Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Qupperneq 27
ÞRIÐJUDAGUR 26.ÁGÚST2003 TILVERA 27
HáshóiaDíó
rfffftVtiUgfimSwy
Ofurskutlan Angelina Jolie er
mætt aftur öflugri en nokkru
sinni fyrr f svakalegustu
hasarmynd sumarsins!
Sýnd kl. 6.40,9 og 10.20. B.i. 12. ára
Sýnd kl.6,8 og 10.B.Í. lO.ára.
ÁSTRÍKUR OG KLEÓPATRA MEÐ ISL.TALI: Sýnd m/ísl.tali kl.5.55.
BASIC: Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. ára.
HULK Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. B.i. 12. ára.
NÓI ALBÍNÓI: Sýnd kl. 6.B.L 12ára.
KRINGLAN
ALFABAKKI
Stórsmollur'ttr smiðju t
Jerrys Bruckheimers og
Dísney sem stefnir hraðbyri A
að verða vinsælasta mynd
sumarsíns í USA
★★★★
itvikmyndir.is
★ ★★
§1 jj 1 uai
Ofurskutlan Angelina Jolie er
mætt aftur öflugri en nokkru
sinni fyrr í svakalegustu
hasarmynd sumarsins!
Kvikinyndir.b Kvikmyndir.com
Stórsmellur ur smiðju
Jerrys Bruckheimers og
Disney sem stefnir hraðbyri
á að verða vinsælasta mynd
sumarsins í USA
Sýnd kl. 3.50,5.40,8 og 10.20. B.i.12 ára.
(LúxusVIP kl. 5.40,8 og 10.20.
Sýnd kl. 4,6,8 og 10. B.i. 10 ára.
WRONGTURN: Sýnd kl.8og 10.10. 8.1.16. BASIC: Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16. ára. SINBAD: Sýnd m. ísl. tali kl.3.50 og 6.
WHAT A GIRL WANTS: Sýnd kl.8. ÁSTRÍKUR: Sýnd m. fsl. tali kl. 3.50. SINBAD: Sýnd m.ensku. tali kl.4,6 og 8.
KRINGLAN tS 588 0800 ÁLFABAKKI tS í >87 8900
FJÖLMIÐIAVAKTIN
Sigurður Bogi Sævarsson
skrifarum fjölmiðla
Yfir og allt um kring
Inngangspistill Finnboga Her-
mannssonar að viðtali við Sigurð
Gylfa Magnússon sagnfræðing á
Morgunvaktinni í gær var snilld-
argóður. Tilefni samtalsins var
grein Sigurðar Gylfa í Sögu þar
sem hann gagnrýnir yfirlitshugs-
un í sagnfræði. Það að gagnrýna
söguskoðun skorti - og sjónum
sé í of ríkum mæli beint að valds-
mönnum og viðteknum sjónar-
miðum. Þetta eigi ekki síst við
um skólabækur.
í viðtalinu í gær, sem og í
greininni, heggur Sigurður á
báða bóga. Það gerði Finnbogi
líka þar sem hann sagði .... að
hver þjóð hafi komið sé upp
sagnfræði í samræmi við ríkjandi
valdhafa eða ákveðin baráttumál
sem þjóðin hefur staðið í, til
dæmis sjálfstæðisbarátta fslend:
inga.“
Þau sjónarmið sem hér eru
fram komin eru allrar athygli
verð - og eiga ekki aðeins við um
sagnfræði. Nauðsynlegt er jafh-
framt að menn beini í þessum
efnum sjónum sínum að við-
teknu fréttamatí fjölmiðla - sem
síðan hefur auðvitað í framhald-
inu mikil áhrif á hvað kemst á
spjöld sögunnar.
Fyrir helgina eltu allir íjölmiðl-
ar félagsmálaráðherra sem var
að kaupa sér nýjan bíl. Með öðr-
um orðum var sjónum heldur
betur beint að „... valdsmönnum
og viðteknum sjónarmiðum"
eins og sagði í pistíinum í gær.
Þetta er aðeins lítið dæmi.
Þannig skortir fjölmiðlamenn
svo oft þann eiginleika að geta
séð tilveruna í víðara samhengi
og verið í eilíflegri stjónarand-
stöðu og muna að hlutverk þing-
manna og ráðherra er aðeins að
móta reglur samfélagsins en ekki
vera yfir og allt um kring. Rétt
eins og sumir tróa.
STJÖRNUGJÖF DV
Nói albínól ★ ★★■i
Pirates of the Caribbean ★★★
Respiro ★ ★★
Terminator 3 ★ ★★
HULK ★★★
Sindbað saefari ★★i
The In-Laws ★★i
Basic ★ ★
What a Girl Wants ★ ★
Bruce Almighty ★★
Hollywood Homicide ★★
Charlie's Angels: Full Throttle ★★
Matrix Reloaded ★ ★
Legally Blonde 2 ★'i-
Hvoð er f sjónvarpinu í kvöld?
Stöð 2 kl. 21.30 — Morðdeildin:
Löggur í Los Angeles
ÚRVALSSVEiTIN: Leysir morðmál sem eru sérlega erfið viðfangs. Fyrir miðri mynd er for-
inginn Sam Cole (Tom Sizemore)
í kvöld hefjast sýningar á Stöð 2 á
nýjum sakamálaflokki, Morðdeild-
inni (Robbery Homicide Division).
