Dagblaðið - 02.05.1978, Blaðsíða 22
22
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. MAl 1978.
t
fþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
West Ham á barmi falls
—í2. deild ef tir ósigur gegn Evrópumeisturum Liverpool. Bolton sigurvegari í 2. deild og
Southampton ogTottenham fylgdu Bolton upp
Eftir síðasta leikdaginn i ensku
deildakeppninni á laugardag cr aðeins
þremur spurningum ósvarað. Þau svör
fást, þegar nokkrum leikjum, sem
fresta varð fyrr á leiktimabilinu, lýkur.
Þessar þrjár spurningar eru: Fellur
West Ham eða Úlfarnir ásamt
Leicester og Newcastle niður í 2.
deild? — West Ham virðist fallið.
Úifarnir eiga tvú leiki eftir og þurfa
eitt stig úr þeim — en þetta eru erfiðir
leikir við Aston Villa, sem enn hefur
möguleika i UEFA-keppnina. Hvaða
lið fellur i 3. deild ásamt Hull og
MansField? Þar koma nokkur lið til
greina — Orient, Cardiff, Millwall,
Charlton og Blackpool. Furðulegt,
Blackpool er i mikilli hxttu. Cardiff á
eftir tvo heimaleiki við Notts County
og Orient, sem einnig á eftir að leika á
heimavelli við Charlton. Þá á Millwall
eftir að leika við MansField i Lundún-
um og sigur bjargar liðinu frá falli.
Litlar likur voru á þvi á tímabili, að
Millwall gæti haldið sæti sinu. Þriðja
spurning er hvort það verður Preston
eða Peterborough, sem kemst upp i 2.
deild ásamt Wrexham og Cambridge.
— Peterborough á einn leik eftir —
erFiðan leik við sigurvegara 3. deildar
Wrexham og það í Wales. Peter-
borough verður að sigra til að komast
upp. Preston hefur einu stigi meira og
miklu hagstæðari markamun.
Á laugardag beindist áhuginn mest
að toppbaráttunni í 2. deild og fallbar-
áttunni í þeirri fyrstu. I 2. deild náði
Tottenham jafntefli i Southampton —
og við það tryggðu bæði lið sér sæti í
1. deild næsta keppnistímabil. Totten-
ham eftir eitt ár i annarri deild. Þetta
var mikill baráttuleikur og Lundúna-
liðið að mörgu leyti heppið að hanga á
stigi. Tunnell átti stangarskot fyrir
Dýrlingana í fyrri hálfleik og Ted
.MacDougall, sá mikli markaskorari,
spyrnti framhjá Tottenham-markinu í
opnu færi. Mikill fögnuður var í
Southampton eftir leikinn — hjá leik-
mönnum og fylgjendum beggja liða.
Jafnvel þó Southampton hafi misst af
efsta sætinu með jafnteflinu. Bolton
náði því með því að gera jafntefli við
Fulham á heimavelli á laugardag i leik
þar sem Bolton-liðið hafði mikla yfir-
burði í síðari hálfleik. Leikmenn Brigh-
ton sitja eftir með sárt ennið — hlutu
56 stig eins og Tottenham en voru
með lakari markamun. Brighton, sem
aldrei hefur leikið í 1. deild en er nú að
verða stórlið undir stjórn Alan
Mullery, áður fyrr fyrirliða Englands,
Tottenham og Fulham, komst þvi ekki
upp þó svo liðið hlyti fleiri stig en nægt
hefur til að ná sæti í 1. deild undan-
farin ár. Það kemur næsta ár, sagði
Mullery eftir leikinn.
Tveir leikir voru mest í sviðsljósinu
í 1. deild — leikir West Ham og Liver-
pool, Úlfanna og Man. Utd. Leikmenn
West Ham — talsvert taugaspenntir
— höfðu aldrei möguleika gegn
Evrópumeisturum Liverpool. Töpuðu
0-2 og eftir það gátu leikmenn tveggja
annarra Lundúnaliða andað léttar —
Chelsea og QPR, og einnig leikmenn
Úlfanna. Áhorfendur voru 37.500 á
Upton Park — leikvelli West Ham,
svo ekki vantaði stuðning þeirra. Met-
aðsókn á leiktímabilinu. Á 39. min.
átti Pop Robson slæma sendingu aftur,
fyrirliði Liverpool Emlyn Hughes náði
knettinum. Gaf á Terry MacDermott,
sem skoraði fallegt mark. Á 57. min.
gaf Graeme Souness snilldarlega á
David Fairclough, sem skoraði síðara
mark Liverpool. Nú verða leikmenn
West Ham að setja allt sitt traust á
Aston Villa í sambandi við leikina við
Úlfana. I Wolverhampton náði heima-
liðið dýrmætum stigum gegn Man.
