Dagblaðið - 27.12.1977, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER lg77.
CHARLES CHAPLIN
JARDSETTUR í DAG
Charles Chaplin, leikarinn
heimsfrægi, verður jarðsettur í
dag í kirkjugarði þorps þess
sem hann hefur búið í siðustu.
tuttugu og fimm ár. Þar mun
þessi áttatíu og átta ára öld-
ungur, sem áður fyrr skapaði og
lék einn þekktasta trúð kvik-
myndanna, hvíla innan um aðra
látna þorpsbúa.
Oona, eftirlifandi eiginkona
hans, og átta af níu börnum
hans ásamt nokkrum nánum
ættingjum og starfsfólki á
heimili hans verða þau einu
sem við jarðarförina verða. Að
sögn talsmanns fjölskyldunnar
verður athöfnin mjög látlaus,
aðeins lesnar nokkrar bænir
við gröfina.
Chaplin, sem Glísabet drottn-
ing aðlaði fyrir tveim árum,
fékk hægt handlát á jóladags-
morgun. Hafði heilsu hans
hrakað óðfluga siðustu vikur.
Oona, fjórða eiginkona hans,
sem er fimmtíu og eins árs og
dóttir hins þekkta bandaríska
leikritaskálds Eugene O’Neill,
var við dánarbeð manns sins
ásamt öllum börnum ’hans
nema Geraldine sem býr á
Spáni og vinnur um þessar
mundir að upptöku á nýrri
kvikmynd. I gær var sagt að
hún yrði að öllum likindum
ekki viðstödd jarðarför gamla
mannsins.
Charles Chaplin var fæddur í
mikilli fátækt í Bretlandi.
Tókst honum að brjótast til
mikillar frægðar í bandarískum
kvikmyndum. Fyrir tuttugu og
fimm árum flutti hann þaðan á
brott vegna ásakana um komm-
únisma.
500 MILUARDA DOLLARA
HAGNAÐUR OPEC RÍKJANNA
Hin þrettán ríki sem eru með-
limir í OPEC, samtökum oliuút-
flutningsríkja, hafa hagnazt um
500 milljarða dollara síðan árið
1973, samkvæmt upplýsingum
sem fram koma í efnahagsmála-
grein sem birtist í dagblaðinu E1
Universal í Venezuela í gær.
Hagnaður þessara ríkja áður en
olíuhækkunin mikla varð áður-
nefnt ár varð tæplega 81 millj-
arður dollara þrjú árin þar á
undan að því er segir í greininni í
dagblaðinu i Venezuela.
Tekjur OPEC ríkjanna hvers
fyrir sig frá 1973 af olíuútflutn-
ingi ásamt áætiuðum tekjum
ársins 1977 eru taldar eftirfar-
andi: Saudi Arabía 146 milljónir
dollara, Iran 89 milljónir, Venezu-
ela 42 milljónir, Kuwait 37 millj-
ónir, Nigeria 36 milljónir, Irak 33
milljónir, Libýa 31 milljón, Arab-
ísku furstadæmin 30 milljónir,
Indónesía 22 milljónir, Alsír 18
milljónir, Gatar 8 milljónir,
Gabon 3 milljónir og Ecuador
rúmar tvær milljónir dollara.
Portúgal:
Eanes forseti herðir á
stjómmálamönnunum
Antonio Kamalho Eanes, for-
seti Portúgals, kallaði leiðtoga
hinna fimm stjórnmálaflokka
sem eiga fulltrúa á þingi lands-
ins fyrir sig I gær. Er það í
annað sinn á tveim dögum, að
flokksleiðtogarnirerukallaðir á
fund forsetans. Landið hefur
nú veriö án rlkisstjórnar I þrjár
vikur eða síðan minnihluta-
stjórn jafnaðarmannaflokksins
undir stjórn Mario Soares hlaut
vantraust og sagði af sér.
Að loknum fundi slnum með
flokksleiðtogunum ræddi
Eanes forseti i þrjár klukku-
stundir við liðsforingja I bylt-
ingarráðinu, sem sett var á
laggirnar I hinni friðsamlegu
uppreisn fyrir tveim árum.
Byltingarráðið er talið mjög
valdamikið og í raun hafa úr-
slitavöld um það hvort lýðræði
lifir eða deyr i Portúgal.
