Dagblaðið - 27.12.1977, Side 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 1977.
9
PÁLL VILHJÁLMSSON
—gamlar, góðar lummur seldust bezt af hljómplötunum
Þau eru sennilega æói mörg
barnaheimilin í landinu, þar
sem strákar og stelpur á öllum
aldri sökkva sér nú niður í
lestur bókarinnar Pál Vil-
hjálmsson sjónvarpsstjörnu á
meðan eldri systkinin hlusta
með áfergju á plötuna Gamlar.
góðar lummur.
Dagblaðið ræddi við nokkra
bóksala og plötukaupmenn
fyrir jól og virtust þeir almennt
sammála um að tveir ofan-
greindir titlar rynnu hvað
bezt út, — ja eins og heitar
lummur. Af öðrum bókum þótti
Heimsmetabók Guinnes standa
sig hváð bezt og sömuleiðis
Ætlar hann aldrei að þagna
karlskrattinn eftir Magnús
Storm. Þá var einnig góð sala í
bókum um Tinna og Ástrík eins
og endranær.
Lummuplatan svokallaða
hafði algjöra yfirburði yfir
aðrar hljómplötur fvrir jólin
Næst á eftir kom platan Fvrr
má nú aldeilis fyrrvera með
þeim bræðrum Halla og l udda.
Þá kváðust plötukaupmenn
METSÖLUBÓK
einnig selja vel af Vísnabókar-
plötunni Ut um græna grundu
og jólaplötunum Hvít jól með
Silfurkórnum og Jólastrengj-
um.
Erfitt var að segja um hver
erlendu hljómplatnanna seldist
hezt, en Out ()f The Blue með
hljómsveitinni Eleetric Ligth
Orchestra var oft nefnd og
sömuleiðis nýjustu plötur
hljómsveitanna Smokie og
Queen. Þá er Elvis heitinn
Presley ávallt vinsæll. Plata
hans, Elvis Forever var sögð
seljast nijög vel. Hún hefur
gengið mjög vel allt frá þvi er
rokkkóngurinn lézt fyrr á árinu
og mun sennilega vera sú sölu-
ha.'sta á öllu árinu. - AT -
■
mjæt . •• % 9 HIHif nUL m
Trúnaðarskylda blaða lögvernduð
— sakadómur synjar kröf u rannsóknarlögreglu um
að naf nleynd sé rof in
„Hins vegar þykir samband
ábyrgðarmanns blaðs eða tíma-
rits og þeirra, er í það rita, þar
á meðal auglýsenda, þess eðlis,
að eigi sé rétt, nema ríkar
ástæður krefjist, að skylda
ábyrgðarmanninn til að skýra
frá nafni höfunda, sem kjósa að
leyna nafni sínu", segir í úr-
skurði sakadóms Reykjavíkur,
sem kveðinn var upp fyrir
skömmu.
Fyrir skömmu birtist i
Morgunblaðinu auglýsing, sem
býður eigendum „sparifjár"
mikla og hraða ávöxtun.
Nánar tiltekið er boðizt til að
tvöfalda peninga á einu ári ,,á
algjörlega löglegan hátt“, eins
og i auglýsingunni segir.
Rikissaksóknari lagði fyrir
rannsóknarlögreglu ríkisins að
kanna málið með hliðsjón af
hugsanlega löglausri vaxta-
töku.
Auglýsandinn nafngreindi
sig ekki heldur óskaði hann
eftir þvi, að þeir, sem áhuga
hefðu, legðu bréf inn á af-
greiðslu blaðsins.
Morgunblaðið synjaði kröfu
rannsóknarlögreglustjóra um
að láta honum í té vitneskju um
nafn auglýsandans. I greinar-
gerð ritstjóra Morgunblaðsins
segir m.a: Dagblað lítur á það
sem frumskyldu sína að gæta
þess trúnaðar, sem því er
sýndur. Ef þeir, sem gefa blaði
upplýsingar í trúnaði, sem al-
mannaheill getur krafizt að
birtist opinberlega, geta átt von
á því, að leynd hvíli ekki yfir
nafni þeirra, þrátt fyrir loforð
ábyrgðarmanns, er augljóst að
upplýsingastreymi til blaða
hlýtur að takmarkast mjög.
