Dagblaðið - 02.05.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 02.05.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1978. 11 Ítalía: BRÉFUM RIGNIR FRÁ ALDO MORO Nú virðist svo komið, að Aldo Moro, fyrrum forsætisráðherra, sé orðinn vopn eða talsmaður i baráttu Rauðu herdeildapna gegn stjórnvöld- um á Ítalíu. Með hinum mörgu bréfum sem borizt hafa frá honum að undanförnu hefur Rauðu herdeildun- um tekizt að valda miklum glundroða og óvissu um hvort Aldo Moro væri lifseða liðinn. Sérfræðingar benda á að litlu skipti hvort Moro skrifi þessi bréf af eigin hvötum eða samkvæmt skipun forustumanna Rauðu herdeildanna. Þau geri sama gagn, valdi upplausn í stjórnkerfinu italska, sem sannarlega hefur þótt í nægilegri ringulreið fyrir. Eitt bréfanna sem Aldo Moro sendi um helgina var til Bettino Craxi. leið- toga sósílista. Þakkaði Moro honum fyrir að hafa reynt að bjarga lifi sínu og gagnrýnt Kristilega demókrata- flokkinn fyrir aðgerðarleysi. Moro mun einnig hafa ritaðýmsum forustu mönnum og kunningjum sinum meðal kristilegra demókrata og beðið þá að gera það sem þeir gætu til að bjarga lífi sinu. Talið er að hann hafi farið fram á að almennar umræður yrðu i italska þinginu um hvort ganga ætti að kröfum Rauðu herdeildanna um að láta 14 félaga þeirra lausa úr fang- elsum í skiptum fyrir Moro. Ólíklegt er talið að svo verði gert. Stærstu flokkar Ítalíu, Kristilegi demókrataflokkurinn og Kommúnistaflokkurinn hafa verið sammála um að hafna öllu samstarfi við mannræningjana og eru ekki taldar líkur á að forustumenn þeirra telji almennar umræður um málið æskilegar. Verkalýðsleiðtogar sem styðja kommúnista lögðu áherzlu á skoðun flokksins i ræðum sinum i gær, 1. maí, og formaður Verkamannasambands Kommúnista, Luciano Lama, sagði að Rauðu herdeildirnar væru mesti óvinur verkamanna og hefðu það að markmiði að koma á borgarastriði og siðan ógnarstjórn. Við megum ekki leyfa þeim að brjóta niður á einum degi það sem tekið hefur okkur heila mannsæfi að byggja upp, sagði kommúnistaleiðtoginn. Enrico Berlinguer, formaður kommúnista, ræddi við Andreotti forsætisráðherra i gær og einnig munu hafa farið fram viðræður meðal leiðtoga kristilegra demókrata. Þess sjást engin merki að stefnu- breytingar sé að vænta og ítölsk stjórnvöld ætli að ganga til samninga við ræningja Aldo Moro. Ítalir eru að vonum áhyggjufullir vegna aukins fjölda mannrána á undanförnum árum. Meðal annars hefur það komið fram I mjög aukinni eftirspurn eftir skotheldum vestum. Segja kaupmenn að svo mikil sé eftirspurnin að viðskiptavinir verði að biða i nokkra daga áður en þeir geta fengið hin eftirsóttu vesti. Verðið er auðvitað misjafnt og þyngd vestanna getur verið allt að 1,2 kilógrömmum. Kanada: Hefur gripið 65 í gleði- konudul- búningnum Alls hafa sextiu og fimrn karlmenn gengið i gildruna hjá Sue Grosvenor. 25 ára gamalli lögreglukonu i Toronto i Kanada. Sue er I siðferðisdeild lögreglunnar og undanfarna þrjá mánuði hefur hún haft það verkefni að ganga um i vissum hverfum Toronto, dulbúin sem gleði- kona. Sér til varnar hefur lögreglukonan 38 kalibera skammbyssu. Sue Grosvenor er ein fjögurra kvenna sem hefur þennan starfa með höndum I Toronto. TRAMPS NYKOMIÐ Skrásett vörumerki Stærðir: Nr. 35-46—Kr.9.760.— Litur: Natur Skoverziun ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR Kirkjustræti 8 við Austurvöll Sími 14181 — Póstsendum INTERNATIONAL TRANSTAR Getum útvegað af lager verksmiðju 6 hjóla dráttar- bíla af gerðinni INTERNATIONAL TRANSTAR CO 4070 B. Framás: Burðarþol 6000 kg. Afturás: Burðarþol 10000 kg. Vél: Cummins 350 hö (turbo) Gírkassi: Fuller 13 gira (RTO 9513) Hús: Álhús (kojuhús) Innrétting: „Custom" (vandaðasta gerð) Rafkerfi: 24 volt Vandaður bíll. Áætlað útsöluverð kr. 12.500.000.- Kaupfélögin um allt land Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900 ecco-let gerir valið W auðve/t saumaðir ■ Leðurf óðraðir, frá hæl, í tá, ■ Mjúkir leðurfóðraðir kantar ■ Léttir og sterkir Litur: Natur leður Stærðir: Nr. 35—46 verð kr. 9.680. Póstsendum Skóverzlun Þórðar Péturssonar Kirkjustræti 8 v/Austurvöll Sími 14181

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.