Dagblaðið - 10.01.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 10.01.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR ÍO.JANÚAR 1979. 3 Haldið áf ram að leggja okkur lið í nafni mannúðar og réttlætis: Mig langar að byrja nýja árið með því að þakka Baldvini Þ. Kristjánssyni af heilum huga fyrir hinar skilnings- ríku og skeleggu greinar, er hann hefur ritað i blöðin um fyrirhugaða sundlaugarbyggingu Sjálfsbjargar hér að Hátúni 12. Betri undirtektir gat ég naumast fengið, er ég reit grein mína S.O.S., eða í nafni mannúðar og rétt- lætis — leggið okkur lið — eins og fyrirsögnin var orðuð í einu dagblað- anna. Fjallaði sú grein um hina brýnu nauðsyn þess, að hér verði hið fyrsta byggð sú sund- og æfingalaug, sem fyrir löngu átti að vera fullgjörð, en er nú einungis steyptur grunnur. Ennfremur þakka ég og af heilum huga öðrum þeim, sem hafa lagt þessu máli lið með ágætum og hvetjandi blaðaskrifum. Vil ég sérstaklega minna á orð Kr. Bj. i Morgunblaðinu 13. desember 1978, þar sem m.a. segir svo: „Ég hef tvisvar lent I slysi og ekk- ert hefur hjálpað mér eins að komast inn i líflð aftur og þjálfun i sundlaug.” Hér skal það tekið fram, að sund- og æfingalaugar fyrir fatlað fólk þurfa að vera með nokkuð öðru sniði en venju- legar laugar. Laugin hér að Hátúni 12 þarf að vera yfirbyggð og með sérstök- um útbúnaði og hitastigi fyrir vistfólk hér og aðra fatlaða. Ágætur sjúkra- þjálfari sagði mér sl. haust, að úti í Noregi, þar sem hún nam sin fræði, hefði fólk, sem lamað var upp að hálsi af völdum slysa ellegar sjúkdóma, getað róið sér áfram I vatni með höf- uðhreyfmgunum einum saman, máske búið kútum og öðrum hjálpar- tækjum. Má nærri geta hvílík liðkun og hvíld þetta var jafn farlama fólki. Þetta var eina hreyfingin, sem slíkt fólk gat gert af eigin rammleik. Hér er slíkt fólk til ævidvalar, enda er einmitt hér reynt eftir föngum að búa þessu fólki þau skilyrði, sem því hæfir. Hér er mikið af M S fólki (heila- og mænusigg, sem veldur hægfara lömun), nokkrir mjög illa farnir liða- gigtarsjúklingar auk allavega mikið fatlaðs fólks af völdum slysa ellegar sjúkdóma. Svo sem ég hefi áður drepið á þá eru slíkir sjúklingar einatt færir um að gjöra margvíslegar og flóknar æfingar í þar til gjörðri laug, æfingar og jafnvel sund, sem bæði eflir, styrkir og liðkar illa farna líkami auk þess að draga einatt samhliða úr miklum og langvinnum þjáningum. Ekkert getur komið i stað vatnsins og þeirra mögu- leika, sem það hefur upp á að bjóða. Endurhæfingarlæknar og sjúkraþjálf- arar á stöðum sem þessum þarfnast ekki einungis lyfja, raftækjabúnaðar og æfingaaðstöðu á þurru landi til að nýta sina dýrmætu sérmenntun fötl- uðum til endurhæfingar og heilsubót- ar. Þeir þarfnast yfirbyggðrar sund- og æfingalaugar með vissu hitastigi og sérstakri aðstöðu og tækjabúnaði fyrir sitt fólk. Minnisstæð er mér sú sctning, sem ég heyrði oftast allra af vörum sjúkl- inganna úti í Hornbæk (en það er danskt endurhæfingarhæli) árið 1964 — vatnið er best. Nýlega kom til min sýslungi minn, en hann hefur frá unga aldri verið mjög veill I baki og fótum, en tekist að halda sér vinnufærum með þvi að stunda laugarnar. Þessi heiðursmaður færði mér kr. 20.000 í sundlaugarsjóð Sjálfsbjargar. Á Þorláksmessu barst mér söfnun- arlisti með kr. 433.500 frá framtaks- sömum áhugamanni og velunnara mér vensluðum. í dag barst mér bréf frá Hrönn Huld og vinkonum hennar litlum, sem safnað höfðu I sjóðinn kr. 5.000 með því að halda sina tombólu. Mörgum fleiri upphæðum, stórum og smáum, hefi ég persónulega veitt móttöku I sjóðinn síðan blaðaskrif hóf- ust um þessi mál. Vitanlega hafa stór og smá framlög ýmissa aðila fyrst og fremst verið send beint á skrifstofuna, svo sem vera ber. Allt þetta ber að þakka betur en orð fá lýst og sýnir þetta að margir vilja leggja okkur lið. Vona ég að svo verði áfram, þvi að mikils þarf við. Núverandi kostnaðaráætlun nemur áttatíu og einni milljón króna, en í sjóðnum eru nú kr. 3.832.000.