Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Side 19
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 DV HELGARBLAÐ 19
ið dálæti á þeirri bók og persónu
Magnúsar sem honum fannst lýst af
ótrúlegum skilningi og innsæi Lax-
ness á drykkjusýki Magnúsar.
Ég er mjög sátt við þetta og get
rætt þetta allt og væri annars ekki að
gefa þetta út. Það er ekkert í þessu
sem getur löðrungað mig til baka.
Það voru kaflar þarna sem ég sleppti
og auðvitað hélt ég ákveðnum hlut-
um fyrir mig sem vissulega eru mín
prívatmál og ekki til að leggja á borð
fyrir alia."
„Ég held ég geti orðað
það þannig að ég hafi
verið haldin fíkn í veika
einstaklinga og þannig
er því farið með marga
aðra."
- Þú lýsir því vel hvernig Þorvald-
ur, eins og margir aðrir með svipað-
an sjúkdóm, skipti lífi sínu í hólf þar
sem ákveðið fólk var geymt og þess
gætt að það hefði ekki samgang við
fólk úr öðrum hólfum. Ert þú ekki að
opna milli hólfa og hefur þú fengið
viðbrögð frá fólki úr ólíkum hólfum?
„Ég hef fengið viðbrögð frá fólki
sem varla trúir því sem ég gekk í
gegnum. Þorvaldi tókst meira að
segja að vera í hólfl þar sem fólk gat
ekki ímyndað sér að hann ætti við
nein sérstök vandamál að stríða.
Það kom alveg af fjöllum þegar alkó-
hólismi barst í tal. Hann kom mjög
vel fyrir og það gerði ég líka og við
saman og það tókst stundum svo vel
að fólk grunaði ekki neitt."
Máttirðu gera þetta?
- Af því að þetta er svo persónu-
legt og ég held að þessi bók eigi sér
engar hliðstæður er freistandi að
spyrja: Máttirðu gera þetta?
„Hvern átti ég að spyrja um leyfi?
Mér finnst ég draga upp góða mynd
af manni sem ég elskaði og margir
gætu efast um að ætti erindi í bók.
Hann var veikur og ég veiktist með
honum. Þetta voru allt bréf í minni
persónulegu eigu og allt efni sem ég
nota á ég sjálf og er ekki að fara á
bak við neinn. Það er enginn nefnd-
ur á nafn nema við tvö og ég tryggði
að nánasti hringur aðstandenda
væri sáttur við þetta. Ég á foreldra á
lífi og systkini. Hans foreldrar eru
látnir en hann á tvær systur og ég lét
aðra þeirra lesa yfir. Ég fékk fjölda
athugasemda frá yfirlesurum sem
ég tók mark á og þetta hefur verið
mjög löng úrvinnsla.
Þetta er ekki einstök saga heldur
saga sem margir geta samsamað sig
en ég held samt að það hafi ekki ver-
ið skrifuð svona bók áður. Ég hlífi
ekki sjálfri mér og ég tala opinskátt
um barnleysi mitt og okkar sem olli
gífurlegri streitu og sorg í sambandi
okkar og mér finnst ég vera að fjalla
um ótal marga hluti sem fslensk
þjóð hefur ekki viljað vita af. Við
höfum ekki viijað vita af þessum
hlutum en við verðum að tala um
þennan óæskiiega farangur í sálar-
lífinu, annars komumst við ekkert
áfram."
Mér er batnað af honum
- Heldur þú að einhverjum sámi
við lesturinn?
„Ég vona að ég hafi sloppið við að
særa enda var tilgangurinn ekki að
særa nokkurn mann. Ég held að það
hafi verið erfitt fyrir foreldra mína
að lesa um það hvernig ég upplifði
mína æsku en ég vona að þau fyrir-
gefi mér, ég hef fyrirgefið þeim.
