Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Page 42

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.2003, Page 42
V 62 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2003 Sakamál Morðóður geðsjúklingur skekur borgina SHERfFF I I 7 3 5 0 SArPiurnTn m Brjálæfilngurinn: Sagðist ekki geta lifað nema drekka mannsblóð. Richard Chase hélt að hann þyrfti að drekka ferskt blóð til að geta lifað. ífyrstu drap hann kanínur og hunda til að gera það en þegar kom að því að það var ekki nóg fylltist hann aftrylltri þörffyrirað finna bragðið afmannsblóði. Hann sagði það koma í veg fyrir að hjarta hans skryppi saman. „Ég varð að gera þetta," sagði Richard Chase við mann sem deildi með honum fangaklefa. „Ég þjáðist af blóðeitrunarsjúk- dómi og þurfti einfaldlega á þessu blóði að halda. Ég var orðinn svo þreyttur á því að elt- ast við dýr til að ná mér í blóð og ákvað því að snúa mér að manneskjum í þeim tilgangi." Blóðsugan í Sacramento í Kaliforníu lét fyrst til skarar skríða í janúar íjrið 1978, þegar hin 22ja ára gamla Teresa Wallin varð fórnar- lamb hennar. Chase hafði fylgst með stúlkunni þegar hann réðst á hana, vopnaður skammbyssu, við heimili hennar. Hann skaut hana í höfuðið og dró hana inn í húsið þar sem hann risti hana á hol, frá brjóstum niður að nafla. Chase reif innyflin út úr stúlkunni og stakk hana með afli í hjartað. í kjölfarið smurði hann andlit sitt með blóði hennar og sleikti blóði drifna flngur sína. Síðan glennti hann fætur hennar sundur og smurði blóð- inu á innanverð lærin. Eftir þetta skelfúega morð fyllti hann tóma jógúrtdós af blóði og drakk það. Hann komst óséður út úr húsi konunnar. Morðið vakti gífurlega skelfingu í Sacramento, en Teresa Wallin var ófrísk, komin þrjá mánuði á leið. Eiginmaður henn- ar kom að lfkinu illa útleiknu. Langaði í meira blóð! Þegar morðinginn, Richard Chase, las um verknað sinn í dagblöðunum daginn eftir fann hann að hann langaði í meira blóð. Dauði annarra fórnarlamba var því innan seilingar. Lögreglan í Sacramento hafði engar vísbendingar sem gátu leitt hana á slóð morðingjgns, en ljóst var að þetta var enginn venjulegur glæpur. „Þetta er ekki maður sem drepur og ákveður einn góð- an veðurdag að hætta því, fá sér vinnu á skrifstofu og greiða stöðumælasektirnar sínar á réttum tíma. Þetta er stórhættulegur maður." „Morðóður brjálæðingur gengur laus,“ sagði Ray Biondi, yfirmaður í morðdeild lög- reglunnar í Sacramento. „Hann hættir ekki að drepa fyrr en okkur tekst að stöðva hann. Þetta er ekki maður sem drepur og ákveður einn góðan veðurdag að hætta því, fá sér vinnu á skrifstofu og greiða stöðumælasekt- irnar sínar á réttum tíma.“ Þegar leið á rannsókn málsins greindu þrír nágrannar Teresu Wallin frá því að maður á þrítugsaldri, skrýtinn í útliti, hefði sést á vappi fyrir framan hús hennar. Hann var grannur, í kringum 185 sentímetrar á hæð, og hafði sést í appelsínugulri skíðaúlpu. Fingraför og önnur sönnunargögn sem fund- ust á heimili Teresu pössuðu ekki við neitt sem var að finna í skrám lögreglunnar. Engu hafði verið stolið á heimilinu og henni hafði ekki verið nauðgað. Undarlegur og sérvitur einfari Þeir sem þekktu Richard Chase sögðu að hann væri mjög undarlegur og sérvitur en engan grunaði að sérviskan myndi leiða til ógeðslegs ofbeldis. Engum datt í hug að hann hefði myrt stúlkuna. Hann hafði hins vegar farið illa með dýr frá því hann var lítill strák- ur, sem er eitt helsta einkenni raðmorðingja. Vitað var að Chase átti við getuleysi að stríða -^.og hann var einfari með fíkniefnavanda. Eitt helsta áhugamál hans var að strippa allsnak- inn fýrir framan ókunnuga. Læknir úrskurð- aði hann á sínum tíma með