Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Síða 4
4 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003
Orkuhúsið komið í fullan gang
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA: Orku-
húsið við mót Suðurlandsbrautar
og Grensásvegar verður form-
lega opnað í dag. Þar eru fjórar
stofnanir tii húsa sem allar starfa
innan heilbrigðisgeirans. (Orku-
húsinu er Læknastöðin sem áður
var í Álftamýri. Við hana starfar
fjöldi lækna sem flestir eru bækl-
unarskurðlæknar eða fást við
stoðkerfis- og verkjavandamál.
Viðamikil móttökustarfsemi er
rekin á hennar vegum og einnig
eru þar gerðar 3-4000 aðgerðir á
ári. Þar er einnig (slensk mynd-
greining sem rekur stóra
röntgendeild. Á þeirri deild eru
gerðar margs konar rannsóknir,
svo sem ómskoðanir, hefð-
bundnar röntgenrannsóknir, seg-
ulómskoðanir og tölvusneið-
myndir. Sjúkraþjálfun Islands er
einnig til húsa í Orkuhúsinu, en
hún er stærsta einkarekna sjúkra-
þjálfunarstöð landsins. Þar starfa
16 sjúkraþjálfarar og mun þeim
fjölga innan tíðar. Loks er Össur
hf. með innanlandsdeild í hús-
næðinu og rekur þar glæsilega
verslun, gervilima-, spelku- og
skósmíði ásamt göngugreiningu
þessu tengt. Viðamiklar breyt-
ingar hafa verið gerðar á húsinu.
Vörubifreið valt
LÖGREGLUMÁL: Vörubifreið valt
við gangamunnann að Fá-
skrúðsfjarðargöngum snemma í
gærmorgun. Slysið gerðist með
þeim hætti að ökumaður var að
sturta hlassi aftan af palli bif-
reiðarinnar en eitthvað fór við
það úrskeiðis þannig að bíllinn
lenti á hliðinni. Ökumaður hlaut
við þetta minni háttar meiðsli.
Þéttsetinn réttarsalur
af lögreglumönnum
ÁKÆRÐU OG VERJENDUR ÞEIRRA: Lögreglumennirnir ásamt lögmönnunum Sigurði Kára Kristjánssyni og Helga Jóhannssyni.
Suzuki Baleno Wagon 4x4.
Skr. 12/99, ek. 65 þús.
Verð kr. 1150 þús.
Suzuki Grand Vitara 2,0,
bsk.
Skr. 8/00, ek. 62 þús.
Verð kr. 1650 þús.
Suzuki Grand Vitara 2,0, bsk.
Skr. 6/02, ek. 25 þús.
Verð kr. 2070 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 6/00, ek. 54 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Suzuki Wagon R+ 4x4
Skr. 5/00, ek. 13 þús.
Verð kr. 890 þús.
Honda HRV Sport, bsk.
Skr. 4/99, ek 91 þús.
Verð kr. 1080 þús.
Kia Sportage 2,0, bsk.
Skr. 6/02, ek. 42 þús.
Verð kr. 1550 þús.
MMC Space Star, bsk.
Skr. 5/00, ek. 54 þús. km.
Verð kr. 990 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
-—////--------------
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, slmi 568-5100
Réttarhöldum yfir tveimur lög-
regluþjónum, sem gefið er að
sök að hafa gerst brotlegir í
starfi, lauk fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Réttarsalur Héraðsdóms Réykja-
víkur var þéttsetinn lögreglumönn-
um í gær þegar málið var tekið fyrir
og greinilégt að lögreglan hefur
mikinn áhuga á málinu, enda kem-
ur hún að því beggja vegna borðs-
ins.
í ákæru ríkissaksóknara segir að
lögreglumennirnir hafl verið
ákærðir fyrir fimm saknæm brot í
starfi. Öðrum þeirra er gefið að sök
að hafa fjórum sinnum átt þátt í
brotunum en í því fimmta er annar
lögreglumaðurinn ákærður fyrir
ranga skýrslugerð til að réttlæta
notkun úðavopns við framkvæmd
handtöku.
Orð gegn orði
I grófum dráttum má segja að
lögreglumönnunum tveimur sé
geflð að sök að hafa misst stjórn á
skapi sínu í tvígang við löggæslu í
miðbæ Reykjavíkur. Fyrra tilfellið
átti sér stað 8. mars og hitt kvöldið
eftir. Málsatvik í fyrra skiptið eru á
þann veg að lögreglumennirnir
voru staddir inni á skyndibita-
staðnum Nonnabátum þegar mað-
ur með digitalmyndavél snýr sér að
öðrum þeirra og heimtar að fá að
taka mynd af honum við hlið
stúlku. Lögreglumaðurinn, sem
var húfulaus, kvaðst hafa beðið
manninn um að gera það ekki
(vegna þess að hann var húfulaus
og kærði sig ekki um að vera
myndaður með drukkinni konu, að
hans sögn). Maðurinn tók mynd-
ina þrátt fyrir tilmæli lögreglu-
þjónsins og í framhaldi af því var
Hafði margoft sam-
ræði við 12 ára stúiku
Héraðsdómur Reykjaness
dæmdi í dag sextán ára pilt í
fjögurra mánaða fangelsi fyrir
að hafa í vor og sumar margoft
haft samræði við tólf ára stúlku
á heimili sínu.
