Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Page 20
20 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER2003
FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST2003 DVHELGARBLAÐ
Fyndio og fræoandi kynlíf
Kynlíf hefur verið kallað ópera fátæka
mannsins eða vinsælasta hobbí verald-
ar. Helga Braga Jónsdóttir flytur íslend-
ingum fræðandi kabarett um kynlíf og
samskipti sem farið hefur sigurför um
Evrópu.
Um næstu helgi verður frumsýnt í tónlist-
arhúsinu Ými í Skógarhlíð verk sem ber nafn-
ið 100% hitt með Helgu Brögu lónsdóttur. Á
frummálinu, sem er þýska, er verkið kallað
Seminar Kabarett/199% Sex Therapy.
Þegar maður fer að lesa sér til um þetta sér-
kennilega verk er ýmislegt sem er óljóst hvort
sagt er í fullri alvöru eða argandi gríni. Blaða-
maður DV lagði því hala á bak sér og þramm-
aði upp í Ými þar sem Helga Braga sjálf varð
fyrir svörum.
- Hvað af þessu er í alvöru og hvað ekki?
„Þetta er byggt á fyrirlestrum Bernhards
Ludwigs frá Vínarborg sem er mjög þekktur
og virtur kynlífsþerapisti og atferlisfræðing-
ur. Hann hefur unnið með Frank Farelly sem
er upphafsmaður meðferðaraðferðar sem
kölluð er Provocative Therapy sem er kölluð
ögrandi meðferð," segir Helga Braga og
hijómar rétt eins og sérfræðingur.
Hlegið að vandamálum
„Hann hefur líka starfað mikið með Paul
Watzlawick sem hefur m.a. unnið við MRI,
Mental Research Institute sem er geðrann-
sóknarstofnun í Palo Alto í Bandaríkjunum.
Aðferðir þeirra byggjast á því að fara eins
einfaldar leiðir og hægt er og hlæja að vanda-
málunum. Ef fólk getur hlegið að vandamál-
um sínum þá er það komið hálfa leið til lækn-
ingar. Bernhard hefur sérhæft sig í að vinna
með fólki sem hafði fengið hjartaáfall og var
að byrja að lifa kynlífi aftur. Hann þróaði
þessa fyrirlestra upp í kabaretta sem hafa
verið ógurlega vinsælir. Þessir kabarettar eru
í rauninni bara uppistand.
Hann notaði líka öfugmælastflinn við fyrir-
lestra sína sem hétu nöfnum eins og Hvernig
þú átt að verða virkilega feitur. Hvernig þú átt
að verða virkilega ófullnægður og Hvernig þú
átt að ná þér í gott hjartaáfall," segir Helga og
hlær eins og hross þegar hún telur upp helstu
aðferðirnar til að fá gott hjartaáfall sem eru
náttúrlega að borða mikið feitan mat, hreyfa
sig aldrei, vera alltaf fjallstressaður, taka lffið
mjög alvarlega og æsa sig alltaf úti í umferð-
inni.
- Bernhard Ludwig þótti sem sagt halda
svo fyndna fyrirlestra að hann hefur þróað
þessi þrjú námskeið upp í kabarettsýningar.
Þannig er þetta ekki alveg grín þótt það sýn-
ist vera það að sumu leyti - eða hvað?
„Það er skemmtilegast að vera á mörkun-
um sem er erfitt að skýra út eða flokka," segir
Helga Braga og verður afskaplega óræð til
augnanna.
„Þetta er ekki sýning fyrir
börn því að börn eiga ekki að
lifa kynlífi en þetta getur verið
fræðandi fyrir unglinga.
Ég er ég sjálf
- Það sem síðan gerðist var að íslenskt fyr-
irtæki sem heitir Leikhúsmógúllinn keypti
sýningarréttinn að 100% Sex Therapy utan
þýskumælandi landa og hefur þegar frum-
sýnt verkið í Edinborg. Næsta frumsýning er
hér í Ými í Reykjavík. En hvers vegna tókst þú
þetta hlutverk að þér?
„Sá sem flytur þetta þarf að hafa leikhús-
reynslu en einnig einhverja innsýn eða að
minnsta kosti áhuga á því sem fjallað er um.
Nicola Kesa, sem flutti verkið í Sviss þar sem
það hefur gengið í mörg ár, er vanur grínari
og hefur fengið sérstök kómíkverðlaun fyrir
frammistöðu sína í þessu verki.
Þau sem eiga Leikhúsmógúlinn komu að
máli við mig og töldu að ég ætti að gera þetta
á ísiandi. Þau hafa rætt við marga leikara er-
lendis vegna sýninga þar en sumir urðu svo-
lítið óstyrkir við þetta vegna þess að maður er
ekki í hlutverki. Ég er ekki að leika hlutverk
þarna, ég er bara Helga Braga að tala við fólk
um kynlíf og samskipti. Uppistandarar eru
aldrei í hlutverki þeir eru alltaf þeir sjálfir sem
leikarar eru ekki vanir.“
Líkaði við Ludwig
- Helga Braga annaðist sjónvarpsþætti á
Stöð 2 þar sem hún fjallaði um félagslega og
andlega erfiðleika fólks. Hún segist hafa
stundað sjálfsvinnu í allmörg ár, sótt mörg
námskeið og ferðast um allan heim til að taka
þátt í námskeiðum.