- Þú lýsir Þorvaldi svo að hann
hafi verið maður sem skipti lífi sínu
í afmörkuð hólf og það skipti hann
miklu máli hvernig hann kæmi fyrir.
Heldur þú að hann hefði verið sátt-
ur við þetta?
„]á, ég held það. Við vomm það
nánir og góðir vinir að ég er alger-
lega sannfærð um að hann hefði
verið það.“
- Er þér batnað af þeirri kröm sem
þetta samband olli þér og þú lýsir
svo opinskátt í bókinni?
„Mér er batnað af honum skulum
við segja. En hafi maður orðið fyrir
einhvers konar röskun þá situr það
alltaf í manni. Ef leirker brotnar þá
er kannski hægt að líma það saman
svo það sjáist að það hafi einu sinni
verið heill og fallegur gripur en það
l
er erfitt að afmá sprungurnar. Eins
er það með okkur. Hvenær er
manneskja alveg heilbrigð og heil?
Mér líður afskaplega vel í dag og
þrátt fyrir allt þetta þá stend ég
keik.“
Fyrirlestrar fyrir laskað fólk
- Ég sé á heimasíðu Dramasmiðj-
unnar að þú ætlar að bjóða upp á
fyrirlestra, byggða á bókinni. Hvern-
ig fólk reiknarðu með að komi,
verða það konur eins og þú?
„Það eru ekki aðeins konur sem
búa með alkóhólistum, það er fúllt
af karlmönnum sem þjást vegna
fíknar maka sins. Það er fullt af fólki
sem er með laskaða sjálfsmynd
vegna fíknar sinna nánustu. Kjarn-
inn í mínum bata hefur verið það
starf sem ég hef unnið sjálf innan
samtaka aðstandenda alkóhólista.
Þar eru ekki bara konur.
Ég vil bjóða upp á þessa fyrirlestra
til þess að ræða svona sambönd og
HVERN ÁTTI ÉG AÐ SPYJRA? Hlín segist telja að Þorvaldur, fyrrum ástmaður hennar, hefði
verið sáttur við bókina og segist ekki hafa beðið neinn um sérstakt leyfi til að skrifa hana.
erfiðar tilfinningar en einskorða mig
ekki aðeins við bókina sem slíka. I
okkar samfélagi eigum við ekki
margra kosta völ þegar erfið tilfinn-
ingareynsla er annars vegar. En þeg-
ar maður treystir einhverjum og
segir frá sinni reynslu þá kemst
maður alltaf að því að maður er ekki
einn."
- Þeir sem eru laskaðir eftir
reynslu af þessu tagi, hvort sem það
eru karlar eða konur, geta þeir ekki
læknað sig sjálfir?
„Það er mín trú að þú verðir að
leita þér utanaðkomandi aðstoðar,
þú átt alltaf valið sjálfur um það
hvernig hún er. Hér gildir þó að
Guð, hvemig sem þú vilt skilgreina
hann, hjálpar aðeins þeim sem
hjálpa sér sjálfir. Ef maður hefur
þann vilja sem þarf til að lækna sig
þá kemur hjálpin og hún heitir ekki
endilega Guð,“ segir Hlín að lokum.
polli@dv.is
eru einu rafgeymarnir sem
framleiddir eru með ea/ea,
tækni framtíðarinnar *
Hærra kaldræsi
Hraðari endurhleðsla
Lengri ending
Ekkert viðhald
Delphi rafgeymar: Orugg ræsing þegar á reynir
www.stilling.is
SKEIFUNNI 11 • SÍMI 520 8000
BlLDSHÖFÐA 16 • SlMI 577 1300
DALSHRAUNI 13 ■ SfMI 555 1019
EYRARVEGI 29 • SlMI 483 1800
SMIÐJUVEGI 68 • SlMI 544 8800
Þsir sem hafa áhuga á aJ kynna sér cafca tæknina ar bent á www.stitling.is/rafgeymar
til öryggis