Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Page 14
74 SKOÐUN ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST2003
Boðið upp
Hringlandaháttur með rjúpnaveiðibann er
óþarfur og óskynsamlegur. Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráðherra ákvað undir lok síðasta
mánaðar að banna rjúpnaveiði þrjú næstu árin.
Sú ákvörðun var tekin á grundvelli vísindarann-
sókna á rjúpnastofninum en rannsóknir á rjúpu
undanfarin ár og endurskoðun eldri gagna
benda til þess að stofninn sé nú í lágmarki og að
honum hafi hrakað jafnt og þétt frá sjötta ára-
tug síðustu aldar. Ákvörðunin hlýtur að standa
ef von á að vera til þess að rjúpnastofninn nái
sér á nýjan leik.
Þegar ráðherrann tók ákvörðun sína sagði í
leiðara DV að réttmætt væri að friða rjúpuna
um sinn, hinn dýrmæti rjúpnastofn hlyti að
njóta vafans. Ekkert hefur gerst á þeim tíma
sem liðinn er frá því að ákvörðunin var tekin
sem kallar á breytingu á henni.
Frá því var greint í gær að Dagný Jónsdóttir,
þingmaður Framsóknarflokksins, hefði lýst því
yfir að hún myndi leggja til við umhverfisnefnd
Alþingis að sölubann yrði tekið upp á rjúpu í
stað alfriðunar stofnsins í þrjú ár. Þá hefur Guð-
laugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, lýst sig hlynntan þeim hugmyndum.
Umhverfisráðherra lagði til sölubann í fyrra en
tilgangur með því var að minnka rjúpnaveiði
um 50-70 prósent. Þá hafnaði umhverfisnefnd
þeirri leið. Vera kann að nýtt Alþingi líti málið
öðrum augum en gert var í fýrra en alþingis-
menn hljóta að meta málið í samræmi við lang-
tímahagsmuni, vöxt og viðhald þessa mikil-
væga stofns fremur en skammtímahagsmuni
skotveiðimanna og neytenda rjúpnakjöts.
á svartamarkaðsbrask
Að sönnu yrðu rjúpur hvorki fáan-
legar í verslunum né á veitingastöð-
um en svartamarkaðsbrask færi af
stað með fullum þunga. Rjúpuryrðu
ólöglegur smyglvarningur.
Forráðamenn Skotveiðifélags íslands tóku
ákvörðun umhverfisráðherra illa. Það var und-
arlegt í ljósi þess að þeir viðurkenndu um leið
að rjúpnastofninn væri í lágmarki og þörf væri á
verndarráðstöfunum. Hagsmunir skotveiði-
manna hljóta að vera þeir að rjúpnastofninn
nái sér á nýjan leik svo hægt verði að nýta hann
með skynsamlegum hætti. Því hefðu skotveiði-
menn átt að styðja ákvörðun umhverfisráð-
herra.
Fráleitt er að bjóða upp á það ástand að leyfa
veiðar á rjúpu en banna um leið sölu. Það kall-
ar aðeins á brask og svik. Að sönnu yrðu rjúpur
hvorki fáanlegar í verslunum né á veitingahús-
um en svartamarkaðsbrask færi af stað með
fullum þunga. Rjúpur yrðu ólöglegur smygl-
varningur.
Samþykki Alþingi sölubann verður umhverf-
isráðherra að fylgja þeirri ákvörðun eftir og
endurskoða ákvörðunina um veiðibannið. Siv
Friðleifsdóttir segir hins vegar að of snemmt sé
að segja með hvaða hætti veiðar muni þá hefj-
ast á ný. Það verði ákveðið í samráði við stofn-
anir og hagsmunasamtök sem málið varðar.
Ráðherra útilokar hins vegar ekki að að rjúpur
verði þá seldar á svörtum markaði.
Þar dregur ráðherrann vægar ályktanir. Full-
víst má telja að veiðileyfi jafnhliða sölubanni
þýði grasserandi brask með rjúpuna. Þeir sem
vilja rjúpu fái hana með þeim hætti. Enn verði
gengið á þann stofn sem allir viðurkenna að sé
í lágmarki. Varla verður þingið svo skammsýnt
að umhverfisráðherra standi frammi fyrir þess-
um vanda.
ftreka verður hins vegar mikilvægi þess, sam-
hliða veiðibanni á rjúpu í þrjú ár, að hart verði
sótt fram í eyðingu vargs. Vargurinn, refur, en
einkum minkur og mávur, gengur nærri
rjúpnastofninum, ekki síður en maðurinn.
