Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Side 31
*S1
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003 DV HELGARBLAÐ 31
er samt að gefa tónlist sína út á plötum
- sem þýðir að sækjast eftir hylli al-
mennings?
„Þetta er auðvitað þversögn. Frægð-
in hefur aldrei verið bensínið á bílinn
íyrir mig. Bensínið er að fá að gera tón-
list og fá að gera tónlist með góðu fólki
eru mikil forréttindi. Þar liggur mitt
kikk. Nýja platan svalaði þessari þörf
minni ríkulega og ég fullyrði að það em
ekki betri textar á annarri plötu um
þessar mundir.
Tónlist kemur til mín á öllum tímum
sólarhringsins og einu sinni var ég
voðalega upptekinn af því að festa
þetta í einhverja geymd en geri það
ekki lengur. Ef það liflr þá lifir það og ég
hef glatað mörgu „snilldarverldnu"
með því einfaldlega að gleyma því. En
ég á ágætan háf og get alltaf reynt aftur
að veiða nýja tónlist."
Maður augnabliksins
Valgeir hefur oft verið lunkinn við að
finna tónlistina sem fólki fellur í geð og
nægir að benda á að mörg að vinsæl-
I ustulögumvinsælustuhljómsveitarls-
lands, Stuðmanna, em úr smiðju Val-
geirs og em enn föst á efnisskrá sveitar-
innar þótt fimmtán ár séu síðan Valgeir
hætti í hljómsveitinni.
„Ég hef samt mikla ánægju af því að
koma fram og spila og þess vegna hef
ég enst lengur í þessum bransa en ég
hefði kannski annars gert. Ég hef gam-
an af því að fanga augnablikið og segja
það sem mér dettur í hug án undirbún-
ings. Það er mikil ögmn í því að takast
á við hið óundirbúna andartak. Ég
ákveð aldrei hvað ég ætla að segja á
sviði heldur læt það koma til mín eins
og tónfistina.
Ef ég hefði safnað saman sumu af
því sem ég hef sagt þá væri ég kannski
skemmtikraftur og lifði á því að endur-
taka mig. En það höfðar ekki til mín og
það er ekki gott fyrir þann sem ætlar að
i lifaafþessu.
Þess vegna er nauðsynlegt að vera
ekki með þetta eina net í sjónum held-
ur hef ég alltaf verið að fást við annað;
sumt tengt tónlist, annað ekki. Það sem
ég er að gera í dag er til dæmis nánast
alveg lanst við tónlist-1' ___
„Mér fannst þetta und-
arlega að orði komist
afmínum gamla fé-
laga. Hann finnursig
knúinn, afeinhverjum
hvötum, til að veitast
að konunni minni í
þessu sambandi."
Rithöfundur í maganum
Valgeir gaf út skáldsögu fyrir tæpum
tíu ámm sem hét Tvær grímur og gerist
í þeirri starfsgrein sem hann er gamal-
kunnugur, en hún gerist í tónlistar-
bransanum og segir frá poppumm og
lífi þeirra og leik. Hann hefur sagt að
hann langi til þess að skrifa aðra.
Stendur það enn til?
„Mig langar til þess en ég hef talið
mér trú um að ég hafi ekki efni á þvf.
Það er gífurlega tímafrekt og er enn
hverfulli vettvangur en tónlisún. Ég get
ekki kvartað undan viðtökum bókar-
innar og það kemur alltaf annað slagið
til mín fólk og vitnar í þessa bók.“
- Er það þá að grafast fyrir um það
hver sé hver í bókinni?
„Nei, enda lagði ég ekkert upp með
slíkt. Allar persónur í bókinni vom
samtíningur og enginn var einhver
einn. Þessi poppheimur er skrýtinn að
mörgu leyti og það var fín ögmn að
reyna að gefa einhvere. konar vitræna
innsýn í hann þar sem sjeppir þeirri
forhlið sem blasir við.Qgewnest til sýn-
is.“
- Um hvað á næsia:skáldsaga að
fjalla?
„Það er engin múgík.Á henni. Ég á
efni sem ég hef verið að kroppa í en
það er vont veður í henni á köflum."
- Nú verða fyrri útgáfutónleikar í
Salnum í Kópavogi laugardaginn 18.
október. Á svo að taka hring um land-
ið?
„Nei, þessi plata er verk margra
manna og hópurinn kemur aðeins
saman stutt og knappt því annað er
ekki hægt tímans vegna. Þessi plata
verður þess vegna að sjá um sig sjálf að
mestu og ég trúi því að hún geti vel
spjarað sig, Hún á sér líf fyrir höndum.“
Hvers vegna varstu ekki kyrr?