- Sjóður- inn hefur hvorki hlotið styrk frá ríki Raddir lesenda né borg, svo það sem i honum er, er einungis gjafafé. Fyrir jól heyrði ég i útvarpsfréttum, að Einar Ágústsson hefði lýst yfir ánægju sinni á þingi með tuttugu milljón króna ríkisstyrk veittan sund- laugarbyggingu á Grensásdeild. Eru það vissulega gleðitiðindi, að fyrirhug- uð sundlaugarbygging þar skuli njóta áframhaldandi rikisframlags og fagna ég því. En á það má benda i allri hóg- værð að hér er einnig þörf á öflugum styrk. Mikið væri nú gaman ef hann Pál Heiðar og þá félaga dreymdi eitthvað fallegt um laugina okkar, þegar þeir njóta þeirrar hollustu að vera i „heita pottinum”á morgnana. í Vísi las ég nýlega, að við íslend- ingar eyðum á aðra. milljón króna i flugelda og annan eldfagnað um ára- mót. Einn vindlingapakki mun kosta á sjötta hundrað krónur. Ef hundrað þúsund manns gæfu sem svarar tæpu kostnaðarverði eins vindlingapakka, þá væru þar komnar yfir fimmtíu milljónir króna. Svo mætti lengi reikna, en hér ætla ég að láta staðar numið, aðeins minna á það, að hingað kemur að jafnaði verst farna fólkið hvaðanæva af landinu til ævidvalar og stöðugrar endurhæfingar, eftir því sem rými og aðstæður leyfa. Mig langar að geta þess, að enskar mæðgur, er víða höfðu farið, komu hér til mín síðastliðið sumar. Dáðust þær mjög að öllu fyrirkomulagi hér og aðbúnaði vistfólks, kváðust hvergi i Englandi hafa séð svo fullkomið ör- yrkjaheimili, aðeins eitt vakti þeim mikla furðu og það var, að hér skyldi vanta sundlaug. Við ykkur góðir lesendur vil ég þvi segja þetta að lokunv f nafni mannúð- ar og jafnréttis haldið áfram að leggja okkur lið með hvetjandi blaðaskrifum, söfnunum á \ innustöðum og viðar. Verið þess minnugir, að ef margar hendur leggjast á eitt og brennandi áhugi er að verki, má vinna stórvirki. Með nýárskveðjum, María Skagan. P.S. Enn skal á það bent, að framlögum til sundlaugarsjóðsins er veitt móttaka i skrifstofu Sjálfsbjargar, landssam- bands fatlaðra á fyrstu hæð að Hátúni 12. Fatlaðir þjálfaðir I sundlaug. Maria Skagan segir enga þjálfun jafnast á við þessa. NY SENDING Teg. 138 Lhur: Beige leóur Skinnfóðraðir Leðursóli með hrufóttum slitsóla. Stærðir 36—41. Verðkr. 29.650.- Hnéhá Teg. 161 Litur: Beige, hvítt leður Skinnfóðraðir og með leðursóla Stærðir36—41 Verðkr. 29.650.- Hnéhá Teg. 137 Litur: Burgandy brúntleður Leðursóli með hrufóttum slhsóla Stærðir 36—41 Verðkr. 29.650.- Hnéhá Skóverzlun Þórðar Péturssonar Kirkjustræti 8 v/Austurvöll—Sími 14181—Póstsendum Spurning dagsins Hvernig fannst þér íslendingar standa sig í landsleikjunum við Pólverja í hand- knattleik? Marteinn Jóhannesson: Ég sá seinni leikinn og fannst mér hann nokkuð góður. Að visu tel ég að íslendingar hafi verið heppnir að ná jafntefli. Bezti maður liðsins fannst mér vera Jón Pétur Jónsson. Hann átti mjög góðan leik. Sólveig Baldursdóttir: Ég sá báða leikina i sjónvarpinu. Mér fannst lslendingar standa sig mjög vel i seinni leiknum en hefðu getað staðið sig betur í þeim fyrri. Sigurður Gunnarsson: Ég sá ekki þessa leiki og veit ekki hvernig þeir fóru. Ég fylgist ekki svo með þessu. Reglna Svavarsdóttir: Þeir eru alveg ágætir. Ég sá lokakaflann I seinni leikn- um í sjónvarpinu og mér fannst þeir standa sig alveg ágætlega. Sigriður Þorláksdóttir: Maður er alltaf ánægður þegar þeir standa sig vel. Eftir þvi sem ég hef frétt var fyrri leikurinn ekki nógu góður. Guðmundur Helgi Finnbjarnarson: Mér fannst þeir bara standa sig vel. Ég sá seinni hálfleikinn í seinni leiknum I sjón- varpinu og fannst mér hann mjög góður. Jón Pétur var bezti maðurinn.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.