Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Síða 16
16 TILVERA ÞRIÐJUDAOUR 26. ÁGÚST2003
Tilvera
Fólk • Heimilið ■ Dægradvöl
Netfang: tilvera@dv.is
Sfmi: 550 5813-550 5810
Affleck eys fé í sína heittelskuðu Lopez
GJAFIR: Hollywood-leikar-
inn Ben Afflech hefur
þurft að sjá á bak nærri
hálfum milljarði króna í
sína heittelskuðu heitmey,
latínubombuna Jennifer
Lopez. Fé þessu hefur
hann eytt í gjafir af marg-
víslegu tagi, svo sem
skartgripi og bíla.
Heimildir herma að trúlof-
unarhringurinn einn hafi
kostað nærri þrjú hundr-
uð milljónir króna og þá
þurfti leikarinn að greiða
um níu milljónir fyrir
rúbínaskreytta klósettsetu
svo vel fari um kærustuna
á meðan hún pissar og
gerir annað sem menn
gera á slíkum setum.
Senn líðurað brúðkaupi
þeirra og eins gott að
Benni hafi nóg að gera til
að geta haldið áfram að
ausa fé í gjafir eins og
Hollywood-liðið eitt kann
að kaupa.
KVIKMYNDIR HELGIN 22.-24. AGÚST
Sæti Fyrir viku Titill Innkoma, helgin innkoma alls Fjöldl bíósala
1. 1 FREDDY VS. JASON 13.152 61.197 3014
2. 2 S.W.A.T. 10.581 87.847 3204
3. 3 OPEN RANGE 9.481 29.317 2163
4. 4 FREAKY FRIDAY 9.304 74.431 3058
5. THE MEDALLION 8.111 8.111 2648
6. 4 PIRATES OF THE CARIBBEAN 7.275 260.925 2404
7. 8 SEABISCUIT 6.170 92.936 2534
8. 5 UPTOWN GIRL 5.606 22.318 2495
9. 7 AMERICAN WEDDING 5.464 90.515 2467
10. MY BOSS'S DAUGHTER 4.855 4.855 2201
11. 9 SPY KIDS 3-D: GAME OVER 2.790 102.275 2429
12. 10 BAD BOYS II 2.031 132.324 1202
13. 11 LARA CROFTTOMB RIDER 1.503 62.007 1272
14. 15 LE DIVORCE 1.368 3.558 422
15. 14 FINDING NEMO 1.038 329.790 838
16. 13 CHARLIES ANGELS FULL THROTTLE : 1.004 99.518 542
17. MARCI X 872 872 1200
18 12 GRIND 818 4.522 2253
19 DIRTY PRETTY THINGS 691 2.948 240
20. 11 EXTRAORDINARY GENTLEMEN 660 64.518 422
ALLAR UPPHÆÐIR IPÚSUNDUM BANDARlKJADOLLARA
Óstöðvandi hryllingur
Gífurlegar vinsældir hryllings-
myndarinnar Freddy vs. Jason koma
á óvart. Þarna eru það ekki kvik-
myndastjömur sem trekkja heldur
tvær uppdiktaðar persónur sem
hafa að vísu komist hressilega á
spjöld kvikmyndasögunnar. Myndin
er samt b-mynd á Hollywood-mæli-
kvarða. Engin ný kvikmynd ógnaði
efstu myndum síðustu viku og verð-
ur að fara í flmmta sætið til að sjá
nýja mynd á listanum en það er
nýjasta kvikmynd Jackies Chans,
The Medallion, sem er í því sæti.
Þetta er hefðbundin Jackie Chan-
mynd þar sem hann leikur Hong
Kong-löggu sem berst með hnúum
og hnefum gegn illmennum. Mun
neðar á iistanum er önnur ný kvik-
mynd, My Boss’s Daughter, með
gæludýri Demi Moore, Ashton
Kutcher, í aðalhlutverki. Ef Kutcher
hefur vonast til að samband hans
við Moore yrði til þess að auka að-
THE MEDALLION: Jackie Chan verður að
láta sér nægja 5. sætið
sókn á myndina hefur hann orðið
fyrir miklum vonbrigðum. Myndin
er dæmd til að fara fljótt á mynd-
bandamarkaðinn.
Eins og alltaf segja aðsóknartölur
ekki allt. Ef tekinn er fjöldi sýningar-
sala stendur vestri Kevins Costners
samhliða Freddy vs. Jason hvað
varðar aðsókn en hún er sýnd í 900
færri kvikmyndasölum.
Myndband sem drepur
Rómantíska gamanmyndin Two
Weeks Notice heldur efsta sætinu á
myndbandalistanum. í öðru sæti er
ný mynd, The Ring, og fjórum sæt-
um neðar er svo komin óskarsverð-
launamyndin Chicago sem hlýtur
að komast eitthvað hærra á næst-
unni.
