Dagblaðið - 27.12.1977, Blaðsíða 10
10
Útgefandi Dagblaöið hf. hjélzi, áháð dagblað
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjolfsson. Ritstjori: Jonas Kristjansson.
Fréttastjóri: Jon i Birgir Pétursson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrif stofustjori ritstjórnar:
Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Simonarson. Aðstoðarfréttastjóri: Atli Steinarsson. Handrit:,
Ásgrimur Palsson.
Blaðamenn: Anna Bjarnason, Asgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dora Stefánsdo' or Gissur
Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Jónas Haraldsson. Katrin Palsdóttir, Ólaf<>> Geirsson,
Ólafur Jonsson, Ómar Valdimarsson, Ragnar Lar.
Ljosmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Hórður Vilhjalmsson, Sveinn Þormoösson.
Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjolfsson. Gjaldkeri: Þrainn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Mar E. M.
Halldórsson.
Ritstjórn Siðumula 12. Afgreiösla Þverholti 2. Áskriftir, auglysingar og skrifstofur Þverholti 11.
Aðalsimi blaðsins 27022 (10 linur). Áskrift 1500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasolu gp kr.
eintakið.
Setning og umbrot: Dagblaðið og Steindórsprent hf., Ármúla 5.
Myndaog plótugerð: Hilmirhf. Siöumula 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19.
Blóðmörskeppurinn
Spillingin vann stórsigur á al-
þingi í síðustu viku, þegar þrjátíu
þingmenn samþykktu að heimila
ríkisstjórninni að kaupa Víðishús-
ið. Sigurinn fólst ekki í því, að
metTT peningum en endranær
væri sóað til einskis. Hann fólst
fyrst og fremst í því, að spillingaröflin treystu
sér til aö koma grímulaus fram í skærara
dagsljós en endranær.
Sjaldan hefur verið jafnvel skjalfest í opin-
berum gögnum, að flest mælir gegn þessum
húsakaupum. Þessi gögn, sem birt voru í dag-
blöðum, sýndu, að húsverðið var 124 milljón
krónum of hátt, auk margra annarra vand-
kvæða. Þetta umframfé er hrein gjöf til gæð-
inga Sjálfstæðisflokksins.
Samt treysti ekki einn einasti þingmaöur
ríkisstjórnarinnar sér til að greiða atkvæði
gegn þessum fráleitu húsakaupum. Allir höfðu
þeir þó lengi haft með höndum hin óvefengjan-
legu skjöl, sem gagnrýnin byggðist á.
Aðeins tíu stjórnarþingmenn, þar af þrír
ráðherrar, sátu hjá viö atkvæðagreiðsluna og
neituðu þannig aö leggja sitt lóð á vogarskál
spillingarinnar. Þeir, sem' þannig eru lausir
ábyrgðar, eru framsóknarmennirnir Einar
Ágústsson, Halldór E. Sigurðsson, Jón Skafta-
son, Steingrímur Hermannsson og Þórarinn
Þórarinsson, svo og sjálfstæðismennirnir Ellert
Schram, Friöjón Þórðarson, Guðmundur H.
Garðarsson, Gunnar Thoroddsen og Sigurlaug
Bjarnadóttir.
Það vekur ekki furðu, að flokkseigendafélag
Sjálfstæðisflokksins skuli standa að kaupunum
á Víðishúsinu. Sú afstaða er í samræmi við
almennt viðhorf flokkseigenda til skoðana-
könnunar sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hún
er í samræmi við það sjónarmið þeirra, að
skoðanir óbreyttra kjósenda Sjálfstæöisflokks-
ins séu yfirleitt rangar.
Undarlegri er afstaða Alberts Guðmunds-
sonar, sem kallað hefur flokkseigendafélagið
sértrúarsöfnuö á þeim forsendum, að það hafni
þeim vilja, sem kom fram hjá sjálfstæðismönn-
um í Reykjavík í öðru málefni sömu skoðana-
könnunar. Hann greiddi atkvæði með kaupun-
um og var þannig sjálfum sér ósamkvæmur.
