Dagblaðið - 27.12.1977, Page 1
/
/
rl frfálst,
'úháð
dagblað
3. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 27. DES. 1977 — 288. TBL. RITSTJÖRN sMÐl'Mt'LA 12. Al'GL ÝSINGAR ÞVERHOLTI 11. AFGREIÖSLA ÞVERHOLTI 2. — AÖALSÍMI 27022.
Deildarst jórinn dró sér verulegt f é:
Vantar skýringar á 35-40
milljónum hjá Sindra einum
talið að deildarstjórinn haf i notið aðstoðar annarra án þess þeir vissu tilganginn
Endurskoðunardeild Lands-
banka tslands hefur leitt i ljós
stórfellt misferli hjá deildar-
stjóra ábyrgðadeildar bankans,
Hauki Heiðar. Hefur stjórn
Landsbankans krafizt rann-
sóknar á grundvelli þeirrar at-
hugunar. Er málið nú í rann-
sókn hjá rannsóknarlögreglu
ríkisins. Hefur forstöðumaður-
inn verið úrskurðaður í gæzlu-
varðhald allt til 1. febrúar
næstkomandi vegna rann-
sóknarinnar.
Við bókhaldsathugun urðu
forráðamenn Sindra hf. í
Reykjavík varir við reikning
fyrir ábyrgðargreiðslu í Lands-
bankanum, sem ekki virtist
ganga upp við bókhald fyrir-
tækisins. Var þá fengið ljósrit
af reikmngum frá ábyrgðadeild
bankans. Samkvæmt því var
augljós verulegur mismunur á
tveim reikningum yfir sömu
ábyrgðir eða kröfur. Munurinn
lá meðal annars í kostnaðarlið-
um og vöxtum, sem hækkuðu
verulega reikninginn sem
greitt var eftir.
Um hálfur mánuður er nú
liðinn frá því þessi athugun
hófst. Östaðfestar fregnir
herma, að skort hafi skýringar
á á milli 35 og 40 milljónum
króna hjá Sinda h.f. einum,
þegar bankinn lét til skarar
skríða og opinberrar rann-
sóknar var óskað í málinu.
Ösennilegt er talið að forstöðu-
maðurinn hafi getað dregið sér
fé án þess að hann hafi með
einhverjum hætti notið aðstoð-
ar annars starfsmanns eða
starfsmanna. Ekkert bendir þó
enn til þess, að sá eða þeir, sem
hana veittu, hafi haft hugmynd
um tilganginn og sennilegt að
þ?.' hafi aðeins verið hlýtt fyrir-
mæ um deildarstjórans.
,,l>etta er fyrst og fremst
eftirlitsleysi, bæði bankans og
okkar," sagði Einar Ásmunds-
son í Sindra er DB bar þessar
fréttir undir hann í morgun.
„Ég er búinn að eiga viðskipti
við bankann í áratugi, en aldrei
haft bein viðskipti við þessa
deild. Þetta kom mér þvf veru-
lega á óvart,“ sagði Einar
Ásmundsson. Að öðru leyti
vildi hann ekki tjá sig um málið
þar sem það væri á rannsóknar-
stigi. „Þetta er mál bankans en
ekki mitt," sagði Einar.
Þær spurningar vakna, hvort
hér sé um að ræða einangrað
misferli í skiptum við þetta
eina fyrirtæki eða hvort um er
að ræða ítrekað brot, sem taki
til fleiri fýrirtækja og spanní
yfir lengri tíma.
Sem fyrr segir var deildar-
stjórinn úrskurðaður i gæzlu-
varðhald hinn 22. des. sl. en
hann hafði áður verið leystur
frá störfum frá og með 19. des.
sl. HP/JH
Abyrgðadeild Landsbanka
tslands er til húsa í eigin húsa-
kynnum í Hafnarhvoli — DB-
mynd Bj.Bj.
íff «
r’ !
it VNcjflÍ
Jóhannes f ékk beztu jóla-
gjöf ina—tapaði gjöfunum
— sjáíþróttiríopnu
Dró sér f é úr sjóðum
útvarpsins — baksíða
Spassky - Kortsnoj
4,1 T.5:
Tauga-
stríð
— sjá erlendar fréttir bls. 6 og 7
Núer
það jóla-
gleðin!
Það var líf og fjör í Sigtúni í
morgun er Ragnar Th„ Ijós-
myndari DB, leit inn til nemenda
MR, sem eru að undirbúa jóla-
gleðina sem verður annað kvöld.
Eins og sjá má verður húsið glað-
lega skreytt, en stanzlaust hefur
verið unnið frá prófalokum til
þess að gera alit sem glæsiiegast.
Ef hægt verður að ná athygli
gestanna frá dansinum og
keleríinu annað kvöld má búast
við heimagerðum skemmtiatrið-
um, en það fer þó eftir aðstæðum
og ástandi samkomugesta.
JH
DB-mvnd Ragnar Th.
Fiktaði með
eldspýtur
— blokkin
f ylltist af
reyk
Tólf ára drengur, sem
fiktaði með eldspýtur, olli
eldi i geymslu að Fannar-
felli 4 i gærkvöldi. Urðu af
mikil læti og umstang.
Geymslurnar á jarðhæð
fylltust af reyk sem lagði
síðan upp stigaganginn og
inn í fbúðir. Slökkviliðs-
menn fóru grímuklæddir
inn í reykjarkófið og réðu
niðurlögum eldsins og síðan
tók langan tíma að lofta út.
Ekki varð umtalsvert tjón
af eldinum en reykurinn
kann að hafa valdið meira
tjóni uppi á hæðum hússins.
Húsið vjð Fannarfell sem
um ræðir er fjörar hæðir.
ASt.