Dagblaðið - 27.12.1977, Side 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 1977.
11
Læknavísindin koma mönn-
um oft á óvart nú á tímum.
Skurðaðgerðir hafa þó enn t/ör
með sér sársauka og áverka f
mörgum tilfellum.
Skurðlæknar beina nú
athygli sinni mjög að því að
fullkomna skurðtæknina
þannig að uppskurðir verði
sársaukaminni og hafi minni
eftirköst. Þeir vilja draga úr
notkun skurðtækja og koma í
veg fyrir blóðlát ef unnt er. í
stuttu máli vilja þeir ná sem
bestum árangri án of mikils
„blóðs, svita og tára.“
Miklar framfarir hafa orðið í skurðlækningum í Sovétríkjunum á síðustu árum.
En er skurðaðgerð án
blóðláts hugsanleg, einkum
þegar um er að ræða holskurði?
Já, hún er möguleg á sjúkra-
húsi Moskvuborgar undir
stjórn professors Oleg Skobelk-
in. Fyrir nokkrum árum voru
hann og starfsbræður hans
meðal hinna fyrstu í hópi
sovézkra lækna sem notuðu
lasergeislahníf við maga-
uppskurði.
Læknar hafa lengi bundið
miklar vonir við lasergeislann.
Ölíkt hinum algenga fyrirrenn-
ara sínum þarfnast iasergeisla-
hnífur ekki sótthreinsunar og
hann er örfljótur að skera
sundur hvers konar vefi og
„bræða saman" aftur
skurðbarmana, þannig að þeir
verði hreinir og án blóðs.
Fyrstu tilraunir til þess að
nota lasergeislahníf við upp-
skurði báru ekki alltaf góðan
árangur vegna þess að laser-
geislinn skemmdi stundum
aðliggjandi liffæri eða brenndi
gat á vefi. Auk þess þurfti
skurðlæknirinn oft að tefla ^
tvær hættur. Beiting laser-
geislahnífs reyndist svo flókin
að fylgjendum hans fækkaði
brátt. Margir þeirra tóku aftur
upp notkun venjulegs
skurðhnífs. Þótt hún krefðist
sótthreinsunar og skurðurinn
þyrfti að vera stærri, þá var
hún trausari og krafðist ekki
nýrrar tækni.
Prófessor Skobelkin gafst þó
ekki upp við að nota laser-
geislahníf, vegna þess að á því
sviði skurðlækninga sem hann
starfaði á gat lasergeislinn orð-
ið til ómetanlegrar hjálpar, ef
ekki „allra meina bót“. Sá
eiginleiki hans að „bræða
saman“ lifandi vefi var sérlega
mikilvægur við innvortis-
aðgerðir. Veggir innri líffæra
eru ósamkynja, gerðir úr
nokkrum lögum. Við venjulega
skurðaðgerð þarf að sauma
saman hvert þessara laga út af
fyrir sig, en þvi fylgir oft að
vefir skaddast.
Fyrir fjórum árum hófu
prófessor Skobelkin og Brekjov
aðstoðarprófessor, ásamt hópi
laserverkfræðinga, að nota las-
ergeislahníf við maga-
uppskurði. I dag hefur þessi
skurðhnífur læknað hundruð
sjúklinga. Lasergeislinn getur
„brætt saman'" opnar ígerðir
og sár og eytt sýklum og rýrn-
uðum vefum. Hinn hárbeitti
lasergeislahnífur getur verið
hundrað sinnum þynnri en hár.
Hann þurrkar ekki aðeins upp
hverja æð til þess að hindra
blóðmissi, heldur smýgur hann
og inn í frumurnar, hið allra
helgasta i mannslfkamanum.
tveggja er of tímafrekt. Betra
er að herða kandiata morgun-
dagsins á kostnað skattborgara.
Biðröðin færist svo sjálfkrafa
um máttarviði flokksins þegar
virðingarsæti losna.
Soltnum skjólstæðingum er
aðallega raðað á garða rikis og
borgar. Valin fyrirtæki og
félagasamtök njóta gagn-
kvæmrar verndar flokks-
eigendafélagsins. Þau taka
einnig við upprennandi þjóð-
málastjörnum í ábyrgðarstöður.
Eigendur verndarfyrirtækja
fá einnig nokkuð fyrir snúð
sinn. Litlu flokkseigendurnir
skila ekki alltaf fullri vinnu-
viku. En þeir hafa í skjóli stóru
flokkseigendanna lyklavöld að
bankalánum, lóðaskikum og
öðrum lffsins gæðum.
