Dagblaðið - 16.12.1978, Side 21
21
16. DESEMBER 1978.
Axel Axebson,
Grun-Weiss Dankersen.
Ólafur H. Jönsson,
Griin-Weiss Dankersen.
fslenzku landsliðsmennimir stefna
AÐ SIGRUM
GEGN DÖNUM
—í landsleikjunum í handknattleik
á sunnudag og mánudag
Það verður spenna á sunnudag og
mánudag I Laugardalshöll: landsieikir i
handknattleik við „erkiövininn” Dani —
danska landsliðið sem varð i fjórða sxti i
heimsmeistarakeppninni i Danmörku
fyrst á þessu ári. Nær óbreytt lið Dana
frá HM leikur á fjölum LaugardalshaU-
arínnar við nýtt landslið tslands með
þekktum nöfnum þar sem aðeins fjórir af
HM-leikmönnum tslands eru meðal
þátttakenda i fyrrí leiknum. Það er á
sunnudagskvöld og leikurínn hefst kl.
21.00.
Tveir aðalmarkaskorarar Dana á HM
eru ekki i danska landsliðinu, þeir
Anders-Dahl Nielsen og Michael Berg,
en allir hinir HM-kapparnir. tsland stillir
upp leikreyndum köppum i hinu nýja
landsliði Jóhanns Inga Gunnarssonar
landsliðsþjálfara. Þó er einn nýliði, Atli
Hilmarsson, ungi leikmaðurinn efnilegi i
Fram — og félagi hans, Gústaf Bjöms-
son, sem leikið hefur einn landsleik. Þrir
koma erlendisfrá. Ólafur H. Jónsson,
sem leikið hefur 104 landsleiki, Axel
Einarsson með 70 landsleiki, báðir
Dankersen, og Gunnar Einarsson mark-
vörður sem leikið hefur 54 landsleiki.
Hann leikur nú með Árósa-KFUM og er
talinn einn albezti markvörðurinn i
dönskum handknattleik.
Stefán Gunnarsson, Val, verður fyrir-
liði islenzka liðsins. Hann hefur leikið 47
landsleiki. Félagar hans í Val, Þorbjöm
Guðmundsson, með 39 tandsleiki,
Bjami Guðmundsson, 34 landsleiki,
Steindór Gunnarsson, með 16 landsleiki,
og Þorbjöm Jensen með 16 landsleiki,
koma heim eins og Stefán i dag úr góðri
ferð til Rúmeniu. Þá leikur Hörður
Harðarson, skotharði leikmaðurinn úr
Haukum, sinn fjórða landsleik og Jens
Einarsson, ÍR, ver mark Íslands i sjö-
unda sinn.
Iþróttit
1 leikinn á mánudagskvöld bætast
fjórir Vikingar i iandsliðið ásamt Ólafi
Benediktssyni, markverði Val. Ein-
hverjir fimm vikja þvi úr sætum sínum
frá fyrri leiknum. Ólafur Benediktsson
hefur leikið 81 landsleik og Vikingamir
fjórir eru og leikreyndir menn. Ámi Ind-
riðason, sem verður fyrirliði i leiknum á
mánudagskvöld, með 45 landsleiki,
Viggó Sigurðsson með 36 landsleiki, Páll
Björgvinsson með 31 landsleik og Ólafur
Jónsson með átta landsleiki.
Landsleikirnir verða 24. og 25. viður-
eign tslands og Danmerkur. Danir hafa
yfírhöndina — hafa unnið 18 íeiki.
íslendingar fjóra en einu sinni varð jafn-
tefli. Okkur gekk lengi mjög illa gegn
Dönum á handknattleikssviðinu. Það
var ekki fyrr en 1968 að islenzka lands-
liðinu tókst að sigra Dani i fyrsta skipti
— tiu ára afmæli þessa fyrsta landsleiks-
sigurs gegn Dönum nú — afmæli sem
vert væri að halda upp á með góðum
sigrum. Fyrsti landsleikur þjóðanna var
háður 1950 — og það tók 18 ár að næla i
fyrsta sigurinn. Siðan hafa viðureignir
ijóðanna verið mjög jafnar.
SPARIMARKAÐURINN
AUSTURVERI - NEÐRA BiLASTÆÐI SUNNAN HUSSINS
á bensí nstöóvum Shell
Á bensinstöövum okkar i Reykjavík fæst sportúlpur, kasettur og kasettutöskur,
nú úrval af hagnýtum jólagjöfum. A||t góðar gjafjr handa ættingjum og vinum,
Viö minnum á barnabíla og bilstóla fyrir þér sjálfum, - eöa bilnum.
börn. Sætaáklæði i bilinn. Topplyklasett og ... . ... . , ...
hleöslutæki fyrir rafgeyma. Þá má nefna ^ensfn Þ ^ ^ ^
nokkrar geröir af verkfærakössum, faNegar ...
Olíufélagið Skeljungur hf
Gunnar Einarsson,
Arhus KFUM.