Með því er meiri almannaheill
stefnt I voða en þótt Morgun-
blaðið neiti að gefa upp nafn
þess auglýsanda, sem hér um
ræðir, eða hvort blaðinu er yfir-
leitt kunnugt um hver hann er.
Hvarvetna í heiminum líta blöð
á það sem frumskyldu sína að
gæta trúnaðar gagnvart
heimildum sínum....“
„Ef íslenzkir dómstólar
kveða upp úrskurð, sem skylda
blöð til þess að að gefa upp
heimildir, er augljóst, að stefnt
er í átt til lögregluríkis þar sem
einstaklingar geta engin sam-
skipti átt án þess að opinber
yfirvöld telji sér heimilt að
hnýsast í þau."
Halldór Þorbjörnsson, yfir-
sakadómari, kvað upp úr-
skurðinn.
Byggði hann m.a. á því, að
viðurlög við hugsanlegu lög,-
broti auglýsandans gætu ekki
farið fram úr sektum, væri rit-
stjórum blaðsins ekki skylt að
gefa nafn hans upp .
-BS.
Stúf ur og
móðir hans?
„Mamma, mamma, passaðu mig. Ljóti kallinn ætlar að taka mynd af
mér,“ gæti þessi ungi jólasveinn hafa hrópað um leið og hann greip
föstu taki um læri móður sinnar.
Ekki þekkjum við deili á þessum mæðginum, en eflir hæð jóla-
sveinsins að dænta gæti Stúfur sjálfur verið þarna kominn. Og
jólasveinamamman, — heitir hún ekki einmitt Grýla? Ef hún er ekki
voðalegri en þessi, þá er cngin ástæða til að óttast lengur.
DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson.
MIKIL ÖLVUN
VÍÐA Á
ÞORLÁKSMESSU
— en lítið gerðist
Mikil ölvun var í Réykjavík flóði. Ekkert gerðist þó sérstakt
og nokkrum kaupstöðum úti á °8 voru menn hinir friðsöm-
landi á Þorláksmessukvöld. Hjá uslu þrátt f.vrir víndrykkjuna.
lögreglunni í Reykjavík voru Einstöku slagsmáiahundar
annir gífurlegar þar sem fanga- v,)ru Þó á ferð en gerðu lítinn
geymslur fylltust svo út úr óskunda. l)S
OÐUR STEINSINS
— Ijóð eftir Kristján f rá Djúpalæk og
myndir eftir Ágúst Jónsson
Gður steinsins heitir ný bók
sem Gallery Háhóll á Akureyri
gefttr út. í bókinni eru ljóð eftir
Kristján frá Djúpalæk, en mynd-
irnar í bókinni tók Ágúst Jónsson.
„í þessari bók er einmitt skyggnzt
lítilshátt ar inn i undraheim
steinsins, hann er leystur þar úr
áliigum, eins og segir þar síðar.
Eg hygg að ekki sé farið þar með
nokkrar ýkjur, þótt sagt sé, að
Oður steinsins sé sérkennilegasta
og um leið frumlegasta bók, sem
gefin hefur verið út á voru landi,
og ef til vi 11 í öllurn heimi." Þetta
segir Steindór Steindórsson frá
Hlöðum i eftirmáia í bókinni.
í bókinni er fjöldi litmynda
sem sýnir undraheim steinsins.
Bókin er í stóru broti, .30 síður.
KP
' Blöörur
, Reykelsi
' Kerti
Matar- og
kokkteil-
, servíettur
Glasamottur
^&kíV'HÚSIÐ
LAUGAVEGI178.