Þannig er útþensla rfkis-
báknsins forystu Sjálfstæðis-
flokksins höfuðmál og lífsnauð-
synleg til viðhalds stofninum.
Aukin rfkisumsvif afla f raun-
inni hundruða þakklátra
atkvæða. Allir fá sitt lán að
lokum. Herópið Báknið burt
boðar enga byltingu I mesta
lagi dálitla innanhússhág-
ræðingu.
Samtryggðir lénsgreifar og
gagnkvæmir lyklapétrar geta
þvf litið björtum æskuaugum
til framtfðarinnar. Gamlir
flokkseigendur þurfa heldur
ekki að örvænta á ævikvöldi.
Sértrúarmenn hafa tögl og
hagldir á borg og bý og halda
sér fast.
Setuliðið umhverfis kjöt-
katlana
Annar höfuðkostur þessarar
opnu ríkisforsjár er vitaskuld
sá að opinberir jötumenn bera
ekki ábyrgð gerða sinna. Henni
er umsvifalaust velt yfir á
alþýðu manna. Þeir geta þvf
dundað við Kröflur og Borgar-
fjarðarbrýr frá kl. 9 til 5 virka
daga og á næturvinnutaxa um
helgar. Troðið launaumslagið
bfður á sfnum stað um hver
mánaðamót.
Þeir bera heldur ekki við að
setja upp andlitsgrímur þegar
farið er ránshendi um eigur
borgaranna. Gripdeildir eru
varðar með lögum þeim, sem
landið skal á byggja.
I verndarfyrirtækjunum
rfkir oftast sama hugarfarið
gegn hagsmunum almennings.
Sum þeirra sitja fast við kjöt-
katlana. önnur fitna óbeint.
Fitumagnið er mælt í happ-
drættismiðum.
Nokkur fyrirtæki sjá um að
reka erindi flokkseigenda á
prenti. Þegar harðnar á dalnum
er rfkið látið hlaupa undir
bagga með þeim líka. Eina
raunverulega einkaframtakið
innan þessara útgáfufyrirtækja
eru litlu blaðsölukrakkarnir,
sem hvorki mölur, ryð né rfkis-
afskipti fá grandað.
Kjallarinn
r
Asgeir Hannes
Eiríksson
$amnorrœn
bónbjargarstelling
Sértrúarblöðin hafa fengið
þau fyrirmæli að rita fallega
um fslenzkt einkaframtak öðru
hverju. Það blekkir
einstaklingshyggjumenn til
fylgilags. Þeim er einnig sagt
að fordæma báknið sitt. Loks
eiga þau að ráðast gegn sann-
færingu 7254 kjósenda í
Reykjavík.
Flokksblöðunum er það
dýrt spaug að uppfylla settar
trúboðskröfur. Rfkisframlög
hverfa með soghljóði f djúpið.
Innlendar bónbjargir hrökkva
skammt. En viti menn: Það
klingir f fjarlægu kratagulli.
Fyrstu verðmiðarnir eru ritaðir
í nafni samnorrænnar alþýðu á
norska pappfrsörk.
I þessum jarðvegi eru Vfðis-
húsakaup hvorki tilf allandi
embættisafglöp né einn stakur
vinargreiði. Þau eru órofa hluti
af blóðrás flokkseigendafélags.
Þess vegna verða þau aldrei
stöðvuð að óbreyttu. Lífstfðar
iðgjaldagreiðsla veitir full
fyrirgreiðsluréttindi um sfðir.
Nýyrði boða komu sfna f
íslenzka málvitund. A bekk
með Hriflu-réttlæti og Morgun-
blaðs-Iygi munu i framtíðinni
sitja Vfðis-mórall og trésmiðju-
siðgæði.
Fótalaus fagurgali
Skrifarar flokksblaðanna
hafa hvorki hugboð um né
áhuga á þörfum deyjandi
einkaframtaks á Islandi.
Hugmyndir þeirra um grund-
vallarhugsjón Sjálfstæðis-
flokksins eru aðallega fengnar
úr gömlum annálum og munn-
mælasögum um horfna
kapítalista sfldaráranna. Þær
eru ekki fengnar af blóðvelli
einkaframtaksins úr daglegu
llfinu. Þar sem ábyrgð vel
heppnaðs dagsverks þýðir kvið-
fylli morgundagsins en
misheppnað dagsverk herta
sultaról. A vfgstöðvum einka-
framtaks koma launamiðar
ekki sjálfkrafa út úr rfkisbók-
haldinu.