Sjálfstæðismennirnir, sem ábyrgð bera á
spillingu Víðishússkaupanna, eru Albert Guð-
mundsson, Axel Jónsson, Eyjólfur K. Jónsson,
Geir Hallgrímsson, Guðlaugur Gíslason, Ingólf-
ur Jónsson, Jóhann Hafstein, Jón Sólnes, Lárus
Jónsson, Matthías Bjarnason, Matthías Mathie-
sen, Oddur Ólafsson, Ólafur G. Einarsson,
Pálmi Jónsson, Pétur Sigurðsson, Ragnhildur
Helgadóttir, Steinþór Gestsson, Sverrir Her-
mannsson og Þorvaldur G. Kristjánsson.
Framsóknarmennirnir, sem þessa ábyrgð
bera, eru Ásgeir Bjarnason, Halldór Ásgríms-
son, Ingi Tryggvason, Ingvar Gíslas'on, Jón
Helgason, Ólafur Jóhannesson, Páll Pétursson,
Stefán Valgeirsson, Tómas Árnason, Vil-
hjálmur Hjálmarsson og Þórarinn Sigurjóns-
son.
Allir þessir þingmenn réttu viljandi upp
höndina um hábjartan dag til að stuðla að
framgangi þessa verst ræmda þingmáls vetrar-
ins. Einn þeirra, Páll Pétursson, var meira að
segja svo kaldranalega ósvífinn að segja við
atkvæðagreiðsluna: ,,Hvað munar um blóð-
mörskepp í sláturtíðinni.“
Þessi gætu verið einkunnarorð alþingis.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 1977.
Sovétríkin:
Lasergeislinn
við sársauka-
litlar skurd-
aðgerðir
K
„Lýðskrumarar, afturhalds-
seggir, Glistrupar", segja sér-
trúarblöðin þessa dagana
„Verðbólguölæðið hefur skaðað
jarðveg fyrir ákveðna tegund
þjóðfélagsafla," halda þau
áfram, málgögn dáðleysingj-
anna sem fundu upp verðbólg-
una. Það er engin ný saga að
brennuvargurinn leggi stein í
götu slökkviliðsins. Harmleikur
flokkseigendafélags Sjálf-
stæðisflokksins verður stór-
brotnari með degi hverjum.
Tölurnar 1362, 1510 og 1630
segja meira en nokkur harm-
saga um andstöðuna við stefnu
stjórnar flokksins undir
forystu sértrúarhóps Geirs
Hallgrímssonar. Á örlaga-
stundu reynist raunverulegur
liðsafli flokkseigenda um
fimmtán hundruð atkvæði í
Reykjavík. Er þá allur vafi
látinn leika þeim í hag. Sann-
gjarn líkindareikningur bendir
þó ótvírætt til mun minna fylg-
is.
skeyti. Þannig skiptist nú Sjálf-
stæðisflokkurinn i öfugum
hlutföllum á milli minnihluta-
brota sértrúarmanna og mikils
meirihluta almennra borgara.
Seinheppnir
stríðsgenerálar
Kórvilla sértrúaraflanna var
að samþykkja prófkjör til fram-
boðsákvörðunar. Mannréttind-
um fylgir breytt vígstaða í
áföngum. Flokksapparatið,
stofnanir þess, félög og fjár-
Harmleikur
í skugga
hermangsjóla
Musterisprestur messar
I nýútkomnum Breiðhyltingi,
málgagni Sjálfstæðismanna í
Breiðholtshverfum, segir Geir
Hallgrimsson flokksformaður
m.a:
„Stjórnarandstaðan" innan
Sjálfstæðisflokksins vann sigur
las ég einhvers staðar." Og
síðar: „Eftir landsfund flokks-
ins sögðu þeir, sem hafa lengst
setið slíka fundi, að þeir myndu
ekki eftir jafn mikilli ein-
drægni meðal fulltrúa flokks-
ins úr öllum kjördæmum lands-
ins. Engin „stjórnarandstaða"
lét i sér heyra þar, þótt allir
málaflokkar hafi verið ítar-
léga ræddir."
