Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST2003 TILVERA 17
Crowe tekur föðurhlutverkið alvarlega
PABBINN: Skylminga-
þrællinn Russell Crowe
segist ætla að taka sér frí
frá leiklistinni til þess að
geta betur sinnt fyrsta
barni þeirra Daniellu
Spencer, sem væntanlegt
er í heiminn í janúar.
„Ég vil taka mér frí til þess
að ég geti sinnt föðurhlut-
verkinu af umhyggju en
ekki á hlaupum," sagði
Crowe, sem þarf að fresta
fyrirhugaðri tónleikaferð
með hljómsveitt sinni í
byrjun næsta árs til þess
að dæmið gangi upp.
„Það verður erfitt að finna
afsökun fyrir því að þurfa
að fara út að vinna þegar
barnið er fætt og þess
vegna ætla ég að taka
mér frí. Ég sagði Daniellu
að drífa í því, meðan hún
gengi með, að semja lög
á nýjan disk svo hún geti
sjálf farið í tónleikaferð
þegar barnið er fætt og
ég verið heima á meðan,"
sagði óskarsverðlauna-
hafinn Crowe.
Shania telur sig vera oflofaða
FEGURÐ: Kanadíska sveitasöngkon-
an Shania Twain botnar ekkert í því
hvers vegna karlpeningurinn er
svona hugfanginn af henni.
„Mér finnst sjálfri ég ekki vera Ijót. Ég
meina bara að mér finnst ég stórlega
ofmetin þegar útlitið er annars veg-
ar," segir söngkonan í viðtali við
breska blaðiðThe Mail.
„Takmark mitt er ekki að líta út eins
og Cindy Crawford eða önnur ofur-
fyrirsæta. Þessar stelpur eru svo full-
komnar, þess vegna geta þær lifað á
útlitinu. Hvernig er hægt að velja
mig, tónlistarmann, sem kynþokka-
fyllstu konu heimsins? Svoleiðis kem-
ur fyrir konur eins og Raquel Welch,"
segir Shania sem hefur notið mikillar
velgengni um nokkurt skeið.
a ásamt dótturdótturinni Mörtu, sem er dóttir Snæfríðar, einnar þriggja dætra þeirra Bryndísar.
DV-myndir sbs
FERÐAFÉLAGAR: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþingismaður, Hjörleifur
Sveinbjörnsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, eiginkona hans.
kúlason gerir
Hollywood:
Leikarar vilja ekki
Schwarzenegger
Það eru ekki allir í Hollywood
hrifnir af framtaki Arnolds
Schwarzeneggers að bjóða sig
fram til ríkisstjóra í Kaliforníu.
Margar Hollywoodstjörnur eru
harðir demókratar og víkja ekki frá
flokknum þótt kollegi þeirra bjóði
sig fram. Það er því ljóst að hveiti-
brauðsdagar Schwarzeneggers
sem frambjóðanda eru yfirstaðnir
og nú fer blákaldur raunveruleik-
inn að taka við. Þeir sem tóku af
skarið og hafa verið að finna að
framboði Schwarzeneggers eru
meðal annars Tom Hanks, Martin
Sheen, Cybill Shepard, Woody
Harelsson, Susan Sarandon, War-
ren Beatty, Alec Baldwin, Carrie
Fisher og David Schwimmer. Talið
er að margar stjörnur eigi eftir að
bætast í hópinn og jafnvel verði
stofnuð samtök kvikmyndaleikara
gegn framboði Schwarzeneggers.
Það sem kemur
kannski frekar á
óvart er að nán-
ast engin kvik-
myndastjarna
hefur lýst yfir
stuðningi við
hann.
Það sem varð til þess
að stjörnur fóru að láta
í sér heyra, var að úr
herbúðum
Schwarzeneggers
komu þær fréttir að
-CAA, sem er stærsta
umboðsfyrirtækið i
Hollywood, myndi
styðja framboð
Schwarzeneggers. CAA
fer með umboð fyrir
frambjóðandann og var
birt grein í New York
Times þessu til stuðnings.
Þetta var meira en aðrir
kúnnar, sem margir hverjir
eru harðir demókratar, gátu
þolað og nú virðist komin
sterk sveit ofurhuga gegn gerð-
eyðandanum. Frá CAA kom svo
yfirlýsing um að greinin væri
byggð á misskilningi.
Það hefur alltaf verið vitað að
stór hluti kvikmyndastjarna í
MARTIN SHEEN: Telur Bush standa á bak
við framboð Schwarzeneggers.
TOM HANKS: Tom Hanks og eiginkona
hans, Rita Wilson, eru yfirlýstir demókratar
og styðja ekki Arnold Schwarzenegger.
Hollywood er demókratar og
því koma þessi kröftugu
mótmæli ekki á óvart. Það
sem kemur kannski frek-
ar á óvart er að nánast
engin kvikmynda-
stjarna hefur lýst yfir
stuðningi við hann.
Rob Lowe þykir það
neðarlega í goggun-
arröðinni í
Hollywood að
stuðningur hans
skiptir litlu máli.
Martin Sheen,
sem í áranna rás
hefur verið helsti
mótmælandinn í
Hollywood og setið
í fangelsi iyrir mót-
mælaaðgerðir
byggðar á skoðunum
hans, sagði í viðtali
að Bush forseti hlyti að
hafa ýtt undir framboð
Schwarzeneggers og væri
það enn ein tilraun
repúblikana til að ná
Kaliforníu undir sig.
hkarl@dv.is
FRAMBJÓÐANDINN: Arnold Schwarzenegger gengur ekki að stuðningi kollega sinna í Hollywood vísum.