Dagblaðið - 02.07.1976, Blaðsíða 8
8
r
DAGBLAEIÐ — FÖSTUDAGUR 2. JULl 1976.
Verkfall verkf rœðinga borgarinnar:
Hvorugur oðilinn viss um
lögmœti verkfallsins
„Jæja, piltar, svona kemur
þetta til með að ganga næstu
vikur. Og ef þið ætlið að reyna
að stöðva þetta er til 160 manna
lögreglulið hér i borginni."
Þetta segir Kristinn Magnússon
verkfræðingur að séu orð sem
Magnús Öskarsson starfs-
mannastjóri borgarinnar
viðhafði á skrifstofu byggingar-
fulltrúa síðastliðinn miðviku-
dag.
„Við erum stöðugt að slaka á
okkar kröfurn," sagði Gunnar
H. Gunnarsson formaður
samninganefndar verk-
fræðinga hjá Reykjavíkurborg.
Kvað hann siðustu kröfu þeirra
hljóða upp á 11% hækkun í
fyrst áfanga, 12% i næsta og
13% í þeim þriðja. Gagntilboð
borgarinnar væri 6%, 8% og
6% Þetta sagði Magnús Óskars-
son hins vegar að væri rangt
farið með.
Taldi Gunnar að borgin hefði
engan samningsvilja sýnt. Til
dæmis hefðu þeir til að byrja
með boðið hækkun frá fyrsta
marz en nú neituðu þeir að
greiða aftur í tímann.
Gunnar kvað verkfræðinga
hafa farið í 2 stutt verkföll,
annað siðast í maí og hitt f
byrjun júní, hefðu þau staðið i
2 daga. A fimmtudag 24.6.
hófst síðan verkfall hjá 2 verk-
fræðingum sem starfa hjá
byggingarfulltrúa, en þar
starfa 30 manns. Gunnar sagði
að starf þessara manna hefðu
verið að yfirfara og árita
teikningar auk úttektar sem
þeir hefðu gert á byggingum.
Verkfall þetta stendur enn.
Átökin í gær sagði hann að
FIAT KINKAUMBOÐ A ISI.AND
Davíð Sigurðsson h.f.
SÍDUMÚLA 35 Sími 38881.
gasfylling á
allar stærðir
gashylkja
GASBYRGÐASTÖÐ
SÍMI 81675
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA
KL. 8 — 12 og 13 — 18
LAUGARDAGA
9 — 12
hefðu byrjað með því, að
Magnús Óskarsson hefði mætt
með Pál Líndal borgarlögmann
og 2 lögregluþjóna. Einn
viðskiptavinur var með þeim.
Taldi Gunnar að þetta hefði
verið-sviðsett til þess að unnt
væri að sýna lögreglunni
hvað væri að gerast. Tókst
byggingarfulltrúum að ná í
nokkrar teikningar meðan að
stóð í stappi með það hvorfr
maðurinn fengi afgreiðslu.
Gunnar sagði að þvi væri
haldið fram af borgaryfir-
völdum að verkfallið væri
ólöglegt, en þeir hefu hins
vegar ekki kært það. Verkfallið
var boðað með V4 mánaðar
fyrirvara.
A þriðjudaginn skellur á
verkfall hjá 5 verkfræðingum f
mælingadeild, hafi samningar
ekki tekizt.
„Ég tel það mjög alvarlegt að
borgin skuli fara út 1 það að
reyna að brjóta verkfallið á bak
aftur. Önnur verkalýðsfélög
hafa fengið að vera í friði með
þau,“ sagði Gunnar Gunnarsson
að lokum.
Sjónarmið borgarinnar
„Við báðum lögregluna ekki
um að hafa afskipti af
verkfallinu. Hún yar fengin til
þess að gera skýrslu uni það,“
sagði Magnús Óskarsson um
síðustu árekstrana í deilu
borgaryfirvalda við verk-
fræðingana.
