Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST2003 SKOÐUN 15
jp
6
Þrátt fyrir að ísland sé í raun
borgríki höfum við einhverra
hluta vegna aldrei kunnað að
vera borgarbúar.
Á höfuðborgarsvæðinu - sem nú
afmarkast frá Borgarfirði í vestri,
Selfossi í austri og Keflavík í suðri -
býr mikill meirihluti landsmanna.
Hvað sem allri sveitarómantík líður
er það óhagganleg staðreynd í dag
að Reykjavíkurborg er bæði kjöl-
festan og drifkrafturinn í íslensku
nútímasamfélagi. En samt er hún
varla eiginl’eg borg í hefðbundinni
merkingu þess orðs. Til þess er hún
alltof dreifbýl. Reykjavflc er eigin-
lega hvorki borg né dreifbýli. Hún
er eins konar dreifbýlt þéttbýli ef
nokkur glóra er í þeirri lýsingu.
Byggðastefnan og pakkið
í gamla sveitasamfélaginu þóttu
þorparar annars flokks og liðið á
mölinni álitið hið versta siðleysis-
pakk og líf þess talið einkennast af
hvers kyns ómenningu. Þrátt fyrir
að gamla sveitasamfélagið sé löngu
horfið eimir enn eftir af þessum
hugsanagangi.
Á rúmum áratug hefur
miðbærinn breyst úr
draugahverfi í lifandi
samfélag. Kaffihúsin,
verslanirnar, veitinga-
húsin, leikhúsin, barirn-
ir og krárnar draga til
sín fólkið svo úr verður
iðandi mannlíf sem er
einstakt á íslandi.
Alla tíð hefur markvisst verið
reynt að koma í veg fyrir borgar-
myndun á íslandi - fyrst með vist-
arbandinu illræmda og síðar með
ýmsum aðgerðum sem miða að því
sama - að halda fólki í sveitum
þrátt fyrir að það vilji búa í borg -
en eru nú nefndar því saklausa
orði: byggðastefna.
Hjartað slær í Kvosinni
Þessi rótgróna andúð á borgarlíf-
inu og hið innbyggða samviskubit
sem borgarbúum hefur verið inn-
prentað gagnvart sveitinni hefur
haft mikil áhrif á skipulagsmál f
Reykjavík. Borgin er byggð eins
dreift og hægt er. Byggt er uppi á
hólum og hæðum en bestu bygg-
ingarsvæðin, dalir og strendur, eru
skilin eftir fyrir grófan iðnrekstur,
verður iðandi mannlíf sem er ein-
stakt á íslandi. En þetta þola siða-
postularnir sumsé ekki og hrópa í
sífellu hnignun, hnignun.
Þéttar og hærra
En miðborgin þarf á stuðningi að
halda. Það þarf að byggja bæði
þéttar og hærra og styðja við mið-
bæinn með því að stórfjölga íbúð-
arhúsnæði í nágrenninu. Nýja
skuggahverfið á Eimskipafélagslóð-
inni er sannarlega skref í rétta átt
en nú er brýnt að hraða sem mest
uppbyggingu íbúðarhverfis á Slipp-
svæðinu og jafnvel má hugsa sér að
taka góðan hluta af Örfiriseynni
undir íbúðarhúsnæði. Svo ekki sé
nú talað um flugvallarsvæðið. Það
þarf að moka þessum flugvelli í
miðbæ Reykjavflcur burt sem allra
fyrst eins og borgarbúar ákváðu í
atkvæðagreiðslu fyrir skemmstu.
En það segir sig nú sjálft.
Borgaryfirvöld hafa tekið þá
skynsamlegu stefnu að leyfa hús-
eigendum að rífa ónýta hjalla við
Laugaveginn, þessa einu raunveru-
legu verslunargötu landsins, og
byggja þess í stað há og glæsileg
verslunarhús. Það er vonandi að
fyrirhuguð uppbygging Laugaveg-
arins verði hröð. Ég er sannfærður
um að stór hópur fólks vill miklu
heldur versla á glæsilegum Lauga-
vegi, þar sem fólk gengur um götur
og hittir hvað annað í lifandi borg-
arumhverfi, heldur en að þvælast
um í lokuðum verslunarmollum
eða einhverjum iðnaðarhverfum
við múla, skeifur og fen.
Ógnarhá bílastæðagjöld
Borgaryfirvöld mega þó skamm-
ast sín fyrir alltof há bflastæðagjöld
og ógnarháar sektir sem Reykjavflc-
urlistinn hefur komið á en þessi
aukna skattheimta hefur leitt til
þess að fólk veigrar sér við að versla
í miðbænum. Borgaryfirvöld verða
að hætta að vinna gegn miðborgar-
versluninni með þessum óbil-
gjarna hætti.
MAÐUR ER MANNS GAMAN: Góð stemning í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt.
flugvelli og útivistarsvæði sem eng-
inn nýtir.