„Allt í mínu gríni virkar auðvitað eins og
rugl eða bull en það byggist samt alltaf í
grunninn á einhverju sem ég vil breyta, ann-
aðhvort í sjálfri mér eða í heiminum."
- Helga Braga fór til Bemhards Ludwigs í
Austurrfki og sá sýningar hans og hann sam-
þykkti hana sem leikara í verkið og hún lætur
vel af samskiptum sínum við harín. Ludwig er
karlmaður en konur hafa flutt verkið í Sviss
og íslandi og í janúar nk. frumsýnir þekkt
hollensk sjónvarpskona verkið í Amsterdam.
Skiptir það einhverju málið gagnvart fyrir-
lestrinum?
„Nei, eiginlega ekki. Áherslan verður svo-
lítið öðmvísi. Hann gerir óskaplega mikið
grín að körlum og sjálfum sér í leiðinni. Þetta
er auðveldara fyrir karl en konu en ég geri í
staðinn grín að okkur konum. Hann er mikið
„átorítef' og hefur sérlega góða návist og
manni líður afskaplega vel nálægt honum því
hann er laus við ógnun.
Ég féll alveg fyrir hans aðferðum og við-
móti og tek hann mér dálítið mikið til fyrir-
myndar."
Tek ekki vinnu frá neinum
- Þegar þú ert ekki í hlutverki heldur þá
ekki fólk að þú sért einhver kynlífsráðgjafi?
„Þetta er sett fram á einfaldan og fyndinn
hátt þótt um djúp mál sé að ræða en ég er
samt enginn sérfræðingur og ég mun ekki
taka vinnuna frá Jónu Ingibjörgu eða Ragn-
heiði Eiríksdóttur. Fólk má alveg líta á mig
sem sérfræðing þetta kvöld en ef það fer að
hringja í mig daginn eftir þá vísa ég því ann-
að. Þetta gerðist stundum þegar ég var með
þáttinn uppi á Stöð 2 og mér tókst alltaf að
höndla það þótt fólk væri að hringja í mig
stöðugt því að ég vísaði því einfaldlega
áfram."
- Erum við mjög hjálparþurfi?
„Ég veit það ekki. Ég vil ekkert dæma um
það. Fólk verður bara að fmna það sjálft."
Ekkert klám
- Nú er mikið talað um kynlíf í okkar sam-
félagi og sumum finnst það jafnvel of mikið
og fyrir stuttu síðan fóru að heyrast orð eins
og klámvæðing. Er þetta mjög opinskátt og
Ég er ekki að leika hlutverk
þarna, ég er bara Helga Braga
að tala við fólk um kynlífog
samskipti.
klámfengið verk?
„Þetta verk er gegn klámvæðingu. Það er
mikið talað um kynlíf f samfélaginu en það er
ekki mikið talað um kynferðislega og tilfinn-
ingalega. nánd. Bernhard er að tala um
hvernig við getum komist nær hvort öðru og
bendir á margar leiðir til þess. Það eru líka
margar skemmtilegar vísindalegar pælingar í
verkinu um það sem gerist í lflcama karls eða
konu við samfarir og fullnægingu.
Hann vitnar í sérfræðingana Baker og Bell-
is sem skrifuðu bókina Stríð sæðisfrumn-
anna. Hann talar mikið um atferli og maka-
val. En þetta er allt á saklausan, fínlegan og
fræðilegan hátt. Ég er mikil pempía sjálf og ef
þetta væri eitthvað gróft þá gæti ég ekki gert
þetta."
Börn og saumaklúbbar
- Er þetta þá fræðandi fyrir fólk?
„Fyrir þá sem hafa eitthvað stúderað á
þessu sviði er þetta fyrst og fremst fyndið en
fyrir marga er þetta fræðandi enda segi ég í
upphafi: „markmið kvöldsins er að gera ásta-
líf fólks betra... enn þá betra" því að lengi má
gott bæta og það er mitt göfuga markmið í líf-
inu eins og Bernhards Ludwigs."
- Er þetta svona „saumaklúbbasýning" eða
hentar þetta öllum?
„Saumaklúbbar eru velkomnir en þær
verða allar að taka karlana með sér. Það er al-
gert skilyrði. Þetta er alls ekki bara kvenna-
sýning því að þetta er mjög mikil karlasýning.
Við höfum verið með nokkrar forsýningar og
það hefur verið mjög gaman að sjá hvað karl-
arnir taka mikinn þátt.“
- Hvað meinarðu, taka þátt? Þarf maður að
vera með?
„Það er leyndarmál en fólk tekur þátt en
það gerir það í hóp og það er enginn tekinn
út úr. Fólk getur því verið öruggt og afslapp-
að.
- Er eitthvert aldurstakmark?
„Þetta er ekki sýning fyrir börn því að börn
eiga ekki að lifa kynlífi en þetta getur verið
fræðandi fyrir unglinga. Þetta er fyrst og
fremst ótrúlega skemmtilegt og ég kolféll fyr-
ir þessu verki,“ segir Helga Braga að lokum.
polli@dv.is