Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Síða 26
26 DVmUGAKBLAB LAUGARDAGUR 11. OKJÓBER 2003
íslendingum líður mjög illa, miðað við vinsældir óhefðbundinna lækninga:
Efþ ú ert hræddur við nálar eða þolir ekki þegar
einhver snertir þig þá skaltu halda þig fjarri
svæðanuddurum, hómópötum eða öðrum þeim
sem stunda óhefðbundnar lækningar. Það kann
hins vegar að vera þess virði fyrir þig að reyna
að komastyfirhræðsluna eða fóbíuna því að út-
lit er fyrir að óhefðbundnar lækningar og með-
ferð geti hjálpað mörgum þeim sem eiga við
ýmsa kvilla að stríða. Að minnsta kosti miðað
við vinsældirgreinanna.
Samkvæmt nýlegri könnun Landlæknisemb-
ættisins leitar fjórði hver íslendingur í slíka með-
ferð, oft eftír að hafa ítrekað reynt að fá bót meina
sinna innan heilbrigðiskerfisins, en þótt smá-
skammtalækningar, nálastungur, eða svæða-
nudd komi ekki í stað hefðbundinnar læknis-
þjónustu þá gæti hér verið um athyglisverða við-
bót að ræða.
Umræðan um óhefðbundnar lækningar á fs-
landi hefur gjaman snúist um loddaraskap og
svindl, og kannski ekki að ástæðulausu þvf að lít-
ið hefur verið vitað og fjallað um slíkar meðferðir
hér á landi. Auk þess er ekki að finna lagaramma
um þá sem stunda óhefðbundnar lækningar en á
næstunni kann að verða breytíng þar á. 1 byrjun
ársins tók til starfa sérstök neírid sem jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra skipaði til að gera út-
tekt á stöðu óhefðbundinna lækninga. Nefndin
hefúr nú skilað af sér áfangaskýrslu en í henni er
meðal annars leitað svara við þeim spumingum
hvað felst í þessum lækningum, að hvaða marki
óhefðbundnar og hefbundnar lækningar vinna
saman og hvaða áhætta íylgir notkun óhefð-
bundinna lækningaaðferða.
Gífurleg aukning hefur orðið á því að fólk leiti
sér óhefðbundinna meðferðarúrræða á borð við
smáskammtalækningar (hómó-patíu), nála-
stungur, svæðanudd, hnykklækningar, huglækn-
ingar og grasa- og náttúmlækningar. Frá árinu
1985 hefur Landfæknisembættið gert kannanir
um þetta efni á 5 ára ff esti og þær sýna ótvírætt að
fólk kýs æ oftar að leita út fýrir hefbundna heil-
brigðisþjónustu. Skoðum þetta nánar:
AUKNIG ÓHEFÐBUNDINNA LÆKNINGA
1985 1990 1995 2000
Svæðanudd 2,7 % 2,8% 12,3% 15,9%
Hnykklækningar 0,1% 0,3% 0,7% 2,3%
Nálastungur 0,3% 0,6% 2,1% 2,8%
Huglækningar 2,0% 1,9% 3,1% 1,0%
Grasa/náttúrulækn 0,3% 2,5% 2,0% 1,7%
Jóga/íhugun 0,7% 0,9% 2,4% 4,2%
Samtals 6,1% 8,9% 22,6% 27,8%
Sprenging hefur orðið á síðustu árum á fjölda
þeirra sem leita sér aðstoðar fyrir utan hið hefð-
bundna heilbrigðiskerfi, og sést það best á þess-
um tölum. Þannig leimðu einungis rífiega 6%
landsmanna til umræddra greina árið 1985, mið-
að við tæplega 28 af hundraði árið 2000. Og þeg-
ar haft er í huga að áhugi Islendinga á jóga og
íhugun hefur aukist til muna á undanfömum
missemm má gera ráð fyrir að þessar tölur séu
mun hærri í dag. Þama er um að ræða fólk úr öll-
um þrepum þjóðfélagsins, en konur em þó í
miklum meirihluta.
