Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 16.12.1978, Qupperneq 10

Dagblaðið - 16.12.1978, Qupperneq 10
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1978. Allar fóstrur í Kópavogi hafa sagt upp störfum — f rá og með 1. marz, náist ekki samningar um laun Fóstrur 1 Kópavogi hafa sagt upp störfum og munu leggja niður störf 1. marz nk. hafi samningar ekki tekizt um launamál þeirra fyrir þann tima. Fóstrur fá greidd laun eftir 10. launa- flokki opinberra starfsmanna. Byrjun- arlaun eru um 205 þúsund og hækka eftir starfsaldri upp í 220 þúsund kr. á mánuði. Kröfur fóstranna eru að fóstrur á fyrsta starfsári taki laun eftir 12. launaflokki. Eftir fyrsta starfsár fái fóstrurnar laun eftir 13. launaflokki og siðan eftir 15. launaflokki eftir fjög- urra ára starf. Fóstrurnar i Kópavogi sögðu upp störfum hinn 1. desember sl. og hafa siðan verið kallaðar einu sinni fyrir hjá bæjarstjóm, sem siðan hefur ekki haft samband við þær. Fóstrur annars staðar á landinu hafa ekki sagt upp störfum en Kópavogsfóstrurnar telja sig hafa stuðning Fóstrufélagsins og fóstra í Reykjavík. Telja þær að þungur hugur sé í Reykjavikurfóstrum að feta i fótspor þeirra og krefjast sömu kjara. Þá eru fóstrurnar mjög andvígar fyrirhuguðum breytingum á fóstur- námi. Stefnt er að því að færa fóstur- nám á fjölbrautaskólastig, þannig að fóstrur útskrifist úr fjölbrautaskólum, en ekki Fósturskólanum eins og nú er. DB ræddi við bæjarritarann i Kópa- vogi og sagði hann að fram að þessu hefðu aöeins átt sér stað óformlegar viðræður við fóstrurnar, en fundir væru fyrirhugaðir.í janúar. Samningar fóstranna eru gerðir við Starfsmanna- félag Kópavogskaupstaðar og kjara- nefnd dæmdi í kaupmálum þessa starfshóps. „Ég á ekki von á öðru en úr rætist,” sagði bæjarritari, „en við höfum tima fram til 1. marz til að ljúka samningum.” •JH. STORHÆTTULEGUR PERUÞJÓFNAÐUR Ýmsir gera sér far um að setja upp Ijósaskreytingar i jólamánuðinum og stuöla með því að skemmtilegri borg- arbrag. Einn af þeim var Ingvar Helgason sem lét setja upp skrautlýs- ingu meðfram heimkeyrslunni að húsi sínu við Sogaveg. En Ingvar hefur ekki haft erindi sem erfiði því það er árátta einhverra að læðast að skraut- lýsingunni og stela úr henni perum. Hafa verið að þessu mikil brögð. Astæða er til að benda þeim ráns- glöðu á að þjófnaði peranna getur fylgt mikil hætta. Ef börn eru þarna að verki, sem trúlegt er talið, og blautt er geta þau fengið straum og jafnvel orðið föst við tóm perustæðin. Það hefur ekki verið horft i kostnað við að endurnýja Ijós skrautseriunnar en nú er vakin athygli á hættunni sem þjófn- aðinum fylgir. -ASt. Firmakeppni í billiard um helgina Firmakeppni íslands í knattborðsleik — billiard — verður haldin um helgina á Júnó i Skipholti i Reykjavík. Keppnin hefstídagkl. 