Utd. Þar börðust Úlfarnir hetjulega
þvi lengi vel áttu þeir í vök að verjast
gegn United. Á 34. mín. skoraði Man.
Utd. glæsilegt mark. Stuart Pearson
gaf fyrir. Joe Jordan skallaði fyrir
fætur Brian Greenhoff, sem sendi
knöttinn i netið. Á 51. mín. tókst
Martin Patching að jafna fyrir Úlfana
og spenna var gífurleg á vellinum —
jafnt meðal leikmanna Úlfanna sem
áhorfenda. Á 76. mín. skoraði hinn
ungi Mal Eves og það reyndist sigur-
mark Úlfanna í leiknum. Þýðingar-
mikil mörk, sem þessi ungi piltur hefur
skorað að undanförnu fyrir lið sitt.
Mörk, sem. sennilega bjarga þvi frá
falli.
En það er nú víst kominn tími til að
lita á úrslitin á laugardag.
1. doild Arsenal — Middlesbro 1-0
Aston Villa — Ipswich 6-1
Bristol City — Coventry 1-1
Evorton — Chelsea 6-0
Leicester — Newcasde 3-0
Man. City — Derby 1-1
Norwich - WBA 1-1
Nottm. For. — Birmingham 0-0
QPR - Loeds 0-0
West Ham — Liverpool 0-2
Wolves — Man. Utd. 2-1
F/
Nýkomnir
DEMPARAR
Benz—Datsun—Fiat
Ford—GÆ — Mazda
Mini — Mitsubishi — Opel
Peugeot—Renault
Rover—Saab— Toyota
Vauxball— Volkswagen
Volvo-Willyso.fi.
Ötrúlega hagstætt verö
Póstsendum um allt land
HÖGGDEYFIR
Dugguvogi 7—Sími 30154
Reykjavík
Alan Ball — leiddi Southampton aftur
í 1. deild — og hélt siðan á sunnudag
til Bandarikjanna til að leika þar.
Bohon — Fulham 0-0
Brighton — Blackpool 2-1
Bumley — Luton 2-1
C. Palace — Blackbum 5-0
Hull — Bristol Rovers 0-1
Mansfield — Oríent 1-1
Millwall - Oldham 2-0
Sheff. Utd. - Cardrff 0-1
Southampton — Tottenham 0-0
Stoke — Notts County 1-1
Sunderiand — Chartton 3-0
3. deild
Bradford - Walsall 2-3
Cambridge — Exeter 2-1
Cariisle — Swindon 2-2
Chester — Peterbro 4-3
'Colchester — Sheff. Wed. 1-1
Gillingham — Lincoln 0-0
Hereford — Wrexham 1-1
Oxford — Bury 0-0
Plymouth — Port Vale 3-2
Preston — Shrewsbury 2-2
Rotherham — Portsmouth 0-1
Tranmere — Chesterfield 1-1
4. deild
Aldershot — Hardepool 3-0
Bamsley — Wimbledon 3-2
Daríington — Scunthorpo 1-1
Doncastor — Reading 2-2
Grimsby — Brentford 2-1
Huddersfieid — Boumomouth 2-0
Newport — Southend 1-2
Rochdale — Torquay 1-3
Swansea — Halifax 2-0
Watford — Southport 3-2
York — Northampton 0-3
Stockport — Crewe 1-2
Mikil spenna var á Goodison Park í
Live^óol í sambandi við hvort Bob
Latchford tækist að skora tvö mörk.
Vinna þannig til verðlauna Daily
Express og Adidas, sem heitið hafa 10
þúsund sterlingspundum til þess leik-
manns, sem fyrst skoraði 30 deilda-
mörk á leiktímabili. Það hefur engum
tekizt undanfarin ár. Fyrir leikinn
hafði Latchford skorað 28 mörk — og
það leit ekki vel út'hjá honum gegn
Chelsea. Everton skoraði hvert
markið á fætur öðru — en Latchford
komst ekki á blað — fyrst Martin
Dobson, þá Mick Lyons og Billy
Wright, og fjórða mark Everton
skoraði Neil Robinson. 4—0 og 12
mín. til leiksloka en þá komst Latch-
ford í færi, 5—0. 39 þúsund áhorf-
endur voru með á nótunum og hrópin
gífurleg. Fimm min. fyrir leikslok var
dæmt viti á Chelsea. Latchford tók
það. Skoraði og 10 þúsund sterlings-
pundin voru hans — mark, sem gaf
4.7 milljónir króna.
