Dagblaðið - 05.05.1976, Side 15
DAC5BLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1976.
✓
Séð yfir Hallærisplanið, heiztu stoppistöð rúntsins. Þarna situr fóikið oft langtímunum saman og
hesthúsar pulsur og kók frá Þöll.
Krafturinn milli fótanna le.vnir sér ekki. Einn mótorhjólagæinn
sýnir félögum sínum prjónaskapinn.
Velflestir Reykvíkingar, sem
hafa eytt unglings- og mann-
dómsárum sínum á mölinni í
Reykjavík, kannast við rúntinn
- ef ekki af eigin raun þá af
afspurn. Árum saman kvöld
eftir kvöld og hring eftir hring
ekur unga fólkið um miðbæinn
til að sýna sig og sjá aðra.
Sigurður Þórarinsson jarð-
fræðingur lýsti rúntinum í
raun og veru betur en nokkur
blaðagrein getur gert í texta
sínum við lag eftir Evert
Taube:
Keyra rúntinn piltar,
sem eru í stelpuleit...
Rúnturinn í dag er nokkuð
breyttur frá því sem áður var.
Þá var Austurstrætið - með
Hallærisplaninu sem endastöð
— aðalgatan. Einnig var ekið
um Aðalstræti, Kirkjustræti,
Lækjargötu og síðan aftur út í
Austurstræti, hring eftir
hring...
Eftir að helmingur Austur-
strætis var gerður að göngu-
götu breyttist rúnturinn
nokkuð. Nú er ekið Lækjar-
götu, Kirkjustræti og Póst-
DB-myndir:
Ragnar Th. Sigurðsson.
hússtræti, Austurstræti með
Hallærisplanið sem miðpunkt
og síðan út í Aðalstræti. Þaðan
er um að velja að fara Hafnar-
strætið á enda og út í Lækjar-
götu á ný eða að fara upp
Vesturgötu, inn í Garðastræti,
niður Túngötu og inn í Vonar-
strætið og svo sama rúntinn
aftur.
Þeir, sem eru lítið fyrir að
fara alltaf sama hringinn, geta
tekið alls konar tilbrigði eftir
eigin geðþótta því að nóg er af
öngstrætunum í miðbænum.
En hvað í ósköpunum er ég
eiginlega að mala. Rúntinum
þarf varla að lýsa fyrir
nokkrum íslendingi sem á
annað borð hefur gist höfuð-
borgina. Látum myndir
Ragnars Th. tala sínu máli. Þær
voru teknar fyrir nokkrum
vikum á rúntinum og lýsa hon-
um að svolitlu leyti. Þetta er þó
engin allsherjar úttekt á þessu
reykvíska og um leið alþjóðlega
menningarfyrirbæri því að í
miðbænum er alltaf eitthvað að
gerast og nægði vart heilt Dag-
blað til að lýsa öllum til-
brigðum lifsins þar.
-ÁT.
Gangtrufianir i pabbabíl. Forvitnir vélaáhugamenn flykkjast aö til
að gefa góð ráð.
Lögreglan er lítt hrifin af samsöfnuðinum á Hallærisplaninu.
Gríska herforingjastjórnin tók sömu afstöðu til mannsafnaða á
götuhornum. Hér lokar Svarta-María Austurstrætinu til að hindra
Mótorhjól af öllum stærðum og
gerðum má sjá á rúntinum.
Hérna er það minnsta og það
stærsta úr Honduf jölskvld-
unni.
RUNTURINN
Það spillir svo sem ekki að hafa eina laglega og sæta fyrir aflan sig „Og svo færðu einn koss vegna Eftir að mótorhjólaeign unga fólksins stórjókst eru mótorhjóla-
þi‘gar rúnturinn er þaninn. þoss livaú þú ort 1 jótur.” ga'arnir orúnir oniissandi atriúi á rúntinum.
l - ------- — - -------