En þeir halda áfram að skrifa
fallega út f bláinn. Þeir treysta
þvf að einstaklingsframtakið
gefist ekki upp við að fram-
fleyta þeim sjálfum og öllu
heila draslinu.
Skríbentar finna
sjólfa sig
Það er ekki fyrr en röðin
kemur að landsleigu að sér-
trúarblöðin njóta sfn. Þau leika
sem samæft úrvalslið á heima-
velli. Stríðsgróðahvöt fyrri tfma
blundar f undirmeðvitundinni.
Verðmerking landsins heldur
áfram með uppboðshraða. Flug-
skýli, vegatollar og jafnvel
Marshall frændi sjálfur er
vakinn upp frá dauðum.
En hermöngurum er
vorkunn og vandi á höndum. Þá
vantar dálitla fjöru til að draga
í land hin stóru orð formanns.
Ahugamenn um nýjar leiðir
eru reiðubúnir til að bera sjón-
aukann að blinda auganu rétt á
meðan. Sfðan skulum við kalla
veginn: Mannvirkjagerð vegna
endurskoðaðra varnarþarfa
frjáls bræðralags sjálfstáeðra
bandalagsþjóða á jafnréttis-
grundvelli. Punktur.
En við verðum að finna
veginum einhvern hernaðar-
legan tilgang til að fullnægja
kröfum þjóðarstoltsins. Agæt
hugmynd er að flytja aflvéiar
Kröfluvirkjunar suður á
Svartsengi. Síðan má bjóða
NATO-dátum stöðvarhúsið til
kaups á hæfilegu verði. Sextiu
prósent út og eftirstöðvar til
fimm ára með átján, prósent
vöxtum.
Það eru alla vega ærlegri
vinnubrögð en pukrið
umhverfis Aðalverktaka. Við
sláum lfka sjö flugur I einu
höggi Ifkt og skraddarinn
forðum. Enga merkimiða á
landið. Bögglauppboðinu er
opinberlega lokið með flugelda-
sýningu.
Portkonan —
endahöfn nómslóna?
Hermangssinnum er tfðrætt
um skyndikonur upp á sfð-
kastið. Pétur Hafstein skrifar
alla leið frá Englandi um port-
konur. Dagfarsprúður frændi
er hvorki fyrstur né sfðastur
fslenzkra námsmana sem hvöt
finnur til að upplýsa mörlanda
um þessa verkalýðsstétt
útlandsins.
Bróðurpartur framhalds-
skólanema hefur nú hlotið mak-
lega málagjöld fyrir strákapör
skólaársins. Að þvf loknu gefur
Hannes Hólmsteinn sér tfma til
að fjalla um verðlagningu
kvenfólks.
Fleiri góðborgarar hafa fyllzt
vandlætingu og fundið þessari
fornu atvinnugrein næturinnar
samllkingar f brjóstum okkar
sem vilja fbúa landsins ofar
dulbúnu einkahermangi.
Þrúgað til skœkjulífs
Það gildir einu nvort gleði-
konan svffur silkiklædd um
logagyllta kampavfnssali stór-
borgarinnar eða haltrar stag-
bætt f skjóli gaddavfrs skotgraf-
anna f einskismannslandi.
Vændi er alltaf vændi, hvort
sem greitt er fyrir með milli-
færslu f svissneska banka eða
kámugum koparskildingum
almúgamannsins. Verstur er
þáttur hórmangarans.
Persónugervingur íslenzkrar
fegurðar og hreinleika er fjall-
konan frfð. Við minnumst
hennar stolt á hverju ári. Eilíf
er skömm þeirra íslendinga,
sem forðum skelltu fjallkon-
unni á hrygginn fyrir 30 silfur-
dali erlendra vfgahana.
Undirritaður biður sig góð-
fúslega undan þeirri vændis-
mennsku. Hann var ekki einu
sinni fæddur þá.
Tangarsókn
vinstriafla
Afstaða sósfalistanna
svokölluðu á Þjóðviljanum
hefur orðið til umhugsunar.
Þeir hafa gengið til Iiðs við
marxistana á Morgunblaðinu
um hvftþvott flokksformanns
sértrúaraflanna af villu verð-
merkingar fósturlandsins.