Norðmenn og Danir komnir
hvað lengst á þessu sviði
Til að skilja betur út á hvað þetta gengur verð-
ur að skoða umhverfi og aðstæður þeirra sem
stunda þessar lækningar, en þegar mið er tekið af
nágrannaþjóðunum kemur í Ijós að Norðmenn
og Danir em komnir hvað lengst í að fella starf-
semina að einhvers konar formlegu skipulagi, og
viðurkenna hana sem slíka. í Bandaríkjunum
hefúr verið notað ákveðið flokkunarkerfi sem tek-
ur t.d. mið af því hvað felst í tiltekinni meðferð og
hvaða aðferðum er beitt, en flokkamir em þessir:
Hingað til hefúr læknastéttín á íslandi ekki vilj-
að viðurkenna opinberlega það sem í þessu felst,
og togstreita hefur verið áberandi á milli þeirra
hópa sem stunda hefðbundnar lækningar og
þeirra sem fara óhefðbundnari leiðir. Það hljóta
því að teljast merk tímamót að þessir hópa setjast
niður og ræða formlega saman en því fer enn
í' V; "
■
NÁLASTUNGA: Fjórði hver Islendingur leitar í óhefðbundna meðferð til að reyna að fá bót meina sinna.
fjarri að þetta sé óumdeilt mál. Nefndin sem
kannaði stöðu óhefðbundinna lækninga hér á
landi telur til að mynda að heppilegra sé að tala
um óhefðbundna meðferð vegna þess að réttur-
inn til að stunda lækningar og kalla sig lækni sé
lögvarinn. Þama vegur enn fremur þungt að
margar af þeim aðferðum sem teljast til óhefð-
bundinna Iækninga byggjast á aldagömlum hefð-
um sem falla ekki undir viðurkennda heilbrigðis-
þjónustu en miða engu að síður að því að efla og
bæta líkamlega og andlega heilsu manna.
Óumdeilanlegt er að vaxandi áhugi á að leita
nýrra leiða tíl lækninga eða til að bæta heilsuna er
til kominn vegna þess að viðhorf almennings
gagnvart þeim heíúr breyst. Guðmundur Sig-
urðsson, læknir og formaður nefndarinnar, segir
aftur á mótí ekki tímabært að löggilda starfsem-
ina. „Það er hins vegar ljóst að starfsemin er orð-
in það umfangsmikil að til greina kemur að setja
utan um hana einhvers konar lagaramma, til að
tryggja stöðu þeirra sem stunda nám af þessu tagi
og ekki síst til að tryggja eins og kostur er öryggi
BANDARÍSKIR STAÐLAR
1. Heildræn kerfi lækninga.
2. Meðferð sem byggist á tengslum hugar og
líkama.
3. Lífræn meðferð.
4. Aðferð þar sem líkaminn er handleikinn
eða meðhöndlaður.
5. Orkumeðferð.
þeirra sem nýta sér þessa þjónustu. Einnig þarf
að bæta starfsumhverfi þeirra sem þetta stunda,
á þann hátt að það hvetji til metnaðar og ábyrgð-
ar í starfi. Norðmenn settu nýlega lög um óhefð-
bundnar lækningar= sem miða að því að skrá við-
komandi í viðurkennd fagfélög, að uppfyllmm
ákveðnum skilyrðum, og það er í bígerð að setja
slík lög í Danmörku. Þetta er hluti af því sem við
höfum verið að skoða," segir Guðmundur.
Græðarar telja sig
hafa margt fram að færa
Hómópatar og aðrir sem bjóða upp á
óhefðbundnar leiðir til að bæta líðan fólks,
og stuðla þannig að jafnvægi lífsorkunnar,
fagna því að þessi skref séu nú tekin. Þeir
telja sig hafa margt fram að færa til heilbrigð-
isþjónustunnar enda hafa margir af þeim
lært þessi fræði í útlöndum og lagt sig fram
um að sýna metnað í starfi hér á landi.
Nefndin sem kannaði þessi mál skoðaði
hvaða námsleiðir byggju að baki ólíkum
greinum óhefðbundinnar meðferðar. í sum-
um þeirra var um að ræða kunnáttu eftir
kvöld- og helgarnámskeið en í öðrum grein-
um höfðu viðkomandi að baki 3ja til 5 ára
nám á háskólastigi, eins og til að mynda í
nálastungum og smáskammtalækningum.
Það er í raun eðlilegt að fólk hugsi sig tvisvar
JOGA: Fólk úr öllum þrepum þjóðfélagsins nýtir sér þessa þjónustu, konur í miklum meirihluta.