Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.2003, Page 32
32 TILVERA MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2003
íslendingar
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
Netfang: aettir@dv.is
Sími: 550 5826
Sjötfu ára
Stefán Runólfsson
fyrrv. framkvæmdastjóri, nú starfsmaöur Nýherja
Stefán Runólfsson, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri, nú starfsmaður
Frumherja hf., Hlíðarvegi 28, Kópa-
vogi, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Stefán fæddist í Vestmannaeyj-
um og ólst þar upp. Að loknu gagn-
fræðaprófi 1950 hóf hann störf f
Hraðfrystistöð Vestmannaeyja, var
verkstjóri þar frá 1950, yfirverk-
stjóri 1953-62, framkvæmdastjóri
Hraðfrystistöðvar Keflavflcur
1962-64, framleiðslu- og yfirverk-
stjóri hjá Fiskiðjunni hf. í Vest-
mannaeyjum 1964-74, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar
hf. 1974-88, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihúss Stokkseyrar
1988-91 en starfaði áfram á Stokks-
eyri til 1992. Hann starfaði svo um
tíma hjá Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins, réðst svo til Rýnis skoð-
unarstofu og síðar til Nýju skoðun-
arstofunnar, nú Frumherja hf.
Stefán sat í stjórn SÍF 1975-87,
var félagslegur endurskoðandi SÍF
1987-92, sat í stjórn Samlags
skreiðarframleiðenda 1975-90, í
stjórn Umbúðamiðstöðvarinnar hf.
og Félags sfldarsaltenda á Suður-
og Vesturlandi í fjölda ára, sat í
fjölda ára í stjórn Vinnuveitendafé-
lags Vestmannaeyja og var formað-
ur þess um tíma, í stjórnum Sam-
frosts, Lifrarsamlags Vestmanna-
eyja, Stakks hf. og Klakks hf. í Vest-
mannaeyjum, átti sæti í undirbún-
ingsnefnd að stofnun Herjólfs hf. í
Vestmannaeyjum og sat í stjórn
Herjólfs hf. sem varaformaður frá
stofnun 1975-88.
Stefán var formaður Sjálfstæðis-
félags Vestmannaeyja í átta ár, sat í
stjórn þess í fimmtán ár, var í kjör-
dæmisráði Sjálfstæðisflokksins í
Suðurlandskjördæmi um árabil,
var tvö kjörtímabil varabæjarfull-
trúi í Vestmannaeyjum, sat í hafn-
arstjórn í tólf ár, æskulýðs- og tóm-
stundaráði í fjölda ára, auk þess
sem hann gegndi fjölda trúnaðar-
starfa fyrir flokkinn.
Stefán var félagi í Rotaryklúbbi
Vestmannaeyja 1964-75, sat í
stjórn klúbbsins og var forseti hans
í eitt ár, varð félagi í Oddfell-
owstúkunni Herjólfi í Vestmanna-
eyjum 1961 og gegndi þar ýmsum
trúnaðarstörfum til 1991 er hann,
ásamt öðrum, stofnaði Oddfell-
owstúkuna Hástein á Selfossi.
Stefán hóf ungur að æfa og
keppa í frjálsum íþróttum og knatt-
spyrnu með íþróttafélaginu Þór, sat
í stjórn Þórs 1949-62, var gjaldkeri
þess 1954-62, formaður ÍBV
1964-77, að einu ári undanskildu,
sat í undirbúningsnefnd byggingar
íþróttamiðstöðvar í Vestmannaeyj-
um 1973 og var formaður bygg-
ingarnefndarinnar 1973-76 er
byggingu lauk, auk þess sem hann
var stjórnarformaður fþróttamið-
stöðvarinnar 1976-88.
Stefán var sæmdur gullmerki
íþróttafélagsins Þórs og er heiðurs-
félagi þess frá 1983, var sæmdur
gullmerki og síðar gullkrossi ÍSÍ
1976, sæmdur gullmerki ÍBV og
KSf, var heiðraður af sjómanna-
dagsráði Vestmannaeyja fyrir
björgun tveggja barna úr Vest-
mannaeyjahöfn 1968 og 1974, og
sæmdur riddarakrossi hinar ís-
lensku fálkaorðu fýrir störf sín að
félags- og sjávarútvegsmálum 17.6.
2003.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 19.11. 1966,
Helgu Víglundsdóttur, f. 15.8.1944.
Börn Stefáns og Helgu eru Sóley,
f. 13.8. 1967, kennari, en maður
hennar er Þorsteinn H. Kristvins-
son rafeindavirki og eru synir
þeirra Hlynur Logi, f. 5.5. 1993,
Helgi Sævar, f. 26.12. 1997, Birkir
Örn, f. 28.5. 2001; Smári f. 21.6.
1970, skrifstofu- og fjármálastjóri,
maki Guðrún Jóna Sæmundsdóttir
skrifstofumaður, f. 28.4. 1973, og
eiga þau tvær dætur, Berthu Maríu
f. 9.7. 1999, Evu Maríu, f. 25.4.
