Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Blaðsíða 38
58 DVBlLAR LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 2003
Innköllun fjölnotabíla
Hvernig liði þér ef dyrnar á
nýja fjölnotabílnum þínum
opnuðust skyndilega á 90 km
hraða með börnin aftur í?
Þessi galli hefur komið upp í
þremur fjölnotabílum,
Peugeot 807, Citroén C8 og
Fiat Ulysse enda eru þeir allir
nánast sami bíllinn og smíð-
aðir í sömu verksmiðjunni.
Það eru aðallega bílarnir með
rafstýrðu rennihurðunum sem
hættir til að verða fyrir þessu
og er hann rakinn til galla í
hugbúnaði.
Range Rover á grind
Væntanlegur Range Rover Sport
mun ekki vera með sjálfberandi
yfirbyggingu eins og núverandi
Range Rover, ef marka má
orðróm úr innstu herbúðum
Land Rover. Eins verðurfarið
með næstu kynslóðir Discovery
og Range Rover sem einnig
munu notaT5 undirvagninn.
Þótt þetta gæti haft í för með
sér verri aksturseiginleika á mal-
biki er sagt að nýi undirvagninn
tryggi bæði góða malbikseigin-
leika og getu í torfærum. Nýr
Range Rover Sport fær líka vélar
sem varið er í. Meðal þeirra
verður V8 vél frá Jagúar sem
skila mun 450 hestöflum. Það
mun þó ekki verða flaggskipið
því að stærsta vélin verður VI2
og fer aðeins ofan í örfáa sérút-
búna bíla.
Fjölnotabíll frá SsangYong
Þessi mynd náðist nýlega af
fjölnotabíl frá SsangYong við
prófanir í Suður-Kóreu. Bíllinn
notar 2,7 lítra dísilvél af sama
grunni og dísilvélin í Rexton.
Ekkert hefur þó verið ákveðið
hvort þessi bíll kemur til Evr-
ópu þótt það verði þó að telj-
ast líklegt með dísilvélina í
huga.
SSAN6Y0NG: Framleiðandinn
sem hingað til hefur aðallega verið
þekktur fyrir að framleiða jeppa er
nú með fjölnotabíl í burðarliðnum.
Nýjar reglur ESB um sölu á nýjum bílum:
Búast má við að verð
á nýjum bílum hækki
Erna Gísladóttir, formaður Bílgreinasambandsins og framkvæmdastjóri eins stærsta bílaumboðsins, B&L, segir að ýmislegt í samkeppn-
isumhverfinu hér á landi sé þegar töluvert þróaðra en á öðrum mörkuðum í Evróþu.
Nýjar reglur Evrópusambands-
ins um sölu á nýjum bílum inn-
an þess tóku gildi í síðustu
viku. Þeim er ætlað að koma í
veg fyrir að bílar séu einungis
seldir í gegnum einkaumboð
sem framieiðendur veita og er
vonast til að þetta leiði til meiri
samkeppni á bílamarkaði.
Reglunum er ætlað að jafna verð
á nýjum bílum til söluaðila milli
Evrópulanda en hingað til hefur
verið nokkuð mikill munur á milli
landa eftir því hvort hagkvæmir
samningar hafa náðst. Helstu sér-
fræðingar í Evrópu spá því að
kaupendur muni ekki sjá mikinn
mun á verði bfla til að byrja með.
En hvernig skyldi því vera háttað
hérlendis? Mun þetta leiða til ein-
hverra verðbreytinga á næstunni?
Má búast við lægra verði þar sem
íslensk umboð sitja nú við sama
borð og til dæmis umboð í Bret-
landi eða Þýskalandi? Er talið lík-
legt að einhver nýr, stór aðili komi
inn á markaðinn hér? Verður jafn-
vel núna hægt að flytja notaða bfla
úr landi? Að sögn Ernu Gísladótt-
ur, formanns Bflgreinasambands-
ins, er almennt ekki búist við að
verð lækki, frekar að það hækki.
„Þau lönd Evrópu sem hafa verið
með háar álögur á bfla hafa hingað
til keypt á lægra verði en stóru
markaðirnir í t.d. Þýskalandi eða
Bretlandi. Heyrst hefur að fram-
leiðendur séu að samræma verð á
mörkuðum í Evrópu sem leiði til
þess að verð hingað muni senni-
lega hækka frekar," sagði Ema í
viðtali við DV-bfla.
