Dagblaðið - 05.05.1976, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 05.05.1976, Blaðsíða 15
DAC5BLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 1976. ✓ Séð yfir Hallærisplanið, heiztu stoppistöð rúntsins. Þarna situr fóikið oft langtímunum saman og hesthúsar pulsur og kók frá Þöll. Krafturinn milli fótanna le.vnir sér ekki. Einn mótorhjólagæinn sýnir félögum sínum prjónaskapinn. Velflestir Reykvíkingar, sem hafa eytt unglings- og mann- dómsárum sínum á mölinni í Reykjavík, kannast við rúntinn - ef ekki af eigin raun þá af afspurn. Árum saman kvöld eftir kvöld og hring eftir hring ekur unga fólkið um miðbæinn til að sýna sig og sjá aðra. Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur lýsti rúntinum í raun og veru betur en nokkur blaðagrein getur gert í texta sínum við lag eftir Evert Taube: Keyra rúntinn piltar, sem eru í stelpuleit... Rúnturinn í dag er nokkuð breyttur frá því sem áður var. Þá var Austurstrætið - með Hallærisplaninu sem endastöð — aðalgatan. Einnig var ekið um Aðalstræti, Kirkjustræti, Lækjargötu og síðan aftur út í Austurstræti, hring eftir hring... Eftir að helmingur Austur- strætis var gerður að göngu- götu breyttist rúnturinn nokkuð. Nú er ekið Lækjar- götu, Kirkjustræti og Póst- DB-myndir: Ragnar Th. Sigurðsson. hússtræti, Austurstræti með Hallærisplanið sem miðpunkt og síðan út í Aðalstræti. Þaðan er um að velja að fara Hafnar- strætið á enda og út í Lækjar- götu á ný eða að fara upp Vesturgötu, inn í Garðastræti, niður Túngötu og inn í Vonar- strætið og svo sama rúntinn aftur. Þeir, sem eru lítið fyrir að fara alltaf sama hringinn, geta tekið alls konar tilbrigði eftir eigin geðþótta því að nóg er af öngstrætunum í miðbænum. En hvað í ósköpunum er ég eiginlega að mala. Rúntinum þarf varla að lýsa fyrir nokkrum íslendingi sem á annað borð hefur gist höfuð- borgina. Látum myndir Ragnars Th. tala sínu máli. Þær voru teknar fyrir nokkrum vikum á rúntinum og lýsa hon- um að svolitlu leyti. Þetta er þó engin allsherjar úttekt á þessu reykvíska og um leið alþjóðlega menningarfyrirbæri því að í miðbænum er alltaf eitthvað að gerast og nægði vart heilt Dag- blað til að lýsa öllum til- brigðum lifsins þar. -ÁT. Gangtrufianir i pabbabíl. Forvitnir vélaáhugamenn flykkjast aö til að gefa góð ráð. Lögreglan er lítt hrifin af samsöfnuðinum á Hallærisplaninu. Gríska herforingjastjórnin tók sömu afstöðu til mannsafnaða á götuhornum. Hér lokar Svarta-María Austurstrætinu til að hindra Mótorhjól af öllum stærðum og gerðum má sjá á rúntinum. Hérna er það minnsta og það stærsta úr Honduf jölskvld- unni. RUNTURINN Það spillir svo sem ekki að hafa eina laglega og sæta fyrir aflan sig „Og svo færðu einn koss vegna Eftir að mótorhjólaeign unga fólksins stórjókst eru mótorhjóla- þi‘gar rúnturinn er þaninn. þoss livaú þú ort 1 jótur.” ga'arnir orúnir oniissandi atriúi á rúntinum. l - ------- — - -------

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.