2003; Guðný Stefanía, f. 12.9. 1976,
íþróttafræðingur, unnusti Jón Hálf-
dán Pétursson, f. 13.4.77, íþrótta-
fræðingur.
Bróðir Stefáns er Ólafur Helgi f.
2.1. 1932. Hálfbróðir Stefáns, sam-
mæðra; Einar Ólafsson f. 13.3.
1921, d. 2.12. 1984, vélstjóri og síð-
ar húsvörður í Hafnarfirði. For-
eldrar Stefáns voru hjónin Runólfur
Runólfsson, f. 29.5. 1892, d.
16.1.1979, og Guðný Petra Guð-
mundsdóttir, f. 28.2. 1900, d. 30.12.
1976, húsmóðir.
Fimmtíu ára_______________
Jónas Bjarnason
forstööumaöur Hagþjónustu landbúnaöarins
Jónas Bjarnason, forstöðumaður
Hagþjónustu landbúnaðarins,
Hvanneyri, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Jónas fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá VÍ 1975, stundaði enskunám við
HÍ 1975-76, lauk BA-prófi cum
laude f fjölmiðla- og hagfræði frá
Hunter College of the City Uni-
versity of New York 1992 og var
sæmdur gullmerki skólans fyrir
námsárangur sama ár og lauk
MBA-prófl með sérhæflngu í milli-
ríkjaviðskiptum frá University of
New Haven í Connecticut, UNH
1994.
Jónas var framkvæmdastjóri
Hljóðtækni, eigin innflutnings- og
smásölufyrirtækis, 1975-83, fram-
kvæmdastjóri Félags farstöðvaeig-
enda á íslandi 1980-83, fram-
kvæmdastjóri FÍB 1983-90 og
Ferðaskrifstofu FÍB hf. uns hún var
seld Samvinnuferðum-Landsýn,
1997, var framkvæmdastjóri Fram-
sýns fólks ehf., eigin ráðgjafarfyrir-
tækis, 1995, forstöðumaður Hag-
þjónustu landbúnaðarins í afleys-
ingum 1995-96, sérfræðingur hjá
sömu stofnun á seinni árshelmingi
1996 og skipaður forstöðumaður
Hagþjónustu landbúnaðarins í árs-
byrjun 1997.
Jónas gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir skólafélag VÍ
1972-73, var ritstjóri CQ TF, rits fé-
lagsins íslenskir radíóamatörar
1975-79, sat í stjórn félagsins og
sinnti fleiri trúnaðarstörfum
1977-85, var ritstjóri Öku-Þórs,
málgagns FÍB 1984-86, var fulltrúi í
Umferðarnefnd Reykjavíkur
1984-87, varafulltrúi í Umferðar-
ráði 1984-85, fulltrúi í Landvernd
1984-86, fulltrúi Ferðaskrifstofu
FÍB hf. í Félagi íslenskra ferðaskrif-
stofa 1984-87, félagi í Golden Key
Honour Society of America frá
1992, sinnti trúnaðarstörfum fyrir
International Student Association
of the University of New Haven,
Connecticut 1993-94, hafði um-
sjón með og kenndi á námskeiðum
á vegum VR 1995, er félagi í Rotary
International frá 1996, var gjaldkeri
Rótarýklúbbs Borgarness
1999-2000, er fúlltrúi Hagstofú ís-
lands í Nordiska Statistiska
Kontaktnatet for Jord och Skog-
burksstatistik frá 1996 og stjórnar-
maður þar 1999-2003, félagi í ís-
landsdeild Nordiske Jordbrugsfor-
skeres Forening (NJF) frá 1996,
stjórnarmaður í hagfræðiskor aðal-
samtakana 2003-2006, situr í
Fagráði Bændasamtaka íslands í
hagfræði frá 1999, sat í deildarráði
Bútækni- og rekstrardeildar Land-
búnaðarháskólans á Hvanneyri
2001-2002, situr í samráðshópi
Landbúnaðarháskólans á Hvann-
eyri um Lífræna miðstöð
2001-2005, er meðlimur Búnaðar-
sviðs Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri 2002-2004 og hefur set-
ið í fjölda opinberra nefnda og
fagráða landbúnaðarráðherra og
fleirri aðila um landbúnaðarmál.
Fjölskylda
Jónas kvæntist 9.8. 1991 Helgu
Maríu Bragadóttur, f. 26.7. 1952,
framkvæmdastjóra félags og
fræðslusviðs Árborgar. Foreldrar
hennar: Bragi Hinriksson, f. 20.3.
1930, d. 9.6. 1987, tæknifræðingur
og framkvæmdastjóri í Noregi, og
Ingibjörg Vagnsdóttir, f. 12.8.1931,
listamaður í Reykjavflc. Jónas og
Helga María skildu 1996.
Unnusta Jónasar er Anna Karls-
dóttir, f. 21.11.1968, lektor við jarð-
og landfræðiskor Háskóla íslands.
Hún er dóttir Karls Jónssonar, f.