14. Búizt er við að þátttakendur verð tuttugu og fjórir en keppt veröur þremur riðlum, átta keppendur I hverj um. Helmingur þeirra kemst áfram í úrslit. sem leikin verður til á kl. 14 á sunnudag. Þá keppa allir við alla. Allir beztu bill- iardleikarar landsins taka þátt í keppn- inni, þeirra á meðal fjórir Akureyringar sem skarað hafa fram úr í sínum heima- bæ. Reykvísku keppendurnir hafa allir getið sér gott orð fyrir leikni við knatt- borðið. •GAJ/ÓV. Valdimar Helgason en ekki Haraldur Björnsson Valdimar Helgason leikari hafði sam- band við blaðiö vegna myndar af honum sem birtist á fimmtudaginn. Var myndin sögð af Haraldi Bjömssyni. Mistökin komi til af þvi að þeir leikararnir voru saman á mynd en aðeins annar helming- Þessa sérkennilegu mynd tók Ragnar Th. Sigurðsson inn eftir Laugavegi frá horni Frakkastígs. 1 dag verður Laugavegurinn göngugata. Fáir munu liklega sjá götuna i þessu sama Ijósi og Ragnar — þvi hann notaði stjörnufilter við myndatökuna. Laugavegur göngugata í dag ur hennar kom fram í blaðinu. Passaði ekki saman sá helmingur af myndinni sem sýndur var og nafnið. Valdimar og ættingjar Haralds eru beðnir velvirðing- ar á þessum mistökum. DS ef til vill á Þorláksmessu líka ef vel tekst til „Þetta er aðeins tilraun en ef hún mælist vel fyrir þá verður svipaður hátt- ur hafður á á Þorláksmessu,” sagði Þór Vigfússon, formaður umferðarnefndar Reykjavikur um lokun hluta Laugavegs Jólaplatan sem beöið er eftir | /Jfalleg jólalög sem allir þekkja KEMURI VERZLANIR I NÆSTU VIKU UTGEFANDI: HVERRI PLÖTU FYLGIR SÉRPRENTUÐ TEXTABÓK UALOG t DREIFING: FALKIN N fyrir almennri bílaumferð eftir hádegi í dag. Lögreglustjóri hefur ákveðið, að til- lögu umferðarnefndarinnar, að loka Laugaveginum á milli Snorrabrautar og Skólavörðustigs frá eitt í dag til sjö í kvöld. Kveikjan að þessari hugmynd er upp- haflega komin frá Strætisvögnum Reykjavikur, þar sem ferðir vagna um Laugaveg riðluðust verulega síðasta laugardag vegna umferðaröngþveitis. Til aö koma á móts við þá sem endi- lega vilja eða þurfa að aka Laugaveginn verða tíðar ferðir strætisvagna frá JÁRNKROSSINN eftir Jon Michalat Hörkuspennandi og umdeild skáld- saga um nasisma og nýnasisma i Noregi. Bókin var ritskoðuð, og var dæmd i Noregi á þessu ári fyrir meiðyrði, en kemur út óstytt á is- lenzku. Veró kr. 4.760, Hlemmi, er aka hringferðina niður Laugaveginn og upp Hverfisgötuna afturá Hlemm. Þá bendir Þór að lokum fólki á að all- stór bílastæði án gjaldmæla eru við borg- arskrifstofurnar við Skúlatún, á svæðinu þar sem Bifreiðaeftirlit rikisins var og við Skátabúðina við Snorrabraut. •G.S. Jólasöngvar íKópavogi Jólasöngvar munu óma frá Hamra- borg 1 i Kópavogi á morgun. Samkór' Kópavogs heldur þar jólavöku sína og ■hefst skemmtunin klukkan 15. Allir eru velkomnir, börn jafnt sem fullorðnir, en selt er inn. Jólalög verða flutt, kaffiveit- ingar fram bornar og jólasveinninn hefurlofað aðlíta inn. Jólatónleikar Árnesinga- kórsins Árnesingakórinn heldur jólatónleika í dag kl. 15 í Hveragerðiskirkju og kl. 20.30 í Eyrarbakkakirkju, á morgun kl. 17 I Frikirkjunni i Reykjavík og í Kópa- vogskirkju kl. 20.30. Stjórnandi kórsins er Jón Kristinn Cortes og undirleikari er Guðni Þ. Guðmundsson. -JH w ersma- auglýsingablaðið

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.