I The Ring snýst allt um eina sak-
leysilega útlítandi myndbands-
spólu sem er nákvæmlega eins
spóla og allir eru með heima hjá
sér. Það sem greinir þessa spólu frá
öðrum er að hún drepur. Sá sem
sér hana fær símtal að sýningu lok-
inni og honum er tilkynnt að hann
verði drepinn eftir sjö daga. í upp-
hafi myndarinnar eru íjögur ung-
menni drepin - öll
sama dag og á
sama tíma. Frétta-
konan Rachel (Na-
omi Watts) fer að
rannsaka málið
þar sem eitt fórn-
arlambið var
frænka hennar.
Rannsóknin leiðir
hana á afskeldstan
stað þar sem ung-
mennin fjögur
höfðu haft nætur-
dvöl. í millitíðinni
hafði hún komist
að því að félagar
fórnarlambanna
trúa því að mynd-
bandsspóla sem
þau horfðu á hafi
THE RING: Naomi Watts í hlutverki Rachel
Keller sem lendir I miklum hremmingum.
valdið dauða þeirra. Rachel finnur
spóluna og að sjálfsögðu horfir hún
á það sem er á henni og fær sfmtal-
ið.
I MYNDBÖND VIKAN 18. -24. ÁGÚST
Sætí Aöur Titill Vikurá lista
1 ' 1 TWOWEEKS NOTICE 2
1 THE RING 1
3. 3 JUST MARRIED 3
4. 2 THE HUNTED 2
5. 4 NATIONAL SECURITY 4
6. 7 FINAL DESTINATION 2 2
7. CHICAGO 1
8. 5 THE PIANIST 3
9. 6 ANALYZE THAT 4
10. 12 THEY 2
111- 14 LIFE OR SOMETHING LIKE IT 2
12. 9 DAREDEVIL 5
13. 8 CATCH MEIFYOU CAN 8
14. 10 BOWLING FOR COLUMBINE 4
15. 11 GANGS OF NEWYORK 7
16. 13 ISPY 9
17. 18 HALF PAST DEAD 7
18. 16 BANGER SISTERS 8
19. 12 GHOSTSHIP 7
20. BLOOD WORK 8
400 manns í sumarferð Samfylkingarinnar:
Mergjuð
ræða óvænts
heiðursgests
Alls um fjögur hundruð
manns tóku þátt í sumarferð
Samfylkingarinnar um Suð-
urland sem farin var á laugar-
dag. Ekki færri en sjö rútur
þurfti til að flytja hópinn.
Haldið var í morgunsárið aust-
ur fyrir fjall og í Rangárþing, þar
sem Arthúr Björgvin Bollason,
forstöðumaður Njálusetursins á
Hvolsvelli, fræddi fólk um slóðir
þessa djásns íslendingasagnanna
sem Njála svo sannarlega er. Far-
ið var vítt yfir slóðir sögunnar, svo
sem niður í Landeyjar og um
Fljótshlíð, og var gerður góður
rómur að frásögn Arthúrs.
500 ferðalangar
Ferðin endaði síðla dags á
Skarði í Gnúpverjahreppi, óðaii
Björgvins G. Sigurðssonar, eins
fjögurra þingmanna flokksins í
Hæst barþóræðu
Jóns Baldvins þarsem
hann talaði afeldmóði
um misskiptingu
auðæfanna.
Suðurkjördæmi. Þar var grillað
ofan í ferðalanga, en allmargir
slepptu ferðinni og komu aðeins í
gleðina á Skarði. Telja menn að
þar hafi verið ekki færri en fimm
hundruð manns, en af þessu til-
efni var meðal annars búið að
gera hlöðuna á bænum upp, eins
og fínasta veitingahús, og ut-
andyra voru grillmeistarar flokks-
ins í önnum,
Eldmóður Jóns
Óvæntur heiðursgestur mætti
einnig í veisluna, Jón Baldvin
FÉLAGAR: Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, og Björgvin G.
Sigurðsson alþingismaður- en óðal hans
er Skarð í Gnúpverjahreppi, þar sem
grillveislan mikla var haldin.
SYSTKIN f SAMA FLOKKI: Bryndís
Schram, sendiherrafrú í Helskinki, og Ell-
ert bróðir hennar, formaður öldunga-
deildar Samfylkingarinnar.
Hannibalsson, fyrrverandi þing-
maður og nú sendiherra í
Helsinki. „Ég frétti af Jóni á land-
inu og bauð honum austur af
þessu tilefni, sem hann og þáði.
Okkur var heiður að því,“ sagði
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, í samtali við
DV. Hann flutti ræðu, sem og
Margrét Frímannsdóttir. Hæst
bar þó ræðu Jóns Baldvins þar
sem hann talaði af eldmóði um
misskiptingu auðæfanna og
hvernig gera mætti veröldina
betri. Össur segist vera hæst-
ánægður með ferðina - og sýni
hún ágætlega hver sé styrkur
innra starfs Samfylkingarinnar.
sigbogi@dvJs
AFASTELPA: Jón Baldvin Hannibalsson sendiherr;
j s
MÓÐIR OG SONUR: Katrín Júlíusdóttir með syni sínum, Júlíusi Flosasyni.
GÓÐA VEISLU GJÖRA SKAL Maturinn reiddur fram - og Ari S
veitingunum góð skil.