Dagblaðið - 27.12.1977, Síða 7
Baráttan harðnar —
Spassky vann þá
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 1977.
Skákeinvígið í Belgrad:
tólftu í gær
Boris Spassky sigraði
Kortsnoj f tólftu einvfgisskák
þeirra sem lauk í gærkvöldi.
Spassky hafði hvítt og lauk
skákinni eftir þrjátíu og átta
leiki, þegar Kortsnoj féll á
tíma.
Staðan í eingvígi þeirra
kappanna er þá að Kortsnoj
hefur 7!4 v. og Spassky 4V4.
Þarf hinn fyrrnefndi þá þrjá
vinninga í viðbót til að vinna
sér rétt til að skora á heims-
meistarann Anatoly Karpov.
I skákinni í gær beitti
Kortsnoj franskri vörn, sem
ihann hefur raunar beitt í hvert
skipti sem hann hefur haft
svart í Belgrad. Eftir fimmtán
leiki virtist Spassky hafa örlitið
betri stöðu en slðan vann
Kortsnoj peð og nokkra yfir-
burði. Hann hafði aftur á móti
notað mikið af tlma sinum og
hafði aðeins fjögurra mfnútna
umhugsunartlma fyrir sfðustu
leikina. Honum tóks að vinna
annað peð en klukkan féll áður
en hann gat lokið hinum lög-
boðna leikjafjölda.
Kortsnoj sagði strax eftir
skákina, að hann mundi kvarta
'yfir aðstæðum á skákstaðnum.
Virðist þvf kalt strlð milli kepp-
endanna sffellt verða alvar-
légra eftir þvf sem lengra líður
á keppnina.
Sýningartaflan f keppnis-
salnum var uppi f tólftu
skákinni og gátu báðir kepp-
endur virt hana fyrir sér.
Kortsnoj hafði krafizt þess að
hún yrði fjarlægð og fékk þvf
framgengt f einni biðskákinni.
Mætti Spassky ekki til leiks f
næstu skák vegna þessa, en
hann hefur undanfarið mjög
beitt þeirri aðferð að sitja f
hvfldarstól slnum fjarri tafl-
borðinu og hugsað stöðuna á
sýningartöflunni. Hefur
Kortsnoj kunnað þessu illa og
talið Spassky sýna sér
óvirðingu.
REUTER
Boris Spassky virðist vera að sa-kja i sig veðrið í einvíginu á móti
Kortsnoj.
Begin varð stórhrifinnaf
egypzku pýramídunum
Menachem Begin forsætisráð-
herra ísraels sagði í gær að hann
vonaðist til þess að fá fljótt tæki-
færi til þess að skoða egypzku
pýramídana.
Er ráðherrann flaug heim frá
friðarviðræðunum í Ismaliu, þar
sem hann ræddi við Sadat Egypta-
landsforseta, var þotu hans leyft
að fljúga lágt yfir hin fornu
mannvirki, til þess að hann gæti
séð þau f fyrstu ferð sinni til
Egyptalands. „Það var áhrifa-
mikil sjón,“ sagði ráðherrann við
komuna til Tel Aviv,“ og ég vona
að mér gefist tækifæri til að skoða
pýramídana betur“.
FRJÁLST EÐA
HEIMASTJÓRN
Egyptaland mun leggja fram
eigin friðartillögur til lausnar
deilu Israels og Arabarlkjanna
þar sem þeir álfta tillögur
ísraela ekki ná nógu langt.
Er þetta haft eftir egypzkum
heimildum eftir fund
Menachem Begins forsætisráð-
herra Israels og Anwars Sadats
forseta Egyptalands, sem lauk í
gær. Hafði hann þá staðið f tvo
daga f sumarhöll Egyptalands-
forseta f Ismailia við Súes-
skurð.
Forustumönnunum tókst
ekki á fundi sfnum að ná sam-
komulagi um hvernig fara
skyldi með mál Palestínu-
manna. Vildi Sadat að þeim
yrði heimilað að stofna sjálf-
stætt rfki á vesturbakka
Jórdan, en á það féllst Begin
ekki. Israelar hafa aftur á móti
boðið Palestinumönnum upp á
nokkurs konar heimastjórn.
Dagblaðið Al-Akhbar, hálf-
opinbert málgagn egypzku
stjórnarinnar sagði í gær að
önnur deilumál, svo sem
hvenær ísraelsmenn ættu að
hverfa á brott af Sinafskaga,
yrðu rædd á fundum hernaðar-
nefndar Egypta og Israels-
manna, sem kæmi saman um
miðjan janúar.
• Blaðið sagði einnig að
Israelsmenn hefðu fallizt á að
fara með her sinn á brott af
skaganum að landamærunum
sem giltu fram að sex daga
strfðinu, árið 1967.
Sagt er að Israelsmenn hafi
viljað að Sadat léti þessa getið f
yfirlýsingu þeirri sem hann las
á fundi með fréttamönnum f
gær. Hann hafi hafnað þvl á
þeim grundvelli að tilgangur
með fundunum f Ismailia hafi
verið að reyna að ná heildar-
samkomulagi um frið í Mið-
austurlöndum.
Ákveðið hefur verið að tvær
nefndir frá hvorri þjóð, tsrael
og Egyptalandi, haldi áfram að
ræða friðarmálin 1 Kairo eftir
áramót. Verður önnur nefndin
:hernaðarleg en hin pólitfsk.
Að sögn Al-Akhbar er taiið að
fundirnir geti staðið f einn og
hálfan mánuð eða jafnvel f þrjá
mánuði.
Betaífor3
SfedJjpsaiwiti
Stór-
markaðs-
verðá
kassettum
SS SUPERMARKAÐUR
GLÆSIBÆ
SS SÚPERMARKAÐUR
AUSTURVERI
i