Um er að ræða spennuþátt sem hef-
ur fengið góðar viðtökur. Fylgst er
með rannsóknarlöggunni Sam Cole
og félögum hans í órvalssveit innan
lögreglunnar í Los Angeles sem
rannsakar öll erfiðustu málin sem
upp koma í borginni. Aðalhlutverkið
leikur Tom Sizemore en auk hans
eru fastaleikarar Barry Shabaka
Henley, David Cubitt, Michael Chan
og Klea Scott. Einn framleiðenda
myndaflokksins er Michael Mann
sem sfðari árin hefur aðallega feng-
ist við að leikstýra kvikmyndum
(Heat, The Last Mohican, The
Insider), en var á árum áður virkur
framleiðandi sjónvarpsþátta. Meðal
annars stjómaði hann gerð seríunn-
ar Miami Vice.
Tom Sizemore er þekktur leikari
með langan feril að baki. Hann hef-
ur þó aðallega verið í fréttum und-
anfarið vegna málaferla en hann var
ákærður og dæmdur fyrir að áreita
mellumömmuna fyrrverandi, Heidi
Fleiss.
Sizemore fæddist í Detroit 21.
september 1961. Hann ólst þar upp
og kláraði háskólanám í listum. Leið
hans lá til New York þar sem hann
reyndi fyrir sér í leikhósum með litl-
um árangri. Stóra tækifærið fékk
hann þegar Oliver Stone fékk hon-
um lítið en gott hlutverk í Born on
the Fourth of July. Eftir það var gat-
an greiðari og hann vann sig smátt
og smátt upp í að vera eftirsóttur
karakterleikari. Eitt hans besta og
stærsta hlutverk síðari árin var í
kvikmynd Stevens Spielbergs, Sav-
ing Private Ryan.
Sizemore hefur oftar en ekki verið
til vandræða í einkalífinu enda ekki
aðeins drukkið ór hófl fram heidur
notað eiturlyf. Meðan á tökum á
Saving Private Ryan stóð hótaði Spi-
elberg eitt sinn að reka hann kæmi í
ljós að hann væri í vímu. Þakkar
Sizemore Spielberg fyrir að hafa
losnað ór viðjum eiturlyija en hann
á greinilega enn við áfengisvanda-
mál að stríða samkvæmt nýjustu
fréttum.
Sjónvarpið kl. 21.25:
Lífið um borð í ísafold
f kvöld verður í sjónvarpinu fyrri
hluti dönsku heimildamyndarinnar
Lífið um borð - Á síldveiðum (Livet
ombord - Jagten pá silden). í
myndinni er íylgst er með lífinu um
borð í sfldveiðiskipinu ísafold frá
Hirtshals. Nafnið er rammíslenskt
en skipið er danskt. Það vill svo til
að einn í áhöfninni er íslenskur og á
það vel við þetta skip. Aðrir í áhöfn-
inni eru danskir sjómenn. Seinni
hlutinn verður sýndur að viku lið-
inni.
ÁHÖFNIN: Þessir sjómenn koma við sögu í dönsku heimildamyndinni.
Líflð .eftir
vinnu
HALLVEIG RÚNARSDÓTTIR: Hún syng-
ur norræn lög í Sigurjónssafni í kvöld.
Listasafns Sigurjóns Óiafssonan Á
síðustu sumartónleikum Listasafns
Sigurjóns Ólafssonar í kvöld kl.
20.30 munu Hallveig Rúnarsdóttir
sópransöngkona og Árni Heimir
Ingólfsson píanóleikari flytja verk
eftir norræn tónskáld, sönglög eftir
Jean Sibelius og Hjálmar H. Ragn-
arsson íslensk þjóðlög i útsetningu
Hildigunnar Rúnarsdóttur og söng-
flokkinn Haugtussa eftir Edvard
Grieg. Hallveig Rúnarsdóttir hefur
víða komið fram sem einsöngvari,
sérstaklega í flutningi nýrrar tónlist-
ar, og hefur frumflutt mörg ný ís-
lensk verk, t.d. á Listahátíð í Reykja-
vík og á Sumartónleikum í Skálholti
IÐNÓ: Tónleikar verða í Iðnó í kvöld
kl. 21.00. Það er salonhljómsveitin
L'amour, sem leikur skemmtitónlist
af ýmsu tagi í anda salontónlistar
sem vinsæl var í Mið-Evrópu á fyrri
hluta síðustu aldar. Hljómsveitin
leikur m.a. kvikmyndatónlist eftir
þá Charlie Chaplin og Nino Rota og
argentínska tangóa eftir meistarana
Carlos Gardel og Astor Piazzolla. Þá
er mikill hluti efnisskrár helgaður ís-
lenskum dægurflugum sem sér-
staklega hafa verið útsettarfyrir
þennan hljóðfæraflokk. Hljómsveit-
ina skipa Hrafnhildur Atladóttir,
fiðla, Guðrún Hrund Harðardóttir,
víóla, Hrafnkell Orri Egilsson, selló,
GunnlaugurT. Stefánsson, kontra-
bassi, og Tinna Þorsteinsdóttir,
píanó.
Viðeyjarganga: (kvöld verður síð-
asta þriðjudagsganga sumarsins í
Viðey. Verður farið vítt og breitt um
sögu eyjarinnar og sjónum m.a.
beint að klaustrinu og Skúla Magn-
ússyni. Jafnvel verður hægt að næla
sér í smá kúmen í leiðinni. Ferðin .
hefst kl. 19.30 frá Sundahöfn.
Hafnarborg: (hádeginu á morgun,
eða kl. 12.00, verða haldnir hádeg-
istónleikar í Hafnarborg, menning-
ar- og listastofnun Hafnarfjarðar.
Hlöðver Sigurðsson tenór syngur ís-
lensk einsöngslög við undirleik Ant-
oníu Hevasi píanóleikara. Á efnis-
skrá verða m.a. verk eftir Sigvalda
Kaldalóns, Donizetti og Mozart.