Dagblaðið - 02.05.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1978.
15
Bættarskipa-
samgöngurvið
Norðurlönd
liggja í loftinu:
Það virðist liggja nokkuð Ijóst fyrir að
á næstu árum muni ný og fullkomnari
ferja annast flutninga fólks og bíla milli
íslands og annarra Norðurlanda. Að til-
lögu Norðurlandaráðs starfar nefnd að
athugun á sameiginlegu átaki Norður-
landanna til kaupa og reksturs slikrar
ferju. Komi hún ekki mun núverandi út-
gerðarfélag Smyrils hafa uppi áform um
að fá nýja ferju til þeirra flutninga sem
Smyrill hefur rutt braut og er þá mark-
miðið að löndunarhöfn hennar verði á
Suðurlandi, t.d. í Þorlákshöfn.
Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri
mun sitja fund norrænu embættis-
mannanefndarinnar, sem sér um sam-
göngumál, sem haldinn verður í Þórs-
höfn i Færeyjum 23. og 24. mai. Meðal
mála er þar verða rædd eru niðurstöður
vinnuhópa varðandi kaup og rekstur
bíla- og fólksflutningaferju milli Norður-
landanna. Málið hefur verið á dagskrá
siðan 1972 að því var fyrst hreyft á
Norðurlandaráðsþingi.
Brynjólfur kvaðst ekki á þessu stigi
geta skýrt neitt frá nýjustu niðurstöðum
um málið. Embættismenmrriir myndu
fjalla um niðurstöður vinnuhópa sem
kannað hafa kostnaðarhlið og rekstrar-
möguleika. Niðurstöður embættismann-
anna ganga síðan til ráðherrafundar og
koma loks fram á þingi Norðurlanda-
ráðs í febrúar 1979.
Thomas Arabo framkvæmdastjóri út-
gerðar Smyrils vildi ekki staðfesta að út-
gerðin væri tilbúin með áætlanir um
rekstur nýrrar og stærri ferju en Smyrill
er. Kvað hann útgerðina biða eftir
niðurstöðum embættismannafundarins i
Tveirlistarí
baráttunni
á Bíldudal
Tveir listar keppa nú um að komast í
hreppsnefnd á Bildudal. Eru það J-list-
inn, listi lýðræðissinnaðra kjósenda og
K-listinn, listi óháðra kjósenda.
Efstur á J-listanum er Örn Gislason
bifvélavirki sem setið hefur i hrepps-
nefnd fyrir listann. 2. Runólfur Ingólfs-
son rafvirki, 3. Hjálmar Einarsson
verkamaður, 4. Sigriður Pálsdóttir hús-
frú, 5. Guðmundur Rúnar Einarsson,
skipstjóri, 6. Kjartan Eggertsson tón-
listarkennari, 7. Benedikt Benediktsson.
bifreiðarstjóri, 8. Gunnar Valdimarsson
bifreiðarstjóri. 9. Eyjólfur Hlíðar Ellerts-
son bankafulltrúi og 10. Snæbjörn Árna-
son skipstjóri. Til sýslunefndar er
boðinn fram sem aðalmaður Gunnar
Þórðarson verkstjóri og til vara Sigurður
Guðmundsson stöðvarstjóri. Gunnar
hefur setið í hreppsnefndinni fyrir J-
listann.
Theodór Bjarnason sveitarstjóri og
sýslunefndarmaður er í fyrsta sæti K-
listans. Annar er Magnús K. Bjömsson
útibússtjóri sem er nýr í baráttunni, 3.
Jakob Kristinsson oddviti hrepps-
nefndar, 4. Viktoria Jónsdóttir kennari,
5. Hávarður Hávarðsson bifreiðarstjóri.
6. Halldór G. Jónsson formaður verka
lýðsfélagsins, 7. Kristberg Finnbogason
verkstjóri, 8. Karl Þór Þórisson rafvirki,
9. Guðmundur Pétursson vélstjóri og
10. Margrét Friðriksdóttir verzlunar-
maður.
Til sýslunefndar er boðinn fram sem
aðalmaður Gunnar Ólafsson verkstjóri
og varamaður Jörundur Garðarsson
skólastjóri.
Athygli vekur að tveir hreppsnefndar-
menn K-listans, þau Pétur Bjarnason
skólastjóri og Pálina Bjarnadóttir hús-
freyja eru ekki á listanum nú.
1 hreppsnefnd á Bíldudal eru 5 menn,
2 af J-lista og 3 af K-lista.
DS
Önnumst hvers konar matvælareykingar
fyrir
verslanir, mötuneyti og einstaklinga.
REYKIÐJAN HF.
SMIDJUVEGI 36 •E'7 63 40
Annaðhvort „samnorræn”
ferja eða stærri Smyrill
Þórshöfn seint i maí. Hann lét vel af
rekstri Smyrils og grundvöllur væri fyrir
stærri ferju. Af farþegum í ferðum hans
væru um 20% íslendingar nú, en hinir
væru af ýmsu þjóðerni, einna flestir
Þjóðverjar.
í sumar verða áætlanir Smyrils með
sama hætti og fyrr. Fyrsta koma
skipsins er 1. júni og svo vikulega í 16
vikur. Uppselt er um háannatimann nú
þegar bæði fyrir bíla og farþega.
Arabo sagði að ef stærri og hrað-
skreiðari ferja annaðist flutningana
myndi verða siglt til Þorlákshafnar eða
annars staðar á suðurströndinni.
Einkum ætti þetta við ef ferðir yrðu
teknar upp allt árið og stafaði það af
slæmu vegakerfi. Hann sagði marga far
þega Smyrils alls ekki koma til Reykja-
vikur.
- ASt.
Færevska ferjan Smyrill.
c.
Eru
íslendingar
úti aÖ aföiO
Já margir hverjir, það fer ekkert milli mála - þó eru þeir
sérstaklega úti að aka ásumrin - þáskipta þeir þúsundum.
Ástæðan?
Jú ástæðan er einföld, hún er sú að afsláttarfargjöld
okkar gera öllum kleift að komast utan ísumarleyfi til þess
að sjá sig um, kynnast frægum stöðum - og gista
heimsborgir.
Það þarf engan að undra
þótt margir séu úti að aka á
sumrin - á eigin bílum eða
leigðum bílum.
Kynntu þér afsláttarfargjöld
okkar - þau gætu komið þér
þægilega á óvart - og orðið til
þess að þú yrðir líka úti að aka í
sumar.
Þeir sem þannig ferðast ráða ferð-
inni sjálfir - sumir fara um mörg
lönd - aðrir fara hægar yfir og
halda sig lengst þar sem
skemmtilegast er.
JFLUCFÉLAC LOFTLEIBIR
ISLANDS