Dagblaðið - 16.12.1978, Page 2
VEIKIR í
TRÚNNI?
Skúli Helgason prentari hringdi:
Var hann alveg hissa á þeim látum
sem „guðsmennirnir” hefðu haft i
frammi vegna bókarinnar Félagi Jesús
sem út kom á dögunum. Líkti hann
þessum látum við þau sem urðu þegar
Galileó kom fram með kenningu sina
um að heimurinn vaeri hnöttóttur.
Guðsmennirnir héldu því þá fram að
hún væri flöt og stjömurnar snerust i
kring. Annað væri guðlast.
Skúla fannst sem eitthvað væru
blessaðir mennirnir veikir í trúnni
sjálfir fyrst þeir héldu að hún mætti
ekki við meiru en sakleysislegri barna-
bók.
Mynd úr bókinni félagi Jesús. Jesús
með Mariu Magdalenu.
Skúla fannst það þó furðulegast að
biskupinn yfir íslandi skyldi setja nafn
sitt á plagg hjá Fíladelfiusöfnuðinum,
eftir að biskupinn hefur margfordæmt
söfnuðinn fyrir andakukl og hjátrú.
SPARISKÓR
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978.
Hermaður við „skyldustörfin”.
Afturhaldssöm nýlendu-
stefna Dagblaðsins
Fundur um málefni Afríku, haldinn á
vegum Félags fslenzkra stúdenta i
Osló og nágrenni 01.11.1978 ályktan
Okkur hefur borizt til eyrna að Dag-
blaðið í Reykjavík hafi slegið upp sem
forsíðufrétt bréfi frá einum af málalið-
um hinnar ólöglegu Smithstjórnar í
Zimbabve (Ródesíu). Málaliði þessi,
sem er af íslenzkum uppruna, lýsir
fjálglega hvernig koma beri fram við
þá innfæddu. Blýið og jörðin geymi þá
bezt — og þar að auki séu þeir svo fjár-
ans hræddir.
Dagblaðið nefnir ekki að Zimbabve
er hernumið af hinni ólöglegu stjórn
Smiths og að barátta zimbabvönsku
þjóðarinnar fyrir sjálfstæði og sjálf-
ræði er fullkomlega réttmæt og nýtur
víðtæks stuðnings viða um heim á
meðan ekkert land hefur einu sinni
viðurkennt Smithstjórnina þau 13 ár
sem hún hefur verið við lýði. Með
þessum fréttaflutningi skipar Dagblað-
ið sér í lið allra afturhaldssömustu ný-
Ienduafla í heiminum.
Vilji Dagblaðið hreinsa æru sína i
augum andheimsvaldasinna og alls
ærlegs fólks á Íslandi er það siðferðileg
skylda þess að skipuleggja og á annan
hátt leggja lið söfnun peninga og/eða
annarra hjálpargagna til „Patriotic
Front” sem eru þau samtök sem skipu-
leggja og leiða baráttu Zimbabve-
manna gegn hinni ólöglegu stjórn
Smiths.
' Ályktun þessi er samþykkt á fundi
FÍSNAR, félags íslenzkra náms-
manna í Osló. Fyrir hönd FÍSNAR,
Guðbjartur Guðbjartsson.
HeimiHs-
iæknir
Haddir iesenda taka vTÓ
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttarins „Heím-
ilislœknir svarar" f síma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
frá
Palmroth
Finnlandi
Póstsendum
Blessuð dúfan!
SS simaði:
„Ég sé í Dagblaðinu i dag, mánu-
daginn 11. des., að nú ætlar Björgvin
Guðmundsson að skrúfa fyrir prívat-
skoðanir flokksmanna sinna í borgar-
stjórn. Blessuð dúfan hún Sjöfn Sigur-
björnsdóttir verður ekki aftur látin1
splundra meirihlutanum í borgar-
stjórn. Annars hélt ég að kjósendur
hefðu verið að kjósa sjálfstæða ein-
staklinga með eigin skoðanir til að
sinna málum okkar. Svo virðist ekki
eins og einhvers konar kosninga- maskínur. Hann vill greinilega hafa
vera og Björgvin taíar um sína menn „sitt fólk” undir „contróli”.