Fullkomin einangrun
Alls greiddu 9877 kjósendur
atkvæði í prófkjöri flokksins
vegna alþingiskosninga. I
frægri skoðanakönnun samfara
prófkjörinu reyndust 1362 kjós-
endur hlýnntir útvarpsein-
okun, 1510 andsnúnir mal-
bikunarframkvæmdum NATO-
herja, og 1630 með kaupum á
Víðishræinu.
Útvarpseinokun, vegaand-
staða og brunarústirnar eru
skilgetin gæludýr Flokks-
eigendafélagsins. Valdaklíkan
styður þau með ráðum og dáð.
Hún fylkir liðsmönnum sínum
fram til orrustu fyrir þau í
prófkjörum og þeir mæta allir
sem einn maður.
Fimm til sjö hundruð at-
kvæði eru nokkuð raunhæfar
niðurstöðutölur úr liðskönnun
sértrúaraflanna. Vilja þessa
þjóðarbrots eiga þúsundir
frjálsra Reykvíkinga að lúta.
Vegir lýðræðisins í Bolholti eru
órannsakanlegir.
Andmœlendur
utangátta
Ástæðan fyrir því að raddir
andófsmanna ná ekki eyrum
formanns er aðallega sú að al-
mennir flokksmenn eiga fáa
fulltrúa á landsfundum og
öðrum þýðingarmiklum manna-
mótum. Uppbygging Sjálf-
stæðisflokksins leggur alla
valdaþræði I hendur flokks-
eigendafélaginu sem engu
sleppir þrátt fyrir fámennið.
Jábræðurnir eiga sviðið.
Áhugamenn um nýja leiðir
innan Sjálfstæðisflokksins hafa
þjappað til nokkurar samstöðu
á meðal borgara.Með lýðræði,
gegn einræði. Þeir hafa beitt
sér fyrir fundarsamþykktum,
boðað til tímamótafundarins
mikla á Hótel Borg og staðið að
þremur spurningum i skoðana-
könnuninni frægu og. studdu
dyggilega þá fjórðu.
Þeir eiga hins vegar ekki
fulltrúa í valdasellum flokks-
ins. Vilji þeir koma yfirlýstum
meirihlutaskoðunum kjósenda
á framfæri við æðstu musteris-
presta þá mega þeir nota sím-
sjóðir hætta að vera þunga-
miðja alheimsins. Blái massinn
umhverfis D-listann hefur
leystst upp i sjálfstæða
einstaklinga með atkvæðisrétt.
Franskir hernaðarsér-
fræðingar millistríðsára
byggðu dýrasta hervígi
allra tlma. Maignot-linan
stendur ennþá ónotuð börnum
og hröfnum að leik. Styrjöldin
fór fram í annarri sýslu.
Líkt er nú komið með lýð-
veldishermönnum flokkseig-
enda. Þegar þeir loks skyggnast
undan hjálmbörðum sjá þeir
sér til skelfingar að kjósendur
eru komnir fram úr þeim og úr
augsýn. Aratuga baktjalda-
makk yfir leikbrúðustrengjun-
um er unnið fyrir gíg.
Tfmanum hefði betur verið
varið á meðal lifandi fólks. Að
kyssa kornabörn og hrista
hendur gamlingja.
Frá vöqgu til grafar
Beinabygging undirbúnings-
deildar eigendafélags Sjálf-
stæðisflokksins er aðallega
mynduð af einfaldri röð von-
biðla auk nokkurs fylgifjár.
Helzti höfuðverkur forystu-
sauða öldungadeildar er að
finna nýútsprungnum biðraða-
sveinum einhver embætti,
bitlinga og aðrar sporslur til
lífsframdráttar hverju sinni.
Einkarekstur og stjórnmála-
afskipti fara illa saman. Hvort
I