Dagblaðið - 27.12.1977, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 1977.
;y': 'v.
BwHI
mmmm
Götuleiksýning í Reykjavík á Þorláksmessu:
Stressuðu hjónin í jólainnkaupum
— Jólapakkaslyttiö var líka á f erð
í rauninni er sá sem leikur jólapakkaslyttið ekkert aumingjalegur. Hann heitir Jón Karl.
DB-mvndir Ragnar.
— Kaupa meira, kaupa meira. — En peningarnir eru búnir. — Við verðum þá bara að taka víxil.
Aumingja jólapakkaslyttið þvældist bara um, sjálfum sér og öðrum
til litillar gleði. Alltaf eins og hálfundarlegur.
’þátt 9. Með henni vildu þeir
leggja áherzlu á það aðstöðu-
leysi sem reykvískum áhuga-
mönnum er boðið upp á þar
sem ekkert áhugamannaleik-
hús er í bænum og einungis
lítill hópur fólks kemst inn í
Leiklistarskóla rfkisins. Ung-
mennin töldu sig 1 rauninni
hafa verið miklu betur sett
hvað þessi mál varðar hefðu
Þeir sem leið áttu um miðbæ
Reykjavíkur á kvöldi Þorláks-
messu vissu ekki almennilega
hvað þeir áttu að halda þegar
þeir sáu hóp kynlegra manna,
ef menn skyldu kalla, sem voru
talsvert öðruvísi en þeir sem i
kring um þá voru. Þarna voru
afar stressuð hjón á ferð á síð-
ustu stundu að kaupa jólagjaf-
irnar og f kring um þau hömuð-
ust alls konar „ffgúrur", þar á
meðal jólakötturinn, jóla-
sveinninn, jólapakkaslyttið og
engill.
Þegar nánar var að gáð sást
að hér var á ferðinni hópur
ung fólks með götuleiksýningu
að erlendri fyrirmynd. I
hópnum ' er á annan
tug manna sem flestír eru um
tvítugt. í leiksýningunni tóku
■*.
Jólasveinninn var svo mikið að flýta sér að hann mátti ekki vera að
því að setja á sig nema annað skíðið, og það brotið.
þau búið úti á landi þar sem
áhugamannaleikhús er í hverju
plássi og fá þau stundum leik-
stjóra á launum til þess að
starfa með sér.
Leikstjórar hópsins voru þau
Árni Pétur Guðjónsson og Mar-
grét Árnadóttir en þau starfa
bæði með leikflokki i Dan-
mörku en eru hér f jólaleyfi.
Árni Pétur sagðist hafa tekið
þátt í sýningu svipaðri þessari
þar úti og hefði þessi tekizt
betur ef eitthvað væri. Fólkið f
miðbænum hefði greinilega
skemmt sér mjög vel og hefði
verið þolinmóðara en gengur
um Dani. Viðbrögð manna
hefðu auðvitað orðið mismun-
andi en öll þó til hins betra.
Hópurinn hafði óttazt nokkuð
ágang drukkinna manna og því
fengið lögreglu f lið með sér.
Það hefði hins vegar sýnt sig að
vera óþörf hræðsla því fólkið
sem kom og hlustaði hefði nær
allt verið fjölskyldufólk sem
ekki sá á vín.
Arni Pétur og Margrét halda
utan þann 6. janúar. Þangað til
ætlar hópurinn að reyna að
starfa saman og jafnvel eftir að
þau eru farin.
- DS
■*.