmennasta götupartí Evrópu
þetta árið var haldið í Zúrich í Sviss,
um m'u hundruð þúsund gestir á
einum degi.
Debi Gardner, skipuleggjandi
Notting Hill hátíðarinnar, var engu GLATT Á HJALLA: Mikið stuð var á kjöt-
að síður ánægð með gleðina. kveðjuhátíðinni í Notting Hill í London.
wammum
(g) TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN
Hluthafafundur
Tryggingamiðstöðvarinnar hf.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. boðar tíl hluthafafundar
fimmtudaginn 11. september 2003. Fundurinn verður haldinn
í Ársal á Radisson SAS Hótel Sögu og hefst kl. 16:00.
Dagskrá fundarins:
1. Kjör til stjórnar félagsíns.
2. ðnnur mál, löglega upp borin.
4-