Dagblaðið - 27.12.1977, Blaðsíða 24
irjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 27. DES. 1977.
„Og hvad á barnið art heita?" Sí'ra Olafur Skúlason efndi til skirn;ii gu.lspjónustu hæói á jóladag og annan
til að þarna hefðu tólf kollar beðið þess að verða ausnir vatni.
í jólum. Herði ljósm.vndara, sem tók þessa DB-mynd, taidist svo
Þegar hinn almenni borgari
liggur á meltunni um jólin og
slappar af sem mest hann má er
ein stétt manna sem sér varla
fram úr annríkinu — prestastétt-
in. Auk allra almennu jólamess-
anna halda þeir skírnarmessur og
gifta fjölda manns.
Dómprófasturinn, séra filafur
Skúlason, lét sig ekki muna um að
skíra 24 börn á jóladag og annan
dag jóla. Er Dagblaðið ætlaði að
ræða við prestinn í stærstu sókn
Reykjavfkur, séra Hrein Hjartar-
son, í gær var hann ekki heima og
ómögulegt að ná i hann. Hann var
nefnilega að gifta núna en hafði
stuttu áður lokið við að skíra sjö
börn.
góð um jólin. Fullt var út úr dyr-
um í Reykjavíkurkirkjunum á
aðfangadagskvöld og þeir sem
siðastir komu urðu frá að hverfa.
Á jólunum finnur fólk hjá sér
hvöt til að fara i kirkju. Prestum
landsins ber saman um að kirkju-
sókn hafi verið með eindæmum
Akurnesingar voru bæði prests-
og kirkjukórslausir um hátíðarn-
ar. Séra Björn Jónsson sóknar-
prestur þar er staddur á Betle-
hemsvöllum ásamt kórnum. En
Akurnesingar fengu samt sínar
messur, því að gamlir kórfélagar
og kór barnaskólans tóku að sér
sönginn. Aðkomuprestar sáu
síðan um að guðsorðið kæmist til
skila.
- AT-
Fjárdráttur hjá útvarpinu
auglýsingast jóra vikið f rá
Auglýsingastjóra Ríkisút-
varsins hefur verið vikið úr
starfi á meðan endurskoðun fer
fram á bókhaldi auglýsinga-
deildarinnar nokkur ár aftur i
timann.
Að sögn Halldórs V. Sigurðs-
sonar ríkisendurskoðanda
beinist athugun Ríkisendur-
skoðunar að þvf, hvort allar
auglýsingatekjur útvarpsins
undanfarin ár hafi skilað sér.
Halldór sagði að athugun þessi
hefði hafizt fyrir um það bil
mánuði og hefði auglýsinga-
stjórinn látið af störfum
skömmu síðar.
Hann færðist undan að ræða
málið nánar, en sagðist gera sér
vonir um að endurskoðuninni
færi að ljúka. Við þetta hugsan-
lega misferli varð vart í
venjulegri endurskoðun Rikis-
endurskoðunar, sem gerð er
reglulega hjá ríkisstofnunum.
Andrés Björnsson útvarps-
stjóri neitaði alveg að ræða
þetta mál þegar fréttamaður
DB leitaði til hans.
-ÖV.
Ka ba rctty fyrsta kvikmyndin ílit ísjónvarpinu
Eigendur litsjónvarpstækja
kættust mjög er sýning jólamynd-
arinnar Kabarett hófst i gær-
kvöldi þvf myndin var sýnd f lit
um. Jólaskemmtiþátturinn
ýmislegt annað jólaefni var
einnig f iitum og var leikmyndin
og
sérlega fögur í lit.
Af því tilefni hringdi DB í
Pétur Guðfinnsson framkvæmda-
stjóra sjónvarpsins og spurðist
fyrir um hvort litvæðingin væri
nú orðin algjör.
„Þetta var nú gert með vissum
tilfæringum, því tækið sem við
eigum von á er ekki komið til
landsins," sagði Pétur. „Þetta var
það efni jóladagskrárinnar sem
var á filmu en miklar vonir höfðu
verið bundnar við að hægt yrði að
sýna í litum. Þetta eru hins vegar
það miklar tilfæringar að ekki er
hægt að gera það dagsdaglega.
Hins vegar vonumst við til þess að
sýningarvélin komi til landsins
milli jóla og nýárs og þá tekur
ekki nema fáeina daga að koma
henni i gagnið, þannig að sýning á
litfilmum ætti að geta orðið raun-
veruleiki fljótlega eftir ára-
mótin," sagði Pétur.
-A.Bj.
Ung kona
ekin niður
á Kringlu-
mýrarbraut
Ekið var á 21 árs gamla
konu á Kringlumýrarbraut
klukkan rúmlega eitt sl.
nótt. Var konan þarna ein á
ferð fótgangandi og var
komin suður fyrir Sigtún er
Volkswagenbifreið lenti á
henni. Engin vitni eru að
árekstrinum.
Stúlkan höfuðkúpu-
brotnaði og fótbrotnaði illa.
I morgun var hún við
sæmilega líðan en þá var
fyrir höndum aðgerð vegna
fótbrotsins.
Þetta slys á Kringlumýr-
arbrautinni i nótt var alvar-
legasta slys helgarinnar.
Arekstrarnir í gær urðu 12
talsins. I fjórum tilfellum
slasaðist fólk en ekki alvar-
lega. -ASt.
SKAL
FYRIR
HELGA
„Meira gos?“ spyr þjónninn
unga manninn með kampavfns-
glasið. „Jú, takk, kannski
örlítið meira.“ Það var skáiað í
hléinu í Þjóðleikhúsinu í gær-
kvöldi, þegar lelkhúsið frum-
sýndi Hnotubrjótinn. Helgi
Tómasson sýndi þá löndum sín-
um hvað í honum býr, og það
var eins og við manninn mælt,
aðgöngumiðar seidust allir upp
á sýningar þær, sem Helgi
tekur þátt í.
A myndinni er fjöiskvida
Helga í leikhléi í gær, eígin-
kona hans og tveir synir, en
lengst til hægri er Dagmar
Helgadóttir móðir hans. — DB-
mynd Bjarnleifur.