Aston Villa skoraði einnig sex gegn
úrslitaliðinu I bikarkeppninni, Ips-
wich. 17 ára piltur í marki Ipswich,
Paul Overton, þurfti sex sinnum að
hirða knöttinn úr netinu en varði þá
oft snilldarlega. Marga fastamenn Ips-
wich vantaði og þeir, sem léku forð-
uðust meiðsli. Úrslitaleikurinn við
Arsenal er næsta laugardag. Mörk
Villa skoruðu John Deehan, tvö,
Andy Gray, sem lék snilldarlega,
Little, Carrodus og Cowans.
Meistarar Nottingham Forest léku
vel í fyrri hálfleik gegn Birmingham
án þess að skora. 1 siðari hálfleiknum
náði Birmingham-liðið algjörum yfir-
burðum en Peter Shilton varði mark
Forest eins og honum er einum lagið.
Bjargaði liði sínu frá tapi. Arsenal
sigraði Middlesbro með marki Frank
Stapleton. Man. City og Derby deildu
stigunum. Mike Channon skoraði
fyrir City — Gerry Daley fyrir Derby.
QPR náði þýðingarmiklu stigi í jafn-
teflisleiknum við Leeds. Þar átti Tony
Currie stangarskot fyrir Leeds en hinu
megin bjargaði Trevor Cherry á mark-
línu. QPR var betra liðið. Cyrille
Regis náði forustu fyrir WBA í
Norwich en Foulkes jafnaði. Leicester
vann sinn stærsta sigur á leiktimabil-
inn gegn Newcastle — Goodwin,
Roger Davies og Salmons skoruðu.
Áhorfendur aðeins átta þúsund.
1 2. deild vann Brighton sigur á
Blackpool með mörkum Peter Ward
og Brian Horton. Bob Hatton skoraði
fyrir Blackpool og leikmenn liðsins
börðust af hörku. Fjórir bókaðir. En
Blackpool tapaði og er nú allt í einu í
mikilli taphættu. Brighton hefur
staðið sig mjög vel síðustu vikurnar þó
það nægði ekki til að komast i 1. deild.
En þetta er bezti árangur í sögu félags-
ins — fjórða sæti í 2. deild. Bristol
Rovers, sem náð hefur ágætum
árangri síðan Bobby Gould kom til
félagsins, bjargaði sér með sigri í Hull.
Blackpool stanzaði á 37 stigum — og
Charlton, Millwall, Cardiff og Orient
geta komizt upp fyrir þá stigatölu ef
stigin dreifast í innbyrðisleikjum
þeirra, sem eftir eru.
Cardiff lagaði mjög stöðu sina með
sigri í Sheffield og ætti að sleppa með
tvo heimaleiki eftir. Orient á einnig
tvo heimaleiki — og getur sent Charl-
ton niður i 3ju deild. Skrítið ef Orient,
sem komst í undanúrslit í bikarkeppn-
inni, fer að falla. Stigið, sem liðið náði
í Mansfield, getur reynzt mjög
þýðingarmikið. Mayo skoraði mark
Orient þar.
1 3. deild tryggði Cambridge sér rétt
að leika i 2. deild næsta keppnistímabil
með sigri á Exeter. Hefur komizt úr 4.
í 2. deild á tveimur leiktímabilum.
Peterborough tapaði í tvisýnum leik í
Chester og verður nú að sigra efsta
liðið í 3. deild i Wrexham til að komast
upp. Preston hefði getað náð þvi með
sigri á Shrewsbury á laugardag — en
lið Nobby Stiles náði ekki nema jafn-
tefli á heimavelli. Verður því að bíða
eftir úrslitunum i Wrexham. Niður í 4.
deild falla Port Vale, Bradford, Here-
ford og Portsmouth. — Plymouth
tókst að bjarga sér með sigri á Port
Vale en Malcolm Allison hefur tekizt
mjög að hressa leikmenn Plymouth
eftir að hann tók þar við stjóminni í
vetur.
Sæti þeirra í 3. deild taka Watford,
Southend, Brentford og Swansea — og
á laugardag skoraði John Toshack
síðara mark Swansea gegn Halifax,
sem gulltryggði sigurinn og þar með
sæti i 3. deild. , .