alvarlegan geð- sjúkdóm, meðal annars í kjölfar þess að hann kvartaði yfir því á neyðarmóttöku sjúkrahúss að hann gæti ekki andað þar sem einhver hefði rifið út úr honum aðalslagæðina. Skömmu eftir þetta var hann lagður inn á geðsjúkrahús vegna geðklofa. Tíminn leið og Richard Chase var komið fyrir í lítilli íbúð í Sacramento, þar sem hann lifði á bótum. Hann taldi sig þjást af hættu- legri blóðeitrun og byrjaði að drekka dýra- blóð til að reyna að halda sér á lífi. Til að byrja með keypti hann sér kanínur sem hann drap sfðan og borðaði hráar. Hann sprautaði einnig blóði dýranna í sig með sprautu og kvaldist af sársauka. Aftur var hann lagður inn á geðsjúkrahús og nú voru menn farnir að gera sér grein fyrir því að þama væri hættulega sjúkur maður á ferð. f janúar árið 1976 var hann færður yfir á geðdeild fyrir menn sem taldir voru mjög hættulegir. Ekki leið á löngu þar til dauðir fuglar fóru að finn- ast í klefa hans, en Richard sagðist hafa skor- ið sig við rakstur þegar hann var spurður um það hvers vegna hann væri útataður í blóði. Seinna sagðist hann hafa drepið fuglana vegna þess að hann þurfti á blóðinu að halda. í september árið 1976 virtist sem hann væri aðeins að ná heilsu og var hann útskrifaður af geðsjúkrahúsinu gegn því að hann tæki inn mikið af lyfjum. Risti heila fjölskyldu á hol Rúmu ári síðar var hann handtekinn í Nevada af lögreglumanni sem fann hann liggjandi nakinn og útataðan í blóði. Hann Blóðsugan: Blóðþyrsti geðsjúklingurinn sagðist ekkert hafa gert af sér, nema kannski drepið hunda. Fjölskyldumorð: Eveleyn Miroth var, ásamt eigin- manni sínum og syni, myrt og rist á hol. hélt á blóðugri lifur en við rannsókn kom í ljós að hún var úr kú og var honum sleppt. í desember árið 1977 keypti Richard sér skammbyssu og nokkrum dögum eftir það sá hann rúmlega fimmtuga konu, Ambrose Griffin, ganga heim til sín með matvörupoka. Hann myrti hana með því að skjóta hana í brjóstið og ók í burtu eftir atburðinn sem enginn hafði orðið vitni að. Um það bil mán- uði síðar myrti hann Teresu Wallin með köldu blóði og var talað um Drakúlamorð- ingjann. Fjórum dögum eftir morðið á Ter- esu lét Drakúla aftur á sér kræla. Hann réðst á og skaut til bana 38 ára konu, Evelyn Miroth, við heimili hennar. Eiginmaður hennar og 6 ára sonur heyrðu skothvellinn úr stofunni og þegar þeir hlupu út til að athuga hvað væri á seyði skaut Richard Chase feðgana til bana, báða í höfuðið. Inni á heim- ilinu var enn fremur 22ja mánaða gamalt barn, sem fjölskyldan hafði passað, og geð- sjúki morðinginn myrti það líka þar sem það lá í barnarúminu. Hann risti alla fjölskylduna á hol, drakk blóð allra þeirra sem hann hafði drepið og tók að lokum lík ungbarnsins með sér heim til sín, þar sem hann skar út heila þess og borðaði. Dæmdur til dauða í gasklefa Lögreglan í Sacramento herti nú til muna leitina að morðingjanum og henni tókst að hafa hendur í hári hans eftir að bifreið eins fórnarlambanna fannst við heimili hans en hann hafði stolið bflnum. Chase sagðist ekk- ert hafa brotið af sér þegar hann var handtek- inn, nema kannski drepið nokkra hunda, og viðurkenndi að hafa drukkið hundablóð og étið innyfli dýranna. Við rannsókn málsins fundust leifar af barnsheilanum á rúminu hans og í ísskápnum heima hjá honum voru birgðir af alls konar innyflum og blóði. Fljót- lega tókst að sanna að hann bæri ábyrgð á morðunum á Ambrose Griffin og Teresu Wallin og Miroth-fjölskyldunni. Chase var fundinn sekur um sex morð og var dæmdur til dauða í gasklefa San Quentin-fangelsisins í Kaliforníu. Skömmu áður en taka átti hann af lífi framdi hann sjálfsmorð í fangelsinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.