Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2003, Side 31
ÞRÍÐJUDAGUR 26. ÁGÚST2003 DV SPORT 31
Collins kom fyrstur í mark
FRJÁLSAR (ÞRÓTTIR: Kim
Collins frá smáeyjunni St. Kitts
og Nevis gerði sér lítið fyrir og
kom fyrstur í mark í 100 metra
hlaupi karla á heimsmeistara-
mótinu í París í gær.
Collins kom í mark á tímanum
10,07 sekúndum, 1/100 úr sek-
úndu á undan Darrel Brown frá
Trinidad og Tobago og Bretan-
um Darren Campbell sem
komu hnífjafnir í mark en
Brown var dæmt annað sætið.
Bandaríkjamaðurinn Maurice
Green, sem átti titil að verja,
komst ekki í úrslit en hann
meiddist aftan á vinstra læri og
náði ekki að klára hlaupið í
undanúrslitum. Heimsmethaf-
innTim Montgomery náði sér
ekki á strik og hafnaði í fimmta
sæti.
FLJÓTASTUR: Kim Collins vann
100 metra hlaupið óvænt.
Ulfarnir fá liðstyrk
KNATTSPYRNA: Nýliðar Wolv-
es í ensku úrvalsdeildinni
fengu vel þeginn liðstyrk í gær,
þegar brasilíski miðjumaður-
inn Emerson ákvað að ganga
til liðs við félagið. Emerson
þessi lék með Middlesbrough
fyrir nokkrum misserum en
hefur leikið með spænska fé-
laginu Atletico Madrid síðustu
árin. Hann mun gangast undir
læknisskoðun í dag og verður
að öllum líkindum í byrjunar-
liðinu þegar Úlfarnir mæta
Man. Utd á miðvikudag. Úlfun-
um hefur gengið herfilega í
fyrstu tveim leikjum sínum í
deildinni þar sem þeir hafa
tapað 5-1 og 4-0. Því veitir
þeim ekki af liðsauka áður en
þeir taka á móti meisturunum.
FENGUR: Emerson mun styrkja
lið Wolves mikið.
Barnsley
á toppinn
Guðjón Þórðarson og
lærisveinar hans í
Barnsley gerðu góða
ferð til Blackpool í gær-
kvöldi þar sem þeir
sigruðu, 2-0. Barnsley
hefur því 10 stig eftir
fyrstu fjóra leikina og
er komið á topp ensku
2. deildarinnar sem
fæstir áttu von á fyrir
skemmstu.
Guðjón Þórðarson.
Barnsley hafði mikla yfirburði í
leiknum og það var aðeins 10 mfn-
útum fyrir leikslok sem aðeins
reyndi á Sasa Ilic, markvörð Bams-
ley, en þá varði hann ágætlega frá
Mike Sheron. Barnsley tók foryst-
una á 27. mínútu með marki frá
Rory Fallen. Chris Lumsdon gerði
svo út um leikinn á 50. mínútu en
mörkin hefðu vel getað orðið fleiri
því að Barnsley sótti nær linnulaust
að marki Blackpool sem sá aldrei til
sólar í leiknum.
Árangur Barnsley í
deildinni er um margt
áhugaverður. Félaginu er
þröngur stakkur skorinn í
rekstri sínum og má Guð-
jón aðeins hafa 20 leik-
menn í hópi sínum og
hafa þó nokkrir af þessum
20 átt við meiðsli að stríða
undanfarið. Þar að auki
má Guðjón ekki kaupa
leikmenn né semja við þá til lang-
tíma þar til greitt hefur verið úr fjár-
málum féiagsins en það hefur frest
til 4. desember til þess að ganga frá
sínum málum eins og DV Sport
hefúr áður greint frá.
Þrátt fyrir öll þessi vandamál og
lítinn, stuttan undirbúning hefúr
Guðjóni tekist að kreista það besta
út úr liðinu og verður spennandi að
fylgjast með framhaldinu. henry@dvJs
Ferrari-menn bjartsýnir
Þrátt fyrir hörmulegan kappakstur í Ungverjalandi á sunnudaginn
Ferrari-liðið í Formúlu 1
kappakstrinum átti hörmulega
keppni í Ungverjalandi á
sunnudaginn. Michael
Schumacher hafnaði í áttunda
sæti og var meðal annars hring-
aður af sigurvegara keppninn-
ar, Fernando Alonso, og Rubens
Barrichello þurfti að hætta
keppni vegna bilunar í fjöðrun
bíls síns.
Williams-liðið komst á toppinn í
keppni bílasmiða og Michael
Schumacher hefur nú aðeins eins
stigs forystu í keppni ökuþóra.
Þrátt fyrir það er Jean Todt, keppn-
isstjóri liðsins, bjartsýnn og segist
þess fullviss að liðið geti unnið
keppni bílasmiða og að
Schumacher muni standa uppi
„Það má eiginlega
segja að allt sem gat
farið úrskeiðis hafi far-
ið úrskeiðis í Ungverja-
landi. Það jákvæða er
þó að ég er enn efstur í
stigakeppninni."
sem sigurvegari f keppni ökuþóra
en þrjár keppnir eru eftir.
„Það hefur gengið illa hjá okkur
að undanförnu en ég hef trú á því
að við náum að snúa blaðinu við.
Við erum með frábæra ökuþóra í
Michael Schumacher og Rubens
Barrichello og bílarnir eru mjög
góðir. Það er allt of snemmt að af-
skrifa okkur og sá sem gerir það er
að gera slæm mistök," sagði Todt.
Schumacher, sem varð fyrir því
áfalli að vera hringaður af Fern-
ando Alonso, var líka brattur.
„Það má eiginlega segja að allt
sem gat farið úrskeiðis hafi farið úr-
skeiðis í Ungverjalandi. Það já-
kvæða er þó að ég er enn efstur í
stigakeppninni," sagði Michael
Schumacher.
oskar@dvjs
Montoya m juíi: 1:22,095
R. Schumacher 1:22,319
Raikkonen 1:22,372
Alonso 1:22,565
Da Matta 1:23,040 |
Webber 123,156
Coulthard 123,193 f
M. Schumacher 1:23,207 f
Button 123,376
Trulli 1:24,100
Heidfeld 124,267
Panis 1:24,414
Frentzen 124,450 (
Barrichello 124,583
Wilson 1:24,936,
Fisichella 125,081
Villeneuve 125,278
3 *Baumgartner 1:26,464
3 Verstappen 126,559
LO
V I fl H A L D *
’fekj i atfr tfa yfiriwð á vaifctorum mnan Én VaraMutir eru afcto mnflaör
rji
ZZZHE
ÞEGAR HART MÆTIR HÖRDU!
SINDRI
Slndrl Reykjavík ■ Klettagörðum 12 • slmi 575 0000 Slndrl Akureyrl • Draupnisgötu 2 ■ slmi 462 2360 Slndrl Hafnarflrðl • Strandgötu 75 • slmi 565 2965
r