Refsingin var skilorðsbundin til
tveggja ára en auk fangelsisvistar-
innar var móður piltsins gert að
greiða foreldrum stúlkunnar 200
þúsund krónur í miskabætur. Að
auki þarf pilturinn að greiða allan
sakarkostnað, þar með talin 200
þúsund króna málsvarnar- og rétt-
argæslulaun skipaðs verjanda síns.
Pilturinn viðurkenndi fyrir dómi
að hafa margoft haft samræði við
telpuna á heimili sínu og sagðist
meðvitaður um að hún væri aðeins
tólf ára gömul og því of ung til að
hafa samfarir. Framferði piltsins
taldist ámælisvert og í ljósi aldurs-
og þroskamunar hefði hann átt að
gera sér grein fyrir að þau mættu
ekki taka upp slíkt samband sín á
milli. Pilturinn var aðeins 16 ára
gamall þegar brotin voru framin
telst hann sjálfur vera barn sam-
kvæmt lögum.
hann handtekinn. Málið snýst því
um hvort lögregluþjónninn hafi
haft rétt til að handtaka manninn
eða hvort hann hafi misbeitt valdi
sínu og ætlað að láta manninn
finna til tevatnsins fyrir að fara ekki
að tilmælum sínum.
f seinna tilfellinu, sem átti sér
stað 9. mars, er sömu lögreglu-
mönnum gefið að sök að hafa
handtekið mann og konu að tilefn-
islausu og beitt þau óþarfa harð-
ræði. Öðrum lögreglumanninum er
einnig gefið að sök að hafa beitt
úðavopni að óþörfu gegn sjónar-
votti sem vildi hafa afskipi af hand-
tökunni. Lögreglumaðurinn segist
aftur á móti ekki hafa átt annarra
kosta völ og talið beitingu úða-
vopnsins nauðsynlega áður en
málin færu úr böndunum.
Lögreglumanninum er einnig
gefið að sök að hafa vísvitandi fals-
að skýrslu til að réttlæta notkun
úðavopnsins.
Skýrslu og vitnum
ber ekki saman
Eftir að Ríkissaksóknari ákvað að
rannsaka málið fékk hann lögregl-
una í Stykkishólmi til að taka
skýrslu af aðilum málsins, lögreglu-
þjónunum tveimur, þeim sem lög-
reglan hafði afskipti af og vitnum
að handtökunni, auk annarra sem
að málinu komu. í skýrslu yfirlög-
regluþjónsins í Stykkishólmi kemur
fram að vitni að handtökunum telja
skýrslu lögreglumanna í mörgum
atriðum villandi og að þeir hafi
beitt óþarfa harðræði í málinu.
Ákærðu lögreglumennimir hrista
aftur á móti höfuðið og telja það
endaleysu frá upphafi til enda.
í máli verjenda lögreglumann-
anna kom fram að það væru slæm
skilaboð út i samfélagið ef lögreglu-
menn mættu ekki grípa til þeirra
aðgerða sem þeir teldu nauðsynleg
til að sjatla málin og ef svo væri
gætu þeir allt eins setið inni á stöð
um helgar og teflt í stað þess að
sinna skyldu sinni af ótta við að
missa vinnuna.
Dómur í máli lögregluþjónanna
fellur líklega að þremur vikum liðn-
um. kip@dv.is
Sunnan og suðaustanátt, viða 5-10 m/s,en lægir síðdegis. Rigning eða súld,
en rofar til vestan- og norðantil síðdegis. Hiti 5 til 10 stig.
Veðrið á morgun
t
m
6
6
cdt)
u
- *
d3$>
4B
' > »
__J5
Sólarlag í Sólarupprás á
kvöld morgun
Rvik 18.27 Rvík 8.07
Ak. 18.15 Ak.8.12
Síðdegisflóð Árdegisflóð
Rvík 18.36 Rvík 6.22
Ak. 23.03 Ak. 10.55
Veðriðídag
Veðriðkl. 12 i gær
Akureyri skýjað 2
Reykjavík léttskýjað 5
Bolungarvík skýjað 3
Egilsstaðir rigning 3
Stórhöfði léttskýjað 5
Kaupmannah. hálfskýjað 14
Ósló hálfskýjað 11
Stokkhólmur 10
Þórshöfn skúr 8
London skýjað 19
Barcelona léttskýjað 23
New York þokumóða 17
París skýjað 17
Winnipeg heiðskirt 9