Eini vísirinn að raunverulegu
borgarskipulagi í Reykjavík er í
miðbænum, gamla Vesturbænum
og Þingholtunum. Þróttur höfuð-
borgarinnar er ekki síst á þessu
svæði.
Miðborgin er miðstöð viðskipta,
menningar og skemmtana. Á und-
anförnum árum hefur miðborgin
gengið í endurnýjun lífdaga og
hvað svo sem allri sveitarómantík
líður kjósa nú ansi margir að búa í
miðbæ Reykjavíkur eins og fast-
eignaverð á þessum slóðum ber
órækt vitni um, en það er einmitt
svo merkilegt að fasteignaverð er
hæst þar sem þéttbýlið er mest. Af
hverju ætli það sé?
Lastabæli eða lifandi borg
Samt þykir mörgum miðbærinn
hið mesta lastabæli. Leiðarahöf-
undur Morgunblaðsins sló gamal-
kunnan tón í síðustu viku og
hneykslaðist mikið yfir sollinum í
miðbæ Reykjavíkur: ólífinu, látun-
um í unglingunum og agaleysi
þjóðarinnar. Æi - mikið er þetta
væl um hörmungar miðbæjarlífs-
ins orðið eitthvað þreytt. Og bein-
línis rangt. Staðreyndin er sú að
hjarta þjóðarinnar slær í Kvosinni
og miðborgin hefúr aldrei staðið í
meiri blóma. Þar bókstaflega iðar
allt aflífi.
Fyrir fimmtán árum eða svo var
miðbærinn svo gott sem dauður.
Þjóðin þrammaði upp í Kringlu og
það vantaði bara að gefa út dánar-
vottorð gamla miðbæjarins. Þar var
enginn á ferli nema stakir furðu-
fuglar. Smám saman hefur þessi
perla Reykjavíkur - þessi eini raun-
verulegi þéttbýliskjarni landsins,
þessi eini raunverulegi vísir að
borgarumhverfi - verið að vakna til
lífsins.
Á rúmum áratug hefur miðbær-
inn breyst úr draugahverfi í lifandi
samfélag. Kaffihúsin, verslanirnar,
veitingahúsin, leikhúsin, barirnir
og krárnar draga til sín fólkið svo úr
Borgríkið sem hélt
að það væri sveit
KiALLARI
Eiríkur Bergmann Eiríksson
Tt’w stjúmmálafræöingur
Bretar búnir með
kvótann í ár
8
E
E
„Bretar og Bandaríkjamenn
hafa ekkert á (slandi að gera. Þeir
hafa tekið kvóta sinn í ár. Þeir
eru nýbúnir að slátra 7.000 til
8.000 írökum og þar var ekkert
spurt að þvl hve langan tíma það
tók að aflífa þá eða um önnur
skilyrði."
Jan Kristiansen, formaður Sam-
taka norskra smáhvalaveiöi-
manna, birt á vefnum SkipJs.
Að eigna sér Gay Pride
„Það vakti nokkra athygli fyrir
skemmstu þegarvið, Ungir jafn-
aðarmenn I Reykjavík, gengum á
fund kaþólsku kirkjunnar hér á
landi og báðum hana fyrir bréf til
Jóhannesar Páls páfa II. Ætlunar-
verk okkar var að vekja athygli á
þeirri fornaldarlegu yfiriýsingu
gegn staðfestum samvistum
samkynhneigðra sem nokkrum
dögum áður hafði komið frá
Páfagarði. Upp úr þessu öllu
spratt mikil umræða um réttindi
samkynhneigðra sem náði há-
marki á Hinsegin dögum þar
sem tugþúsundir (slendinga
sýndu skoðun sína (verki með
því að fagna Gay Pride-göng-
unni þrátt fyrir mlgandi rigningu
í miðborg Reykjavíkur."
Andrés Jónsson, formaður
Ungra jafnaðarmanna, í grein í
Morgunblaðinu.
Að eigna sérjólin
„Ungliðar ályktuðu á dögunum
um að íslenskt þjóðlíf yrði nú
betra ef fagnað væri hækkandi sól
Kolbeinn Óttarsson Proppé.
og fæðingu Krists, t.d. í desem-
bermánuði. Af þessu tilefni send-
um við Vottum Jehóva bréf þar
sem við hvöttum þá til að halda
jól og eyðileggja ekki stemning-
una fyrir börnunum. Og umræðan
óx bara og náði hámarki 24. des-
ember, þegar (slenska þjóðin
ákvaö að gera nákvæmlega þetta,
halda upp á jólin."
Kolbeinn Óttarsson Proppé
skrifar ímyndaða fréttatiikynningu
I anda þeirrar fyrri á Múrnum.is.
Kennslustund
„Af fréttabréfi vinstri/grænna
er Ijóst að ánægja er í þeirra hópi
með fréttastofu hljóðvarps ríkis-
ins og Spegillinn á þar skilnings-
ríkan markhóp. Raunar er sá
þáttur oft eins og kennslustund I
því hvernig fréttir eru matreiddar
frá vinstrisinnuðum sjónarhóli."
Björn Bjarnason á vefslnum.