. - hsim.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Nottm. Forest 40 25 12 3 07-22 62
Everton 42 24 7 11 70-45 55
Uverpool 40 23 0 9 61-34 54
Arsenet 41 21 10 10 00-34 52
Men. City 40 19 11 9 74-49 50
Coventry 42 19 13 11 77-02 49
WBA 41 10 13 10 01-51 49
A. Ville 40 17 10 13 50-38 40
Leeds 42 18 10 14 63-53 40
Man. Utd. 42 16 10 10 07-03 42
Birminghem 42 16 9 17 55-00 41
Nonwich 42 11 18 13 62-60 40
Derfay 41 13 13 15 51-59 39
Middlesbro 42 12 15 15 42-54 39
Bristol City 42 11 13 18 49-53 35
Ipswkrh 41 11 13 19 46-59 35
QPR 41 9 15 17 48-81 33
Chelsea 40 10 13 17 41-70 33
Wolves 40 10 12 18 46-82 32
WestHam 42 12 8 21 52-09 32
Newcasde 42 6 10 28 42-78 22
Leicester 42 5 12 25 20-70 22
2. doild
Bolton 42 24 10 8 63-33 58
Southampton 42 22 13 7 70-39 57
Tottenham 42 20 18 6 83-49 50
Brighton 42 22 12 8 63-38 50
Blackbum 42 16 13 13 50-00 45
Sunderland 42 14 16 12 67-57 44
Stoke 42 10 10 16 53-49 42
Oldham 42 13 16 13 54-58 42
C.Palaca 42 13 15 14 50-47 41
Fulham 42 14 13 15 48-49 41
Bumlay 42 15 10 17 58-64 40
Sheff. Utd. 42 16 8 18 62-73 40
NottsCo. 41 11 16 14 53-60 38
Birstol Rov. 42 13 12 17 01-77 38
Luton 42 14 10 18 54-52 37
Blackpool 42 12 13 17 59-00 37
Charlton 41 13 11 17 55-68 37
Millwall 41 11 14 16 48-57 36
Cardiff 40 12 12 16 49-69 36
Orlent 40 9 17 14 42-49 35
Mansfiekl 41 10 11 20 49-68 31
Hull 42 8 12 22 34-52 28
Rangers varð skozkur
meistari á Ibrox Park
— sigraði Motherwell 2-0. Celtic komst ekki í Evrópukeppni
meistaratitlinum til nágranna sinna,
Rangers. Celtic beið lægri hlut gegn
St. Mirren, 3—l. Mögru keppnistima-
bili Celtic iokið — en liðið hafnaði i
fimmta sæti eftir að hafa um tíma
veriðí fallhættu.
Úrslit á Skotlandi á laugardag urðu:
Rangers tryggði sér skozka
meistaratitilinn I knattspyrnu á laugar-
dag, sigraði Motherwell 2—0 á Ibrox
Park I Glasgow. Það var mikið um
dýrðir á Ibrox, 40 þúsund manns
fylgdust með er skozki meistaratitill-
inn varð Rangers.
Colin Jackson kom Rangers yfir
jvegar á 6. mínútu gegn Motherwell er
hann sendi knöttinn í netið — og á 18.
mínútu skoraði Gordon Smith fyrir
Rangers, 2—0 — eftir góðan undir-
búning Derek Johnstone.
Fögnuður áhangenda Rangers var ■
mikill — og áhorfendur þyrptust niður
á völlinn eftir leikinn og dönsuðu af
fögnuðu. Hins vegar var fögnuður
Celtic ekki eins — í fyrsta sinn i 17 ár
komst Celtic ekki i Evrópukeppni, hið
fræga Glasgow-lið varð að sjá á eftir
United.
Nú er aðeins einn leikur eftir í úr-
valsdeildinni skozku — viðureign
Dundee Utd. og Clydebank en staðan
er:
Clydebank — Ayr 0-2
Dundee Utd. — Partick 5—2
Hibernian — Aberdeen l-l
Rangers — Motherwell 2-0
St. Mirren — Celtic 3—l
Aberdeen er veitti Rangers harða
keppni varð að sætta sig við jafntefli i
Edinborg — gegn Hibernian, 1—1.
Arthur Duncan náði forustu fyrir
Hibernian, en lan Scanlon jafnaði
fyrir Aberdeen, er keypti hann frá
Notts County. Hibernian komst þar
með í UEFA-keppnina ásamt Dundee
Rangers
Aberdeen
Dundeo Utd.
Hibemian
CeWc
Motherwel!
Partlck
St Mirren
Ayr
Clydebank
36 24 7 5 78-39 55
38 22 9 5 68—29 53
35 16 8 11 42-39 40
36 15 7 14 61-44 37
38 15 6 15 63-53 38
38 13 7 18 45-52 33
36 14 5 18 52-64 33
36 11 8 17 62-63 30
36 9 6 21 36-68 24
35 5 7 23 21-63 17
Morton og Hearts tryggðu sér sæti í
úrvalsdeiidinni — þrátt fyrir sigur
Dundee gegn Morton 3—2 á iaugar-
dag nægði það Dundee ekki — Hearts
sigraði Arbroath 1—0. Dundee hafði
lengst af forustu í 1. deild en missti
þráðinn i iokin.