Dagblaðið - 21.01.1977, Page 1
3. ARG. — FÖSTUDAGUR 21. JANUAR 1977 — 17. TBL. RITSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12 Slml 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA. ÞVERHOLTI 2. SÍMI 27022.
Tveir mánuðir í næstu
skjálftahrinu við Kröflu
— að mati Eysteins Tryggvasonar, jarðeðlisfræðings
Jarðskjálftahrinan á Kröflu-
svæðinu er að hjaðna niður í
bili og hefur dregið mjög veru-
lega úr skjálftum þar og í ná-
grenninu. Eysteinn Tryggva-
son, jarðeðlisfræðingur, sagði í
samtali við fréttamann blaðsins-
i morgun, að sín ágizkun væri
sú að næsta hrina gæti komið
eftir tvo mánuði.
„Norðurendi stöðvarhússins
hefur ekkert sigið frá því um
kl. 20 í gærkvöld,“ sagði Ey-
steinn, ,,en þá hafði hann sigið
um 6.85 mm frá því að hrinan
hófst tuttugu klukkustundum
áður. Eftir tvo mánuði ætti
húsið að hafa hækkað aftur upp
í þá hæð sem það var í, áður en
það tók að síga í fyrrinótt.“
Jarðskjálftamælar í Mývatns-
sveit sýndu, að sl. nótt og í
morgun varð einn skjálfti á ca
tuttugu mínútna fresti, en þeir
voru 2—3 á mínútu á meðan
hræringarnar voru mestar.
Smáskjálftar mælast enn.
„Þetta hefði þótt líflegt fyrir
eins og tveimur dögum,“ sagði
Eysteinn Tryggvason í morgun,
„en nú er þetta greinilega að
deyja út í bili.“
Að sögn Eysteins virðast upp-
tök jarðhræringanna nú vera í
Gjástykki og jafnvel norðar,
þannig sýni Gæsadalsmælir að
upptök skjálfta þar séu í um
það bil 15 km fjarlægð.
Tveir jarðvísindamenn, þeir
Karl Grönvoíd og Oddur
Sigurðsson, fóru i gær norður
í Gjástykki og urðu þar varir
yið töluvert jarðrask, svo og
nýtt jarðhitasvæði um einn ha.
að stærð.
„Þetta var nú líklega ekki
eins nýtt og þeir héldu," sagði
Eysteinn í morgun. „Heima-
menn segja mér að þarna hafi
rokið í nóvember þegar sú
hrina gekk yfir, en það virðist
síðan hafa hætt þangað til nú.“
-ÓV.
Sumarbústaður brann i Almannada!
Slökkviliðið var kvatt út
laust eftir klukkan 18 í gær-
kvöld. Eldur hafði komið upp í
tveggja hæða sumarbústað í
Almannadal i Reynisvatns-
landi, skammt fyrir ofan
sprengiefnagcymslurnar.
Að sögn slökkviliðsins gekk
slökkvistarfið vel miðað við að
ekkert vatn var að fá þarna
efra og varð að selflytja það úr
bænum. Öllu slökkvistarfi var
lokið f.vrir klukkan tíu.
Húsið sem brann var tvílyft.
gamalt timburhús sem hefur
verið flutt i heilu lagi þarna
upp eftir. Svo mikill eldur var
í húsinu á tímabili, að sjónar-
vottur, sem var staddur á
Bústaðaveginum sagðist hafa
séð himininn lýsast upp. —
Húsið brann til kaldra kola.
Eldsupptök eru ókunn og
erfitt var um rannsókn á þeim
í gærkvöld sökum myrkurs. —
DB-m.vnd Sveinn Þorm.
*
Heimdelling-
ar vilja Ólaf
og Einar úr
stjórn ella
stjórnarslit
Sjábls.9
Hvers vegna eru f ramsóknarmenn
bendlaðir við skuggaleg mál?
Sjá föstudagskjallara
__________Vilmundar Gylfasonar á bls. 11
Álverið er böggull semmenn taka ef
þeirfánýjahöfn — Sjábls.9
i
1
1
\
\
\
Leitin að fíkniefnafanganum:
SPOR EFTIR
„KORKY” NIÐUR
í FLÆÐARMÁL
Höfuðpaurinn í fíkniefnaínn-
flutningi inn á Keflavíkurflug-
völl, Christopher Barbar Smith,
alias „Korky", sem strauk úr
fangelsi varnarliðsins í fyrra-
kvöld, var ófundinn í morgun.
Hvít Toyota Crown stationbif-
reið, JO-7517, fannst í gær-
morgun fyrir austan Grindavík.
Fannst hún í malarnámu í
Hraunslandi um 3 km frá þorp-
inú.
Frá bifrgiðinni sáust liggja
spor niður að sjó eftir sams
konar skófatnað og stroku-
maðurinn er talinn hafa verið í.
Mikil leit var gerð í allan
gærdag hjá mönnum, sem tald-
ir voru í kunningsskaparsam-
bandi við strokufangann. Ekki
bar hún neinn árangur, sem
fvrr segir.
A undanförnum tveim til
þrem árum hefur maður þessi
oftar en einu sinni komið við
sögu vegna fíkniefnaviðskipta.
Virðist hann hafa haft mikil
fjárráð og meðal annars keypt
tugi kílóa af hassi fyrir tugi
milljóna króna árlega af
ýmsum aðilum og flutt það til
sölu inn á Keflavíkurflugvöll.
Leitin að „Korky“ heldur
áfram.
Á öllum viðskiptaháttum
„Korky“ telja kunnugir greini-
legt handbragð „atvinnu-
manns". Hefur sú tilgáta fengið
byr undir vængi, að hann hafi
undirbúið strok úr fangelsinu
vandlega, og haft um það meiri
f.vrirhyggju en svo, að flóttan-
um hafi lokið í Grindavíkur-
fjöru, þótt erfitt sé að átta sig á
því, hvernig hann hefði til
dæmis komizt úr landi. BS