Dagblaðið - 16.12.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978.
Skattafrumvörp
ríkisstjórnarinnar
komin:
J Skattur á skatt ofan
Ríkisstjórnin lagði í gær fram frum-
vörp sín um skatta, sem talsverð grein
hefur áður verið gerð fyrir i Dagblaö-
inu. Verulegar breytingar verða á
tekju- og eignarskatti. Þær miða að þvi
að halda áfram hátekjuskattinum frá i
september. Bætt hefur verið inn nýju
50% skattþrepi -í tekjuskatti einstakl-
inga og tekjuskattur félaga hækkaður.
Þessum síðasttöldu breytingum er
ætlað að koma i stað 10% skyldu-
sparnaðaríns sem lagður var á i ár.
Þá fá hinir tekjulægstu nokkrar
hagsbætur með hækkun á skattfrelsis-
mörkum eignarskatts hjá elli- og
örorkulífeyrisþegum og nýta má per-
sónuafslátt til greiðslu á sjúkratrygg-
ingagjaldi hjá þeim með allra minnstar
tekjur.
Sem dæmi um tekjuskattinn má
nefna, að hjá hjónum sem telja fram
saman á að greiða 20% af fyrstu
861.500 krónu skattgjaldstekjum, þaö
eru tekjur eftir frádrætti. Af næstu
369.230 krónum í skattgjaldstekjur
greiðast 30%, siðan 40% af þar næstu
351.500 krónum og af skattgjaldstekj-
um yfir 1.582.230 krónunum greiðast
50%.
Af fyrstu 11,4 milljónum i skatt-
gjaldseign einstaklinga og fyrstu 17,1
milljóninni hjá hjónum greiðist enginn
skattur. Af þvi sem umfram það er
greiðist 1,2% eignarskattur.
Hjá elli- og örorkulífeyrisþegum
skal álagður eignarskattur lækkaður
um 68.400 hjá einstaklingi og 102.600
krónur hjá hjónum.
Hjá félögum skal eignarskattur vera
1,6%.
Tekjuskattur félaga skal verða 65%
af skattgjaldstekjum.
Þá verður lagður 1,4% sérstakur
skattur á skrifstofu- og verzlunarhús-
næði og 2% nýbyggingagjald á bygg-
ingarkostnað mannvirkja annarra en
ibúðarhúsnæðis.
HH
DOKTORSVORN VID
HÁSKÓLA ÍSLANDS
1 dag fer fram doktorsvörn við lækna-
deild Háskóla tslands. Mun Jón G. Hall-
grimsson læknir þá verja ritgerð sína
„Spontaneous Pneumothorax in Ice-
land” fyrir doktorsnafnbót í læknis-
fræði.
Andmælendur af hálfu læknadeildar
verða Tryggvi Ásmundsson læknir og
Hrafn Tulinius prófessor.
Deildarforseti læknadeildar, prófessor
Víkingur H. Arnórsson, stjórnar athöfn-
inni. Doktorsvörnin fer fram í hátíðarsal
Háskólans og hefst kl. 2 e.h. öllum er
heimill aðgangur. - GAJ
Kveikt
á jóla-
trénu á
Aust-
urvelli
— ogjólasveinar
komafram
Á morgun verður kveikt á jólatrénu
á Austurvelli. Tréð er að venju gjöf
Oslóarbúa til Reykvíkinga.
Að þessu sinni hefst athöfnin við
Austurvöll um kl. 15.30 með leik
Lúðrasveitar Reykjavíkur. Sendiherra
Noregs á lslandi, Annemarie Lorent-
zen, mun afhenda tréð en Sigurjón
Pétursson forseti borgarstjórnar mun
veita þvi viðtöku. Athöfninni lýkur
með þvi að Dómkórinn syngur jóla-
sálma.
Eftir að kveikt hefur verið á trénu
verður barnaskemmtun við Austur-
völl. Munu þá jólasveinar birtast I full-
um skrúöa á þaki kökuhússins við
hornið á Landssímahúsinu.
-GAJ
KVEIKT Á JOLATRÉNU
í KÓPAVOGI í DAG
í dag kl. 16.00 verður kveikt á jóla-
trénu við Félagsheimiliö í Kópavogi.
Af þvi tilefni verður athöfn í bíósaln-
um. Hornaflokkur Kópavogs leikur,
Samkór Kópavogs syngur og jóla-
sveinn kemur í heimsókn.
Jólatréð er gjöf frá vinabæ Kópa-
vogs, Norrköping í Sviþjóð. Sænski
sendiherrann frú Ethel Wiklund mun
afhenda Kópavogsbúum tréð og
tendra Ijós þess.
-GAJ
IHAFNARFIRÐI
Á morgun kl. 16.00 verður kveikt á
jólatré því sem Fredriksberg, vinabær
Hafnarfjarðar i Danmörku, hefur
gefið Hafnarfjarðarbæ.
Jólatréð er á Thorsplani við Suður-
götu. Sendiráösfulltrúi frú Anna
Madden afhendir tréð. Áður leikur
Lúðrasveit Hafnarfjarðar og að lokum
syngur Karlakórinn Þrestir.
GAJ
t. 1
1 .-'S þ1-,. > I c *
mm M
1-^i
ATTA TEGUNDIR UTTÆKJA
Á fyrstu árum fyrirtækisins var
aðaláherzlan lögð á viðgerðir sjón-
varpstækja og fleira. Nú hefur um-
fangsmikil söludeild bætzt við starfs-
Átta mismunandi tegundir litsjón- múla 2. Þar hefur fyrirtækið, sem sviðið. Eigendur Sjónvarpsstöðvarínn-
varpa getur að lita á einum og sama starfað hefur siðan 1971, fengið nýtt ar eru Hreinn Erlendsson og Arthúr
stað hjá Sjónvarpsmiðstöðinni I Síðu- og glæsilegt húsnæði. Moon.
Verö-
lækkun
20" kr. 379.000.-
m/Qarst.
22" kr. 415.000.-
LHsjónvarpstsekin
frá hinu heimsþekkta fyrirtæki RANK sem flestum er
kunnugt fyrir kvikmyndir, en það framleiðir einnig
alls konar vélar og tæki fyrir kvikmyndahús og sjón-
varpsstöðvar um allan heim.
m/fjarst.
26" kr. 489.000.-
m/fjarst.
Gerið samanburð á
verði.
Tryggið ykkur tæki
strax.
Takmarkaðar birgðir
Sjónvarp
ogradio
Vitastfg 3 Reykjavík.
Sfmi 12870.