Mismunandi tollar milli
landa
Verðjöfnunin er í grundvallarat-
riðum til komin af því að framleið-
endur hafa lagað útflutningsverð
sitt að tollastigum hvers lands. Þar
sem bflaiðnaðurinn evrópski var
undanþeginn samkeppnislöggjöf
Evrópusambandsins gátu aðildar-
lönd haldið tollastefnu sinni gagn-
vart bflainnflutningi þrátt fyrir
reglur sameiginlega markaðarins.
Um leið og bflaiðnaðurinn verður
felldur undir samkeppnislöggjöf-
ina taka reglur sameiginlega mark-
aðarins við. Óvissan er sem stend-
ur hvort aðildarríki EB (og um ieið
EES) láti mismunandi tolia niður
„Heyrst hefur að fram-
leiðendur séu að sam-
ræma verð á mörkuð-
um í Evrópu sem leiði til
þess að verð hingað
muni sennilega hækka
frekar
falla. Danmörk hefur til að mynda
nýlega unnið mál þar sem þar
verður áfram hægt að rukka ofur-
tolla á bfla en álögur þar í landi
nálgast 200%. „Ýmislegt í sam-
keppnisumhverfinu hér á Iandi er
þegar töluvert þróaðra en á öðrum
mörkuðum í Evrópu - hér eru 'g
mörg fyrirtæki með mörg umboð "g
þannig að hér á landi er þegar
hægt að skoða fleiri en eitt merki á q
sama stað. Hérlendis hefur líka
verið hefð fyrir innflutningi á not-
uðum bflum, bæði frá Evrópu og
Bandaríkjunum, og það hefur
alltafverið eitthvað flutt inn af nýj-
um bflum af öðrum en umboðun-
um. Þannig má segja að þegar sé
komið hér töluvert annað sam-
keppnisumhverfi en þekkist víða í
Evrópu og kannski það sem að
hluta til á að ná fram með þessum
breytingum," sagði Erna.
Lítil álagning hérlendis
„Hér á landi er samkeppnin í
greininni mikil og hart er barist
um hvern kaupanda. Álagning í
greininni er mjög lítil eins og sjá
má af hagnaðartölum umboðanna
síðustu ár. Hér hefur líka verið um
að ræða eitt þrep i dreifingu þar
sem innflytjendur eru lflca smásal-
ar. Umboðin hér lenda því í mikl-
um kostnaði vegna fyrirhafnar við
þessa samninga og dreifist sá
kostnaður á mun færri bfla heldur
en erlendis. Einnig eru gerðar
miklar kröfur til bæði innflytjenda
og söluaðila í samningum sem eru
kostnaðarsamar fyrir umboðin.
Sumar þessara krafna eru mjög
erfiðar í framkvæmd vegna smæð-
ar markaðarins. Það má jafnvel
búast við breytingum á þessum
markaði hér á landi en ég tel að
þær muni gerast hægt. Ekki mun
samkvæmt nýjum samningum
vera hægt að opna útibú milli
landa fyrr en eftir haustið 2005.
Við erum svo í töluverðri fjarlægð
frá aðalmörkuðunum í Evrópu og
eru flutningskostnaður og álögur
háar hér á landi. Það er því ekki
enn sem komið er raunhæft að
flytja bfla aftur úr landi, en það
gæti breyst ef hægt væri að fá end-
urgreidd gjöld sem greidd hafa
verið vegna t.d. bflaleigubfla,"
sagði Erna að lokum. njalt@dv.is
Nýr Laguna á rekstrarleigu frá kr. 36.863
RENAULT LAQUNAll
RENAULT
Laquna II
BREAK
Laguna Berline
Laguna Break
Laguna Berline comf.
Laguna Berline comf.
Laguna Break comf.
Laguna Break comf.
1.8 5 dyra beinskiptur kr. 2.150.000
1.8 5 dyra beinskiptur kr. 2.270.000
2.0 5 dyra beinskiptur kr. 2.350.000
2.0 5 dyra sjálfskiptur kr. 2.490.000
2.0 5 dyra beinskiptur kr. 2.470.000
2.0 5 dyra sjálfskiptur kr. 2.610.000
‘Rekstrarleiga m.v. mánaðarlegar greiöslur í 36 mánuöi, aö teknu tilliti til gengi erlendra mynta og vaxta þeirra.
Smur- og þjónustuskoöanir eru innifaldar í rekstrarleigunni.
EUROJ^
^NCAP
B&L, Grjótháls 1,
sfmi 575 1200
www.bl.is
_______________