Hann kvaðst hafa beðið
byggingarfulltrúann um að láta
sig vita ef einhver kæmi út af
teikningu. Þegar hann hefði
komið á skrifstofuna hefðu
verkfræðingarnir meinað
manninum að afhenda
teikningu sfna. Þeir hefðu
heldur ekki leyft honum að tala
við byggingarfulltrúann.
Magnús vitnaði í byggingar-
samþykkt Reykjavíkurborgar,
en f 8. gr. segir: „Skylt er að
láta byggingarfulltrúa í té sér-
uppdrætti... og eru uppdrættir
og útreikningar háðir samþykki
hans.“ Hann sagðist telja það
afar undarlegt, að menn, sem
hefðu verið ráðnir til að aðstoða
byggingarfulltrúann við starf
hans, teldu sér heimilt að
meina honum, með líkamlegri
hindrun, aðgang að teikningun-
um.
Þegar Magnús va'r spurður
um lögmæti verkfallsins, kvað
hann það vera mjög umdeilt.
Það tæki hins vegar 3 vikur að
fá úrskurð félagsdóms. Séu
ákvörðun hefði þvi verið tekin
að láta verkfræðingana eiga
fyrsta leikinn eftir að verkfalls-
hótunin kom fram.
Þeir tveir verkfræðingar, sem
eru í verkfalli, hafa f fastalaun
140 þúsund krónur. Þeim voru
boðnar 163.153 krónur á
mánuði, en það tilboð þótti ekki
’ aðgengilegt af hálfu verk-
fræðingafélagsins.
MANAÐARAFMÆU
YFIRVINNUBANNSINS
Á SUNNUDAGINN
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
„A almennum félagsfundi
sem haldinn var f fyrradag sam-
þykkti meirihluti fundarmanna
að halda áfram verkfallinu,"
sagði Dóra Ingvadóttir, formaður
starfsmannafélags útvarpsins.
Nú hefur yfirvinnubannið
staðið í einn mánuð, eða frá 4.
júní og hlustendur eru farnir að
venjast því að heyra ekki lengur
fréttaauka og flest það efni sem
unnið hefur verið i eftirvinnu.
Sáarast hefur þeim eflaust þótt að
fá ekki beinar útsendingar frá
hljómleikum sem haldnar voru á
listahátíðinni.
„Kjaranefnd sem skipuð var af
hæstarétti til að fjalla um deilu
þessa, mun skila úrskurði sínum
eftir tíu daga eða hálfan mánuð
og mun yfirvinnubannið standa
a.m.k. i þann tíma,“ sagði Dóra
ennfremur. „Er kjaranefndin
hefur skilað úrskurðinum mun
félagsfundur síðan fjalla um þær
tillögur sem þar koma fram og
greiða atkvæði um þær. Félags-
fundurinn ræður því endanlega
hvort starfsmenn útvarpsins létta
af yfirvinnubanninu.
Nýstárlegar rannsóknir:
Mannlíf sunnan
Skarðsheiðar
Nú í sumar var hafizt handa við
rannsókn á menningarsögu
byggða sunnan Skarðsheiðar.
Þeir sem að rannsókninni standa
eru fyrrverandi og núverandi
nemendur í fornleifafræði, þjóð-
hátta- og þjóðfræðum, þjóðfélags-
fræðum og sagnfræði, alls 6
aðilar, þar af þrír sem þegar hafa
lokið námi.
Að tvennu leyti má segja, að
um nokkra frumraun þjóðlifs-
rannsókna sé að ræða. I fyrsta
lagi er þetta mjög yfirgripsmikið
verk þar sem rannsakaðir verða
allir hlutar byggðasögu svæðisins
af ólíkum aðilum, en það hefur
ekki verið re.vnt hér áður, heldur
hafa einstakar greinar verið
teknar út úr og rannsakaðar. Er
hér því um nýtt samstarf að ræða
meðal þessara aðila. I öðru lagi
hefur ekki fyrr verið könnuð
menningarsaga svo afmarkaðs
svæðis. en sú aðferð svæðiskönn-
unar hefur reynzt notadrýgst
inannlífsrannsóknum i nágranna-
löndunum.