Með fullkominni virðingu
fyrir nýfengnu ritfrelsi þjóðar-
innar hlýtur það að verða álita-
mál hvort Þjóðviljamenn eru f
raun gjaldgengir f þessum
umræðum. Hafandi lagt að baki
milljón göngumílur til árétt-
ingar brottvfsun varnarliðsins
þá skortir blaðið með réttu fót-
festu til að fjalla um verkefna-
val verndarsveitanna.
Ekki svo að skilja að afskipti
blaðsins séu litin hornauga.
Sfður en svo. Þegar öllu er á
botninn hvolft stendur blaðið
jafnfætis hermangsblöðunum f
ráðþroti.
Undarleg þögn sfðasta alls-
herjarþings um brottför
hersins vekur spurningar um
stefnubreytingu: Eru betur
megandi öreigar flokksins á
leið til borgaralegs
kapftalisma? A sama tfma
hneigjast rfkisrekin sértrúaröfl
Sjálfstæðisflokksins til sósfal-
isma. Má vænta fagnaðarfunda
á vallarmiðju? Verður eignar-
aðiljum Islenzkra Aðalverktaka
fjölgað um einn?
Niður tónstigann
Það kveður dálftið við annan
.tón hjá Morgunblaðinu þessa
dagana. Glóðir galdrabrenna
eru að kulna. Þrátt fyrir að
myrkraöfl Morgunblaðs og
Þjóðvilja hafi skriðið f eina
sæng gegn prófkjörum og
lýðræði. Það er sem blaðið hafi
allt f einu skynjað hættuna á að
daga uppi eins og nátttröll á
fjöllum fjarri mannabyggð. Dr.
Jekyl sýnist hafa náð undirtök-
um í glfmunni við Mr. Hyde f
Aðalstræti 6.
Morgunblaðið dustar nú ryk
af gömlum hugtökum frá
tfmum Valtýs heitins Stefáns-
sonar. Lýðræðishefðir, frjáls
skoðanaskipti og opnar
umræður virðast eiga að sjá
dagasins ljós aftur. Það er full
ástæða til að bjóða Morgun-
blaðið velkomið inn í öld rit-
frelsis og hjálpa þvf að stfga
fyrstu skrefin.
Hortug hrekkisvín
Morgunblaðið bendir
réttilega á að ókurteisi,
virðingarleysi og skætingur séu
sfzt til framdráttar Sjálfstæðis-
flokknum á kosningaári.
Blaðinu ferst ágætlega úr
hendi að hirta baldna götu-
stráka. Mun betur en að móta
skoðanir fullorðins fólks.
En eitt er þó vfst. Fjöldi sjálf-
stæðisfólks var viðstaddur
atkvæðatalningu i Bolholtinu
prófkjörsnóttina frægu. Þegar
tölurnar 7254 gegn 1510 lágu
fyrir um vegagerðina lýsti rit-
stjóri Morgunblaðsins þvf blá-
kalt yfir að blaðið yrði að'
breyta skoðunum fólksins.
Reykvfskri borgarastétt
gremst þetta virðingarleysi
fyrir lýðræði. Það er ókurteisi
við dómgreind kjósenda Sjálf-
stæðisflokksins og skætingur f
garð frjálsra skoðanaskipta.
Yfirlýsing ritstjórans og tröll-
aukin framkvæmd hennar á
prenti bjóða heim fylgishruni.
Draugagangurinn kemur á
skakkri öld.
Það heimtar enginn Reyk-
vfkingur að sértrúaröfl og mál-
gögn þeirra hlaupi á eftir al-
menningsálitinu. Þau hafa
sjaldnast átt með því samleið.
Það meinar þeim heldur
enginn að iðka sfn trúarbrögð f
einrúmi eða á torgum og
jafnvel blóta á laun, ef svo ber
undir.
En kjósendur Sjálfstæðis-
flokksins frábiðja sig eindregið
þeim trúboðsvinnubrögðum
sem konkvistadorar frelsuðu
með ríki Inka á sfnum tfma.
trafellsmóra heilaþvottar
verður að særa aftur inn f sitt
yzta myrkur. Til þess er aldrei
i of sterkt til orða tekið. Ef hvöss
tungutök hortugra götustráka
megna að leggja stein f leiði
draugsa þá er meðalið sannar-
lega helgað af tilganginum.
Asgeir Hannes Eirfksson,
verzlunarmaður