Mjög þykir aðkallandi að
mynduð verði ný ríkisstjórn í
landinu til að hægt verði að
snúast við margvislegum efna-
hagslegum vanda sem nú
steðjar að Portúgölum. Ekki er
heldur talið óllklegt að nýrri
ríkisstjórn verði falið það sem
höfuðverkefni að undirbúa nýj-
ar kosningar næsta vor. Engin
vissa er þó talin fýrir því að
auðveldara verði að mynda
stjórn þá. I gær var haft eftir
Eanes forseta að líklegast og
eðlilegast væri að jafnaðar-
menn undir forustu Soares
fyrrum forsætisráðherra hefðu
forustu um stjórnarmyndun.
Þeir hafa aftur á móti talið að
þeir flokkar sem steyptu stjórn
þeirra fyrir þrem vikum ættu
að standa fyrir myndun nýrrar
stjórnar. Það hefur hægri
flokkunum ekki tekizt en þeir
voru helztu andstæðingar
stjórnar jafnaðarmanna og
greiddu atkvæði gegn þeim
ásamt kommúnistum.
Þykir vegur Soares og
jafnaðarmanna hans nokkuð
hafa vaxið aftur vegna gengis-
leysis þeirra sem hugsanlega
gætu myndað stjórn.
Hefur Soares bent á að verk-
fall flugliða hjá ríkisflugfélagi
Portúgal TAP væri ljóst dæmi
um aðkallandi verkefni nýrrar
stjórnar.
Ef stjórnmálaforingjum
tekst ekki að mynda starfhæfa
ríkisstjórn á næstunni er talið
líklegt að Eanes forseti muni
athuga möguleikana á að
mynda stjórn utan flokka og án
íhlutunar þingsins.
Eanes forseti er farinn að krefjast þess af stjórnmálaleiðtogum
að þelr leysl stjórnarkreppuna hið fyrsta.
Erlendar
fréttir
JÓNAS
HARALDSSON
Sendi ræn-
ingjum sínum
jólakveðju
Italski iðnrekandinn Enno De
Vecchi sendi jólakveðjur til
ræningjanna sem rændu honum
og slepptu ekki úr haldi fyrr en
greitt hafði verið fyrir hann jafn-
virði 220 milljóna islenzkra króna
árið 1975.
I bréfi sem birtist í dagblaði á
Sardinia segir Vecchi að hann
vilji óska ræningjunum alls góðs
því þeir hafi gefið honum það sem
mest er vert — lif sitt.
Iðnrekandanum sem er
fjörutíu og átta ára að aldri var
rænt frá sumarheimili sínu í
Verona i ágúst árið 1975 og látinn
laus að fimmtiu og tveimur
dögum liðnum en þá höfðu
ræningjarnir fengið lausnar-
gjaldið fyrir hann afhent.
Happdrættis-
miðinn náð-
ist af vasa-
þjófnum
Ekki mátti miklu muna að Mario
Marcos vélvirki yrði fyrir tilfinn-
anlegu tjóni þegar veski hans með
jafnvirði rúmlega sjöhundruð ís-
lenzkra króna var stolið frá hon-
um rétt fyrir jól.
Þannig er mál með vexti að
Mario, sem búsettur er í Madrid á
Spáni, hafði fengið sér happ-
drættismiða í jólahappdrætti og
dregið var i happdrættinu síðast-
liðinn föstudag — Þorláksmessu.
Lögreglan handtók nokkra
vegna þessa máls og veskið fannst
á einum þeirra og I því happ-
drættismiðarnir. Var það heldur
heppilegt fyrir Mario vélvirkja og
fjölskyldu hans því vinningur
kom á miðann og varð hann 25
milljónum krónum rikari.
Mario, sem hingað til héfur
búið I eins herbergis íbúð með
eiginkonu sinni og fimm börnum,
sagðist ætla að koma sér upp
stærri Ibúð fyrir andvirði vinn-
ingsins.
Tvö fórnardýr
bætast við
íLos Angelses
Lögreglan 1 Los Angeles hand-
tók I gær tuttugu og fjögurra ára
gamlan mann sem grunaður er
um að hafa kyrkt tvær stúlkur
sem fundust skömmu áður. Hún
telur aftur á móti engan veginn
víst að hér sé á ferðinni hinn
alræmdi og óþekkti kyrkjari, sem
myrt hefur og nauðgað ellefu kon-
um í Los Angeles á undanförnum
vikum. Fremur að tvö sfðustu
morðin séu stæling á fyrri verkn-
uðum, sem mjög hafi komizt I
hámæli í fjölmiðlum og vakið
mikinn ótta meðal borgarbúa.
Lfk stúlknanna tveggja fundust
með skömmu millibili og nærri
hvort öðru. Voru fórnardýrin
átján og tuttugu og eins árs.
Bæðin likin voru nakin er þau
fundust. Er það á sama veg og hin
fyrri ellefu.