Dagblaðið - 15.12.1978, Síða 12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1978.
J2
Danmörk:
Fóstureyðingum og
fæðingum fækkar
—giftar konur gangast f rekar undir siíka aðgerð en ógiftar
Tveir þriðju hlutar kvenna i Dan-
mörku gangast undir fóstureyðingar-
aðgerð einhvern tíma .á lífsleiöinni,
segir í skýrslu sem birtist í timariti
danskra lækna. Samkvæmt henni
kemur i ljós að fóstureyðing er ekki
svo neinu nemi notuð i stað almennra
getnaðarvarna. Aðeins brot úr hundr-
aðshluta allra kvenna kemur til slíkrar
aðgerðar tvisvar sama árið.
1 heild fækkar fóstureyðingum í
Danmörku og nam fækkunin 4% á
milli áranna 1977 og 1976. Sama
þróun var árið áður. 95% fóstur-
eyðingaraögerðanna voru fram-
kvæmdar án nokkurra aukaverkana.
Samkvæmt skýrslum hefur ekki orðið
neitt dauðsfall i Danmörku í fyrra sem
afleiðing af fóstureyðingu. Giftar
konur ganga oftar undir slíka aðgerð
en ógiftar. Aðgerðin er algengust
meðal kvenna á aldrinum 18 til 24 ára.
1 fyrra létu átta þúsund og fimm
hundruð karlar og fimm þúsund og sjö
hundruð konur gera sig ófrjó. Fæðing-
um í Danmörku hefur fækkað úr rúm-
lega sjötíu og tveim þúsundum árið
1974 i rúmlega sextíu og tvö þúsund
árið 1974. Að meðaltali eignast hver
dönskkona 1,6 börn.
Stríð er
ekkijóla-
leikur
Þaö er ekki bara á islandi sem mælt
er gegn vopnaburði á jólunum. Þrátt
fyrir öll tilmæli verður helgi jólanna
skotin sundur og saman með nákvæm-
um eftirlíkingum af hvers kyns skot-
vopnum.
Hillur leikfangabúðanna svigna und-
aniskriðdrekum,orustuskipum,sprengju-.
flugvélum og alls konar vígvélum. Þær
eru ennþá staðreynd og því miður ekki
eingöngu í þykjustunni.
Á myndinni er skotglaður jólasveinn
að sýna rafknúna vélbyssu með hljóð-
deyfi, ljósglömpum og sísnúnum radar.
Framleiðandinn mælir sérstaklega með
þessu leikfangi handa öllum börnum
eldri en þriggja ára. Myndin er tekin i
stórverzlun einnar frændþjóðarinnar og
gæti raunar allt eins verið tekin hér.
INGVAR HELGASON
HEILDVERZLUN VONARLANDIVIÐ SOGAVEG - SÍMAR 84510 OG 84511
VORUM AÐ TAKA UPP
NÝJA SENDINGU AF
HANDGERÐUM OG MUNNBLÁSNUM
GLERMUNUM.
Ekki er um að rœða ódýra verksmiðjuframleiðslu jrá
Austurlöndum, eins og meðfylgjandi bréfsýnir
íran:
Andmælendur
berttir hörðu
Herstjórnin í Iran hefur skipað lög-
reglunni að beita mótmælahópa hörðu
ef þeir vogi sér að láta andúð sina í Ijósi
með útifundum eða hópgöngum.
Kreppan i oliuiðnaði landsins er orðin
svo alvarleg að grípa hefur þurft til að
flytja inn olíu til notkunar. íran er eitt
olíuáuðugasta ríki heims.
Bandaríkin:
Vance kominn
til Washington.
Cyrus Vance kom í dag til Washing-
ton eftir einnar viku dvöl í ísarel og
Egyptalandi. Tilgangur farar hans var
að koma á formlegum friðarsamningum
á milli rikjanna. Hanri hafði ekki erindi
sem erfiði.
Bandaríkin:
Ekki bein af-
skipti af írans-
mákim
Carter Bandaríkjaforseti sagði i sjón-
varpsviðtali i gær að hann hefði sent
Brésnef forseta Sovétrikjanna orðsend-
ingu þess efnis að stjórn hans hygðist
ekki hafa bein afskipti af atburðum j
íran. Einnig sagði Carter að Bandarikin
hygöust ekki fá önnur ríki til slikra af-
skipta.
3% hagvexti
spáð í Banda-
rðqunum næsta
ár
Sérfræðingar Bandaríkjaforseta telja
likur á að hagvöxtur þar vestra verði
minni en 3% á næsta ári. Telja þeir
efnahagslifið í þokkalegu standi þó svo
ýmislegt bjáti á.
Gæzlulið áfram
á Kýpur
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
hefur ákveðið að framlengja enn dvöl
gæzluliðs samtakanna á Kýpur um sex
mánuði.
10-15% hækk-
un á olíu
Svo virðist sem olíumálaráðherrar
OPEC ríkjanna eða ríkja sem flytja út
oliu séu að verða ákveðnari í samstöðu
sinni um mikla hækkun olíuverðs. Er
jafnvel talið að hækkunin á næsta ári
geti numiðá milli lOog 15%.
New York:
Óvæntur
málverkafundur
Kýrralifsmynd eftir flæmska málar-
ann Jan Bruegel hefur verið uppgötvuð
að nýju eftir að hafa verið talin eftir
annan málara. Myndin fannst í New
York. Eru þetta talin mikil tíðindi í lista-
heiminum.
Bretland:
Callaghanvilltraust
James Callaghan, forsætisráðherra
Bretlands, krafðist traustsyfirlýsingar
þingsins eftir að þar hafði verið fellt
frumvarp hans um aðgerðir gegn verð-
bólgu. Talið er mjög liklegt að stjórnin
fái traustið.