Dagblaðið - 27.12.1977, Page 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 1977.
Það íslenzka er það langbezta fyrir utan það brezka:
Meira af léttu íslenzku efni
G.K. skrifar:
Mig langar til þess að koma á
framfæri þakklæti til sjón-
varpsins fyrir þáttinn Gesta-
leik. Mér finnst að almennt sé
þessi þáttur mjög vinsæll og vil
ég skora á sjónvarpið að halda
áfram á sömu braut.
Það er dáiítið einkennilegur
smekkur hjá þessum Benedikt
Helgasyni, sem skrifar um þátt-
inn í DB á lesendasíðunni 20.
desember sl. Hann nefnir ekki
hvað hann vill fá í staðinn
nema þá einhverjar bíómyndir.
Það vantar bara að taka fram
hvers konar bíómyndir hann
vill fá, kannski glæpamj
eða klámmyndir. Það væ.u
ömurleg skipti.
Það er betra að spara stóru
og ljótu orðin og færa rök fyrir
því sem á að koma í staðinn
fyrir það sem maður er óánægð-
ur með.
Eg hef farið víða um Evrópu
bæði í austur og vestur og séð
sjónvarp þar. Mér finnst að ís-
lenzka sjónvarpið sé með því
bezta sem gerist. Ef Benedikt
og hans skoðanabræður hefðu
horft á sjónvarp í Danmörku og
Noregi yrðu þeir fegnir að
komast heim til þess að horfa á
það íslenzka. Það er mörgurn
innum betra en hin tvö.
Það eina sem er betra er það
brezka, en það er líka það bezta
í heimi. En við getum ekki
borið okkur saman við það. Það
er bæði eldra en það íslenzka og
fólksfjöldi er miklu meiri í
Bretlandi heldur en hér.
Megi sjónvarpið hafa þökk
fyrir þætti eins og Gestaleik,
sem fellur í góðan jarðveg og
eru mörgum sinnum ódýrari en
vafasamar íslenzkar kvikmynd-
ir, þótt sumar þeirra séu mjög
góðar, jafnvel þótt eitthvað
þurfi að greiða í verðlaun i
þættinum. Það er ekki nema
sanngjarnt, fari það ekki fram
úr hófi.
Meira af þessu og öðru léttu
íslenzku efni.
LOKSINS EINN ÞATTUR SEM
RÍS ÚR FLATNESKJU
ÓSKALAGAÞÁTTANNA
þáttinn síðastliðinn miðviku-
dag bíður maður í ofvæni eftir
að hlusta á þann næsta.
Vil ég hvetja a'lla djassunn-
endur til að láta þennan þátt
ekki framhjá sér fara. Loksins
er einn þáttur sem rís upp úr
flatneskju óskalagaþáttanna.
ATHS.:
Athygli skal vakin á því að
þátturinn Svört tónlist er næst
á dagskrá útvarpsins kl. 22.50
miðvikudaginn 28. desember.
-
2980-2351 skrifar:
Mig langar til þess að koma á
framfæri þökkum til ríkisút-
varpsins fyrir þáttinn Svarta
tónlist. Eftir að hafa hlustað á
4t
Blökkumenn eru yfirleitt heill-
andi tónlistarmenn. Þarna er
Boney M. sem er eftirlæti ótal
margra.
Ætlarðu að sjá jólamyndir
kvikmyndahúsanna?
U
Alfhildur Hallgrímsdóttir
verzlunarskólanemi, 22 ára: Eg
held það bara og það nærri allar
Sérstaklega aúla ég að sjá Gauks-
hreiðrið
Spurning
dagsins
Guðbjörn Björgólfsson kennari,
25 ára: Já, ég hef mikinn hug á
því. Það virðist vera venju fremur
gott úrval, frumsýningar mynda
eru skemmtileg nýjung og einnig
gaman að kvikmyndahúsin úti á
landi skuli einnig vera með frum-
sýningar.
Anna Margrét Jóhannsdóttir
skrifstofumaður, 18 ára: Já, ég
get ekki séð betur en þetta séu
bara mjög bærilegar myndir sem
boðið er upp á.
Ólafur Sveinbjörnsson nemi i
Menntaskólanum í Hamrahlíð, 18
ára: Já, ég ætla að sjá þær flestar
og hlakka til að sjá nýja kvik-
myndahúsið Regnbogann.
Benedikt Arnason endur-
skoðandi, 64 ára: Ég hef nú ekki
spekúlerað í því, ég hef ekki svo
mikinn áhuga á bíóunum, horfi
mest á sjónvarpið. En þó gæti
verið að ég endurskoðaði afstöðu
mína.
Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi
formaður Í.B., 56 ára: Ekki geri
ég ráð fyrir þvi. Jú, ég fer i bíó
svona einu sinni á ári eða svo.