Eins og fyrr segir í þessu viðtali hætti
Valgeir sem rytmagítarleikari og söngv-
ari í Stuðmönnum fyrir um það bil
fimmtán ámm. Hann hefur reglulega
verið spurður að því í viðtölum æ síðan
hvers vegna hann hafi hætt í hljóm-
sveitinni og reyndar virðast margir
halda að hann sé enn þá innanborðs.
Nú hefur spumingarinnar verið
spurt svo oft að menn hafa snúið sér að
því að spyrja aðra hljómsveitarmeð-
limi út í málið því Valgeir hefur jafnan
verið frekar fámáll um ástæður þess.
Sigmundur Emir Rúnarsson, sem
heldur úti spjallþættinum Maður á
mann á Skjá einum, spurði Jakob
Magnússon Stuðmann út í ástæður
brotthvarfs Valgeirs á dögunum og það
mátti skilja á svömm Jakobs að ein-
hvers konar valdabarátta þar sem fjöl-
skylda, eða öllu heldur eiginkona, Val-
geirs átti í hlut hefði verið ástæðan. Er
þetta rétt?
„Mér fannst þetta undarlega að orði
komist af mínum gamla félaga. Hann
finnur sig knúinn, af einhverjum hvöt-
um, til að veitast að konunni minni í
þessu sambandi. Jakob var í rauninni
að segja það að sá sem væri meðlimur
f Stuðmönnum ætti aldrei að spyrja
fjölskyldu sína eins eða neins varðandi
vinnuna - Jiljómsveitina í þessu tilfelli.
Skyldi þetta samræmast fjölskyldu-
stefhu Samfylkingarinnar?
I mínu tilfelli var þetta aðeins marg-
slungnara en þetta. Fjölskylda mín
skiptir inig miklu máli og það að vera í
popphljómsveit er ekki fjölskylduvæn
iðja. Þú horfir framan í börnin þín þeg-
ar þau eru að fara í skólann og þú ert
með kinnalit og maskara. Ég Iifi ekki
fyrir svoleiðis andartök og trúi ekki á
svoleiðis íjölskyldulíf.
Ég fann mér heldur ekki lengur stað
í hljómsveitinni. Allt hefur sinn tíma,
ekki satt? Það var tónlistarleg og félags-
leg togstreita í gangi og stöðugt verið
að leita að einhverjum tfðaranda í tón-
listinni sem heyrist glöggt á plötum
þessa tíma. Ástæðan rúmast að heil-
miklu leyti í einu orði sem er „eighties".
„Fjölskylda mín skiptir
mig miklu máli og það
að vera í popphljóm-
sveit er ekki fjölskyldu-
væn iðja. Þú horfir
framan í börnin þín
þegarþau eru að fara í
skólann og þú ert með
kinnalit og maskara."
Ég hef aldrei verið mikill „eighties"
maður og var aldrei.
Mín tónlist hefur alltaf verið rót-
skotnari og leitin að einhverjum hljóm
sem er í tísku hverju sinni er betur
komin í öðrum höndum en mínum.
Mér finnst þær plötur sem ég hef
komið að því að gera, eins og með Spil-
verkinu og frarnan af ferli Stuðmanna,
hafa elst ágætlega á meðan sumt af því
sem Stuðmenn voru að gera á þessum
tíma þegar ég dró mig í hlé eldist ekki
vel fyrir mér.
Við fórum til dæmis í stúdíó í
London á þessum tíma og þar tók ivo
heila daga að finna rétta sándið fyrir
sneriltrommuna meðan gítarhljómur-
inn fékk fimm mínútur. Þetta em
áherslur sem ég finn mig ekki í og em
fjarri því sem ég leita eftir.
Ég átti bara ekki heima í þessari
hljómsveit lengur og var ekki ánægður.
Ég hætti á mínum eigin forsendum og
ég hef endurtekið greint frá minni hlið
málsins í fjölmiðlum síðan ég hætti fyr-
ir 15 ámm. Ég segi eins og Laxness: Er
ekki hægt að lyfta umræðunni á örlítið
hærra plan?" segir Valgeir og glottir
ems og honum einum er lagið.
poW@dv.is
Bensín eða diesel
Suzuki XL-7 er einstaklega vel
búinn 7 manna jeppi, byggður
á grind með háu og lágu urifi,
búinn öflugum en sparneytnum
bensín eða dieselvélum.
Ný glæsileg innrétting og aukinn
staðalbúnaður gera nú góðan
bíl enn betri og aksturinn
ánægjulegan.
SUZUKI BILAR HF
0SUZUKI
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is