Vargnum þarf að halda í skefjum með skipu-
lagðari hætti en nú tíðkast.
Þá verður umhverfisráðherra að ganga fast
eftir úrlausnum nefndar sem ætlað er að gera
tillögur um fyrirkomulag rjúpnaveiða að loknu
veiðibanninu. Þær tillögur snerta meðal annars
griðasvæði rjúpna, veiðikvóta, lengd veiðitíma,
notkun farartækja á veiðislóð, veiðiaðferðir,
skotvopn og notkun veiðihunda.
Þiggja boðsferðir fyrir fréttamenn í undantekningartilvikum
Við lifum ekki í fullkomnum heimi
Svör Karls Garðarssonar, frétta-
stjóra Stöðvar 2, við spurning-
um DV um boðsferðir frétta-
manna bárust ekki nægjanlega
tímanlega til þess að birtast
með svörum annarra rit- og
fréttastjóra, þar sem póstkerfi
DV lá niðri. Þau birtast því hér
með.
Tilefni spurninganna er frétt
Stöðvar 2 á dögunum um laxveiði-
ferð sem fjármálaráðherra þáði frá
Kaupþingi-Búnaðarbanka. Frétta-
menn hafa löngum sjálfir þegið
boðsferðir, stundum fræðslu- eða
kynnisferðir en stundum ferðir sem
ætlað er að leiða til umfjöllunar í
fréttum. Deila má um hvort slíkar
ferðir séu sambærilegar við lax-
veiðiferðir stjómmálamanna. Hvað
sem því líður er ljóst að þær vekja
spurningar um hlutleysi viðkom-
andi fréttamanna og íjölmiðla
gagnvart þeim sem bjóða.
Af svömm annarra frétta- og rit-
stjóra að dæma virðast reglur um
þetta hafa verið hertar undanfarið
á sumum fjölmiðlum. Sums staðar
em skrifaðar reglur en annars stað-
ar er byggt á hefð. Allir segjast
reglulega hafna boðsferðum fyrir
fréttamenn en hvergi er lagt blátt
bann við slíkum ferðum.
Hér á eftir fara svör Karls Garð-
arssonar við spurningunum:
Metum hvert tilvik
„Reglur okkar varðandi boðs-
ferðir koma vel fram á press.is þar
sem fjallað er um boðsferðir. í
stuttu máli gildir sú almenna regla
á Stöð 2 að boðsferðir em ekki
*• < o 15?
| s>. i ~
I m
I >
1 ^
1 bj
ALMENNT EKKI ÞEGNAR: Höfuðstöðvar Norðurljósa sem reka Stöð 2.
þegnar, þó að hver
ferð sé metin út af
fyrir sig. í raun hef-
ur fréttastofan
hafnað nánast öll-
um boðsferðum
síðustu þrjú árin - á
þessu em örfáar
undantekningar. Karl Garðarsson.
1. Fara fréttamenn/myndatöku-
menn í ferðir á vegum fjölmiðils
þíns sem kostaðar em af öðmm en
fjölmiðlinum?
„Almennt em slíkar ferðir ekki
þegnar. í einstaka tilfellum hefur
það verið gert frá því að ég tók við
sem fréttastjóri en í þeim tilvikum
er lögð áhersla á ritstjórnarlegt sjálf-
stæði Stöðvar 2 þegar kemur að
hugsanlegri umfjöllun um efnið."
2. Ef svo er:
a) Við hvað er miðað þegar ákveð-
ið er hvort slíkt boð skuli þegið? - Til
dæmis: Skiptir máli hvort bjóðand-
inn er einkaaðili, opinber aðili eða
félagasamtök? Skiptir máli hvort
ætlast er til þess að ferðin leiði til
umfjöllunar í fjölmiðlinum?
„Það skiptir ekki máli í okkar huga
hvort boðið kemur frá opinberum
aðila, einkafyrirtæki eða félagasam-
tökum. Boð er einungis þegið ef við
teljum að viðfangsefnið geti leitt til
góðrar fréttar í okkar miðli."
b) Hve algengar em slíkar ferðir?