10.2. 1937, stýrimanns og fram-
kvæmdastjóra í Reykjavflc, og Arn-
dísar Hólmsteinsdóttur, f. 12.2.
1931, ljósmóður.
Sonur Helgu Maríu er Bragi
Smith Helguson f. 14.9. 1972, sér-
fræðingur í sölu og þjónustu við
fagfjárfesta hjá Kaupþingi Búnað-
arbanka.
Synir Önnu eru Jónas Hrafn
Kettel, f. 19.4. 1991; Elías Snær
Torfason, f. 15.2.1999.
Systldni Jónasar eru Una Björg
Bjarnadóttir, f. 26.7. 1959, aðstoð-
arskólastjóri við Árbæjarskóla í
Reykjavík, en maður hennar er
Haukur Pálsson, f. 7.7. 1959; sr.
Bjarni Þór Bjarnason, f. 14.11.1962,
prestur við Grafarvogskirkju, en
unnusta hans er sr. María Ágústs-
dóttir.
Foreidrar Jónasar: Bjarni Sigur-
vin Jónasson, f. 4.1. 1929, löggiltur
rafverktaki í Reykjavflc, og Guðný
Magnea Jónsdóttir, f. 22.10. 1928,
húsmóðir.
Stórafmæli
90 ára
Unnur Friðriksdóttir,
Eyrarvegi 19, Akureyri.
85 ára
Bjöm Lárusson,
Sléttuvegi 15, Reykjavík.
Ingibjörg Sófusdóttir,
Köldukinn 13, Hafnarfirði.
80ára
Gudmund Knutsen,
Fjólugötu 3, Akureyri.
Guðrún Erlingsdóttir,
Þorgrímsstöðum, Breiðdalsvík.
Gunnar Guðmundsson,
Mosarima 23, Reykjavík
Sólveig Gunnarsdóttir,
Safamýri 56, Reykjavík.
Sævar Halldórsson,
Barmahlíð 52, Reykjavík.
Þorbjörg
Jónsdóttir,
Skúlagötu 40, Reykja-
vík. Hún er að
heiman í dag.
Hjalti Auðunsson,
Öldugötu 15, Hafnarfirði.
Snorri Snorrason,
Austurvegi 51, Selfossi.
Þorbjörg Þorbjarnardóttir,
Drekahlíð 6, Sauðárkróki.
70 ára
Jarþrúður Kristjánsdóttir,
Ási, Búðardal.
60 ára
Jóhanna Þórðardóttir,
Bakkavör 11, Seltjarnarnesi.
Kristján Guðmundsson,
Hrauntungu 50, Kópavogi.
50 ára
Ama Hólmfríður Jónsdóttir,
Laugateigi 3, Reykjavík.
Auður Ragnarsdóttir,
Meistaravöllum 15, Reykjavík.
BJörn Þór Ármannsson,
Smárabraut 16, Höfn.
Brynja Björk Kristjánsdóttir,
Krókahrauni 10, Hafnarfirði.
Garðar Guðnason,
Skeljagranda 5, Reykjavík.
Guðbjörg Björnsdóttir,
Kelduhvammi 9, Hafnarfirði.
Hrefna Sigurðardóttir,
Unufelli 44, Reykjavík.
Katrfn Gfsladóttir,
Kelduhvammi 12b, Hafnarfirði.
Sigrún Jónsdóttir,
Þórðarsveigi 1, Reykjavík.
Sigurgeir Aðalgeirsson,
Heiðargerði 13, Húsavík.
Skeggi Guðmundsson,
Njörvasundi 23, Reykjavík.
Steinunn Ásta Andreasen,
Engjavegi 49, Selfossi.
40 ára
Barbara Wolna,
Túngötu 12, Patreksfirði.
Elín Magnea Hafsteinsdóttir,
Heiðarhvammi 4c, Keflavík.
Harpa Ásgeirsdóttir,
Reykási 21, Reykjavík.
Ingibjörg Gísladóttir,
Grasarima 20, Reykjavík.
(sleifur B. Aðalsteinsson,
Brekkugötu 4, Þingeyri.
Jón Ben. Sveinsson,
Skólabraut 18, Stöðvarfirði.
Miklos Dalmay,
Ljónastíg 8, Flúðum.
Sigurður Hálfdanarson,
Hjarðarbóli, Húsavík.
Svea Sofffa Sigurgeirsdóttir,
Þrastarhólum 6, Reykjavík.
Jarðarfarir
Svelnungi Jónsson frá Tóvegg,
Hvammi - heimili aldraðra, Húsavík,
verður jarðsunginn frá Húsavíkur-
kirkju miðvikud. 10.9. kl. 14.00.
Elín Guðmundsdóttir, Droplaugar-
stöðum, áður til heimilis á Hring-
braut 108, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni miðvikud. 10.9. kl.
15.00.
Útför Jóhönnu Dagmarar Björns-
dótturfrá Brunnum, Suðursveit,
Keldulandi 21, Reykjavík, fer fram frá
Mosfellskirkju miðvikud. 10.9. kl.
15.00.
75 ára