í sumar verður aðallega unnið
að söfnun ritaðra heimilda og
búin til skrá yfir þau gögn sem til
eru, en gert er ráð fyrir að fram-
haldsrannsóknir standi næstu
sumur. Rannsókn þessi er að
mestu fjármögnuð af Vísindasjóði
íslands, en unnið er í samráði við
og með nokkrum fjárstyrk Sagn-
fræðistofnunar Háskólans, Þjóð-
minjasafn Islands og Stofnunar
Arna Magnússonar.
Segja má að kveikjan að
könnuninni hafi komið frá.náms-
fólki í Lundi i Svíþjóð, sem sendi
frá sér mjög ítarlegt skjal um
mannlifsrannsóknir, og varð það
til að vekja athygli á mikilvægi
samstarfs þessara óliku aðila.
Rannsóknirnar í sumar verða
takmarkaðar við um eins
mánaðar tímabil. þar sem fjár-
vjeitingar leyfa ekki meira. en
vonazt er til. að á komandi
sumrum re.vnist unnt að halda
könnuninni gangandi sem lengst,
svo að árangur hennar megi sem
f.vrst koma fyrir alntennings
sjónir.
JB
Nýja heimavistin á Dalvík sem
rekin er sem hótel á sumrin.
Dalvíkingar koma
upp bœttri
hótelaðstöðu
Nýlega var nýreist heima-
vist Gagnfræðaskólans á
Dalvík tekin í notkun sem
sumarhótel.
I þessari nýju byggingu eru
tuttugu stór tveggja manna
herbergi á tveimur hæðum.
Hreinlætisaðstaða er öll eins
og bezt verður á kosið. Gesta-
móttaka er í Víkurröst, en
heimavistin stendur skammt
sunnan við hana og þar eru
einnig seldar veitingar.
Samkomusalur Víkurrastar
hentar vel til ráðstefnuhalds.
Eru Dalvíkingar að vonum
hinir ánægðustu með þessa
viðbót og telja sig nú tilbúna
að taka við hinum aukna
straumi Terðafólks til
bæjarins. Töluvert hefur
aukizt að ferðamenn sem
leggja upp hringveginn, taki
á sig smá aukakróka á
afskekktari staði. Fara
margir veginn fyrir Ó!afs-
fjarðarmúla og til Dalvíkur.
Þaðan er síðan greiðfær leið
um nágrannabyggðir og inn til
Akureyrar.
—JB
Hótel Bjarg
opið allt órið
Þau mistök urðu í hótel-
úttekt þeirri sem birtist í DB
28. júní sl. að Hótel Bjarg,
Búðardal, var sagt sumarhótel,
en það er opið allt árið.
Rétt átti málsgreinin að vera
svona:
Hótel Bjarg, Búðardal. Verð
hvert rúm kr. 1.200. Verð á
morgunverði er misjafnt en
máltíðir kosta kr. 660—1500.
A hótelinu eru 15 rúm, og er
það opið allt árið.
Sumarhótel
í Hornafirði
I samantekt DB á sumar-
hótelurii víðs vegar um landið
á mánudaginn, láðist að geta
um sumarhótelið í Nesjaskóla í
Hornafirði. Þetta er þriðja
sumarið sem hótelið er rekið.
Þar eru 26 herbergi méð
handlaug og 9 herbergi án
handlaugar, allt tveggja
manna. Með handlaug kosta
herbergi fyrir tvo kr. 2900, kr.
2000 fyrir einn. Án handlaugar
kostar tveggja manna herbergi
2400 kr„ en 1500 kr. fyrir einn.
Einnig er hægt að fá svefn-
pokapláss og kostar það kr. 700
á herbergi en kr. 600 í skóla-
stofu. Morgunmaturinn í
Nesjaskóla kostar.kr. 500.
Hótelstjórinn er Karl Rafns-
son og sagði hann að mjög góð
aðstaða væri til funda- og
ráðstefnuhalds í hótelinu.
Hótelgestir geta farið í skipu-
lagðar skoðunarferðir um ná-
grennið.