„Á síðustu þremur ámm eru þetta
ca 3 ferðir. Á sama tíma hefur líklega
á annan tug ferða verið hafnað. Bara
í síðustu viku hafnaði ég tveimur
boðum."
c) Getur þú nefnt dæmi um slíka
ferð?
„Þáðum ferð til Búlgarfu þegar
Pharmaco opnaði verksmiðju þar.“
Vekur efasemdir
3. Telur þú að slíkar ferðir séu til
þess fallnar að skapa efasemdir um
hlutleysi fjölmiðla?
„Já, ég tel að þessar ferðir séu til
þess fallnar að skapa efasemdir um
hlutleysi fjölmiðla. Hættan er sú að
menn fari að telja sig „skuld-
bundna" þeim sem stendur fyrir
ferðinni. I þessu verða menn að
treysta dómgreind fréttamanna."
4. Telur þú að fjölmiðill eigi að
greiða sjálfur fyrir ALLAR ferðir sem
hann sendir fréttamenn/mynda-
tökumenn í?
„Ég tel að í hinum fullkomna
heimi ættu fjölmiðlar að greiða all-
an kostnað vegna ferða. Við lifum
hins vegar ekki í slíkum heimi og fá-
tækir fjölmiðlar á Islandi eiga oft
erfitt með að standa undir þeim
kostnaði sem fylgir slíkum ferðum.
Erlendis, til dæmis í Bandaríkjun-
um, er það algengt að fyrirtækið eða
stofnanir greiði ferðir fyrir stærstu
fféttastofur heims - það er þó ekki
endilega sá farvegur sem þessi mál
eiga að fara í hér.“
Viltu vinna múl, Jón?
Eitt af því fjölmarga sem
vekur eftirvæntingu f fjöl-
miðlaheiminum um þessar
£ mundir er niðurstaða um það
hver taki við stjórn þáttarins
O Viltu vinna milljón? á Stöð 2
jjgj af Þorsteini J. Vilhjálmssyni.
“O Sú saga gengur nú fjöllunum
g hærra að það verði enginn
annar en „Slappaðu af!“
^ Jónas R. Jónsson. Sé það rétt
má með sanni segja að Jónas
vaði f veglegum embættum
því eins og flestir muna var
hann á dögunum skipaður
umboðsmaður íslenska
hestsins af landbúnaðarráð-
herra...
Vitnað í Eirík
Jóhanna Sigurðardóttir,
þingkona Samfylkingarinnar,
rifjar upp á vef sínum að Ei-
ríkur Tómasson lagaprófess-
or hafi sagt í viðtali fyrir 2-3
árum að hættulegt væri ef
farið væri að skipa dómara
með pólitískari hætti en gert
hafi verið. „Taldi Eiríkur rétt
að staldra við og ræða þessa
stöðu," segir Jóhanna og bæt-
ir við: „Undir það skal tekið
því fátt væri hættulegra lýð-
ræðinu en pólitískt litaður
meirihluti Hæstaréttar. Málið
verður því að koma til kasta
þingsins og er í því sambandi
minnt á frumvarp Lúðvíks
Bergvinssonar og fleiri þing-
manna Samfylkingarinnar
þess efnis að aukinn meiri-
hluti á Alþingi hafi úrslitavald
um skipan hæstaréttardóm-
ara." - Er á Jóhönnu að skilja
að orð Eiríks Tómassonar fyr-
ir nokkrum árum gefi fullt til-
efni til að hefja nú baráttu
fyrir nefndu lagafrumvarpi af
fullum krafti...
Það sem Eiríkur sagði
Kannski Jóhanna muni
ekki eftir öðm viðtali sem tek-
ið var við þennan sama Eirík
Tómasson um svipað leyti.
Morgunblaðið spurði Eirík
nefnilega beinlínis út í þetta
lagafrumvarp Samfylkingar-
innar f april 2000. Um
frumvarpið hafði Eiríkur
þetta að segja: „Gallinn við
þessa úllögu er sá, að ef þetta
fyrirkomulag yrði tekið upp
er hætt við því að skipun
dómara yrði pólitfskari en
hún er núna og það myndu
jafnvel eiga sér stað pólitísk
hrossakaup um skipun dóm-
ara í réttinn, sem er auðvitað
óheppilegt. Ég dreg því í efa
að þetta sé rétta leiðin sem
þarna er boðið upp á.“ -ÆÚi
einhverjir þurfi nú ekki að
staldra við og ræða þessa
stöðu...